Vikan - 14.05.1969, Side 24
I
Teygið á kviðvöðvunum; hallið yð-
ur afturábak, lyftið öðrum fæti upp
og látið tána nema við borðplöt-
una neðanverða. Haldið þessari
stellingu í þrjár sekúndur og hvíl-
ið svo. Skiptið um fót og endur-
ta.kið æfinguna sex sinnum.
V
: , !
Þessi æfing er góð fyrir
reisnina. Takið báðum
höndum neðarlega á hálsinn
og haldið hökunni hátt.
Þrýstið olnbogunum aftur á
bak, eins og þeir ættu að
mætast. Þér finnið til bæði
í hálsi og öxlum. Sex sek-
úndur, hvíla og endurtaka
þrisvar.
Fallegri brjóst og arma fáið þér með
þessum æfingum. Glennið út fingurna,
þrýstið fingurgómunum fast saman og
teygið olnbogana vel út. Kreppið hnefa
annarrar handar og þrýstið honum
fast í lófa hinnar, slakið á með því að
láta olnbogana síga; skiptið um hönd,
endurtakið æfingarnar þrisvar sinnum.
Þessi æfing er grennandi fyrir
mjaðmirnar. Standið fyrir
framan vegg eða hurð, setjið
annan fótinn upp að veggnum
en hinn nokkru aftar, látið
þyngdina hvíla á aftari fætin-
um. Haldið höndunum í brjóst-
hæð og þrýstið þeim að veggn-
um. Sex sekúndur, hvíla svo og
endurtaka þrisvar. Skiptið um
fót og gerið sömu æfinguna
með hinum fætinum.
Fyrirbyggið „skrifstofusitj-
anda“ á einfaldan hátt.
Standið með fætur saman
og grípið um stólbakið fyrir
aftan bak. Lyftið upp á tá
og ýtið stólnum frá um leið
og þér teygið úr líkaman-
um að framan og spennið
bakhlutann fram eins og
hægt er. Haldið þessari
stellingu í 6 sekúndur, hvíl-
ið og endurtakið þetta
þrisvar sinnum.