Vikan


Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 15

Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 15
að gera það ekki. Þeir segja að hann hafi verið eðlilegur að sjá undanfarnar vikur. Þessvegna bíða þeir að minnsta- kosti í mánuð, til að sjá hvernig reyndin verður. Ferse segir sjálfur að hann hafi verið fullkomlega heilbrigður í þrjá mánuði. — Hvernig er þetta hæli? — Stórt sveitasetur, og aðeins tíu sjúklingar. Þetta er örugglega bezti staður sem hægt er að fá fyrir hann. En samt er þetta hræðilegt. — Það finnst mér líka, sagði Dinny og þrýsti handlegg hans. — Hvernig komst hann burt? — Hann hafði verið svo rólegur um lengri tíma, svo þeir voru ekki eins á verði. Hann virðist hafa komizt burt í matartímanum. Hann gekk að brautarstöðinni og tók næstu lest. Þetta eru aðeins tuttugu mílur. Hann hefur verið kominn til borgarinnar, þegar þeir urðu varir við að hann var strokinn. Eg fer þangað á morgun. — Ég finn til með þér frændi. — Dinny, vina mín, sagði Adrian, — ég er ekki fær um að vera innan um fólk, eins og er. — Komdu og borðaðu hjá Fleur, það hressir þig. Adrian hristi höfuðið. Með stanzlausum símahringingum hafði Jean loksins upp á Hubert í Coffee House. Hún mætti Dinny í stiganum og sagðist þurfa að skreppa út. Hún var ekki kunnug í London, svo hún tók leigubíl. Þegar hún kom að Eaton Square, lét hún bílinn nema staðar fyrir framan stórt og fremur skuggalegt hús, þar sem hún hringdi dyrabjöllu. — Er Saxenden lávarður í borginni? — Já, yðar náð, en hann er ekki heima. — Hvenær kemur hann? — Hans náð kemur til miðdegisverðar, en .... — Þá ætla ég að bíða. — Fyrirgefið, yðar náð .... ■—■ Kallið mig ekki „yðar náð“, sagði hún og rétti honum nafn- spjald sitt, en hann vill samt örugglega sjá mig. Maðurinn reyndi að þrjózast, en þegar hann leit í augu hennar, sagði hann: — Gjörið svo vel að ganga inn, eh-ungfrú? Jean gekk inn. Herbergið sem henni var boðið inn í var frekar tómlegt. ■—■ Viljið þér fá honum nafnspjald mitt strax þegar hann kemur? Maðurinn reyndi að herða sig upp. — Hans náð verður mjög tímabundinn þegar hann kemur. — Ekki frekar en ég, hafið ekki áhyggjur af því, og hún settist niður á gylltan stól. Maðurinn fór. Hún horfði út í rökkrið, tók af sér hanzkana og spennti greipar. Þjónninn kom aftur inn og dró fyrir gluggana. ■— Þér vilduð líklega ekki, sagði hann, skilja eftir skilaboð, skrifa línu? — Nei, þakka yður fyrir. Hann stóð kyrr um stund, virti hana fyrir sér, eins og hann væri að hugleiða hvort hún væri vopnuð. — Ungfrú Tasburgh? — Já, lávarðurinn þekkir mig, sagði hún og leit á hann. — Einmitt það, sagði maðurinn vesældarlega og fór. Klukkan var farin að nálgast sjö, þegar hún heyrði mannamál í forsalnum. Andartaki síðar opnuðust dyrnar og Saxenden lávarður kom inn, með nafnspjald hennar í hendinni. — Þetta er ánægjulegt, sagði hann, mikil ánægja. Hann er eins og þurrkaður saltfiskur, hugsaði hún, um leið og hún rétti fram hönd sína. — Það er afskaplega vingjarnlegt af yður að vilja sjá mig. — Alls ekki. — Mig langaði til að segja yður að ég hef trúlofazt Hubert Cherrell höfuðsmanni, þér munið eftir systur hans á Lippinghall. Hafið þér heyrt um hina furðulegu beiðni um framsal hans? Það er næstum of heimskulegt til að það sé talandi um það, hann skaut manninn í hreinni sjálfsvörn. Hann er með geysistórt ör, sem sannar mál hans, þér gætuð fengið að sjá það, hvenær sem er. Saxenden lávarður tautaði eitthvað óskiljanlegt. Augu hans virt- ust ísköld. — Sjáið þér til, mig langaði til að biðia yður að koma í veg fyrir þessa fásinnu. Eg veit þér hafið vald til þess. — Vald? Ekki það minnsta. Jean brosti. Auðvitað hafið þér valdið, það vita allir. Þetta er svo óendanlega mikilsvert fyrir mig. —- Þér voruð ekki trúlofuð, þegar við hittumst síðast? —■ Néi. Þetta hefir skeð fljótlega!' — Er það ekki venjan með trúlofanir? En þegar allt kemur til alls þá fékk Cherrell höfuðsmaður heiðursmerki í stríðinu. Eng- lendingar standa saman, sérstaklega þegar þeir hafa gengið í sama skóla. — Ó, sagði hann, — var hann þar líka? — Já, og þér vitið hvað hann þurfti að ganga í gegnum í þessum leiðangri. Dinny las fyrir yður úr dagbók hans. Hann var myrkur á svip, og sagði með skyndilegum æsingi: — Þið þessar ungu stúlkur virðast halda að ég hafi ekki annað að gera en að sletta mér fram í hluti, sem alls ekki koma mér við. Það er lögum samkvæmt að krefjast framsals manna. Jean horfði á hann undan augnahárunum og lávarðurinn horfði undan. —- Hvað get ég gert? sagði hann harðneskjulega, — þeir myndu ekki hlusta á mig. — Reynið, sagði Jean, — það er alltaf hlustað á suma menn. — Þér segið að hann sé með ör. Hvar? Jean ýtti upp erminni á vinstri handlegg. — Héðan og hingað. Hann skaut manninn þegar hann réðist að honum aftur. — Hm-m. Hann horfði á handlegg hennar og það var þögn, þangað til Jean sagði: — Þætti yður gott að vera framseldur, Saxenden lávarður? -Hann hreyfði sig óþolinmóðlega. — En þetta er mál þess opinbera, ungfrú góð. Jean horfði á hann aftur. — Er það þá rétt að ekki sé hægt að hafa nokkur áhrif til þess að fólk njóti sannmælis? Hann hló. —Viljið þér borða með mér hádegisverð á Piedmont Grill dag- inn eftir morgundaginn, — nei annars, daginn þar á eftir? Þá skal ég láta yður vita hvort ég fæ nokkru áorkað. Jean vissi ofurvel hvenær mál var að hætta. Hún rétti fram hönd sína. — Þakka yður hjartanlega fyrir. Klukkan hálf tvö? Saxenden lávarður kinkaði kolli, furðulegur á svipinn. Þessi unga stúlka var sannarlega ekkert blávatn. — Verið þér sælir. — Verið þér sælar, ungfrú Tasburgh, og ég óska yður til ham- ingju. — Þakka yður fyrir, það er undir yður komið hvort ég öðlast hana, er það ekki? Og áður en hann gat svarað var hún horfin út um dyrnar. Hún var róleg þegar hún kom út og gekk til baka. Hún varð að sjá Hubert, og þegar hún kom inn, flýtti hún sér í símann og hringdi til Coffee House. — Er þetta Hubert, Jean hér. — Já, elskan. Komdu hingað eftir mat, ég verð að sjá þig. — Klukkan níu? — Já. Eg elska þig, bað er allt og sumt. Og hún lagði á. Eftir matinn sagði hún við Dinny: Hubert kemur eftir andar- tak, ég þarf að tala við hann í einrúmi. — Farðu með hann upp í vinnuherbergi Michaels. ®g ætla að tala við Michael, hann ætti að segja frá þessu í þinginu; það er bara verst að þingið kemur ekki saman núna. Það virðist aldrei sitja, þegar þörf er á því. Jean beið í forsalnum eftir Hubert. Þegar hann var kominn með henni inn í herbergið, þar sem skopmyndir af þrem síðustu kyn- slóðum héngu á veggjunum. Hún kom honum fyrir í þægilegasta stólnum og settist á kné hans. Hún vafði örmunum um háls hans og kyssti hann innilega; stóð svo upp og kveikti í sígarettu. — Þetta framsalsmál verður örugglega jafnað, Hubert. — En ef því verður framfylgt? — Það kemur ekki til mála. En þótt það nú verði, þá er því meiri ástæða fyrir okkur til að giftast. — En elskan mín, það væri ekki rétt gagnvart þér, ég get það ekki. — Þú verður. Láttu þér ekki detta í hug að fari ég ekki með þér, ef þú verður framseldur, gift eða ógift. Hubert virti hana fyrir sér. — Þú ert dásamleg, sagði hann, — en . . . . — Ó, ég veit hvað þú ætlar að segja, — heiður þinn og ættar- innar, og allt það, og að þú ætlar að gera mig óhamingjusama, vegna þess að það er mér fyrir beztu. Eg er búin að tala við Hilary frænda þinn. Hann er reiðubúinn til að gifta okkur; hann er prestur og hefir reynslu. Sjáðu nú til, við segjum hinum hvernig málin hafa snúizt, og ef hann er ennþá sama sinnis, þá giftum við okkur. Við förum til hans á morgun. ■— En.... — En! Við getum örugglega treyst honum og dómgreind hans; mér finnst hann vera heilbrigður maður. — Það er hann, frekar öllum öðrum. — Jæja, þá er það ákveðið. Framhald á bls. 37. 20. tbi. VTKAN 15

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.