Vikan


Vikan - 14.05.1969, Side 29

Vikan - 14.05.1969, Side 29
kvöldfréttir. Hún tók varla eftir- einu orði. En allt í einu var eins og hún. hefði verið slegin. Það kostaði hana mikla. áreynslu að sýnast róleg. — Mikilvæg tilkynning frá sakamálalögreglunni, hljómaði frá tækinu, — vegna morðs er ýtarlega leitað að Jurgen Sie- bert. Siebert er þrjátíu ára, dökk- hærður, síðast, þegar hann sást var hann klæddur ijósbrúnum frakka, hann ekur í rauðum sportbíl með númeri M-F2-895, sennilega er hann í fylgd hinn- ar tuttugu og þriggja ára gömlu Gabrielu Westphal.... — Takk fyrir, sagði Gaby á þessari stundu og gekk þráðbein út um bakdyrnar, án þess að horfa til baka. Enginn fylgdi henni eftir. En þetta var líka nóg. Skelf- ingin gagntók hana. Hún sá fangelsið allt í einu fyrir sér. í ekki aðeins eitt ár, ekki aðeins nokkur ár .. . . heldur ævilangt. Á þessu andartaki var engin ást lengm’ til. Nú hugsaði hún aðeins um sjálfa sig. Og hún ákvað að gera allt til þess að komast undan. Nei. hugsaði hún, ég stíg ekki aftur inn í bíhnn, sem þúsundir lögreglumanna leita, ég mun leit- ast við að komast ein í burtu. Til andskotans með Jurgen! Bak við bensínstöðina fann hún þröngan stíg, sem hún komst óséð inn á. Með hverri mínútu, sem leið, varð Júrgen taugaóstyrkari. Hvað tafði hana svona? Ofsareiður steig hann út úr bílnum, skellti hurðinni aftur og þaut inn í veitingasalinn. Á miðju veitingahúsgólfinu nam hann staðar og horfði athug- ull kring um sig. Maður í ljós- brúnum ullarfrakka, dökkhærð- ur og um það bil þrjátíu ára ... Fyrir aftan hann horfði einn mannanna út um gluggann út á götuna. Hann kom auga á rauða sportbílinn og steig með fætin- um á tær sessunautar síns. — Eruð þér að leita að ein- hverjum? spurði afgreiðslumað- urinn. — Já, sagði Júrgen, — kunn- ingjastúlka mín ætlaði að fá sér smávegis að borða hér. Andlit veitingamannsins lét ekkert í ljós þegar hann svaraði með axlayppingu: — Einhver stúlka var hérna, hún gekk rétt í þessu út um dyrnar þarna. Júrgen ætlaði að snúa sér við að hinum dyrunum. En svo langt komst hann ekki. Sterkar hend- ur gripu í hann, reirðu hendur hans aftur fyrir bak og ýttu honum upp að vegg. Einn spark- aði í hann, annar sló hann með hnefanum í andlitið. — Þarna náðum við þér, skít- hællinn þinn. Júrgen heyrði veitingamann- inn tala æstan við lögregluna. — Já, rétt. Júrgen Siebert. Við höfum handtekið hann. Ekki sleppa honum, nei því getið þér treyst, herra næturvörður. Aftur fékk hann hnefa í and- litið. — Þú heitir Siebert, ekki satt? — Jú, sagði hann. — Látið hann nú í friði, sagði veitingamaðurinn, — lögreglan kemur eins og skot. Maðurinn, sem tvisvar hafði slegið hann, gekk alveg upp að honum: — Brúðan þín heyrði fréttirnar í útvarpinu, tilkynn- ingu frá lögreglunni, þá kom hún sér hljóðlaust út úr saurn- um .... Ást, hugsaði Júrgen, þetta hafði hann haldið að væri ást... Heili hans var tómur, þurr- ausinn. Hann var kominn á helj- arþröm. Hann lagði ekki neinar spurningar fyrir sjálfan sig framar. Hann gat ekki einu sinni hatað Gaby. Allt, sem hann fann fyrir, var viðbjóður á sjálfum sér. Honum fannst það nærri því léttir þegar lögreglumennirnir komu og fóru með hann. Gaby fannst, sem þetta mundi takast. Hún sat nú í flutninga- bíl, ein hjá bílstjóranum. Það var ekki í hugsunarleysi sem hún hafði farið úr kápunni og hent henni aftur fyrir sig. Pilsið hennar var stutt, og þeg- ar hún hafði krosslagt fæturna, gat maðurinn haft sína ánægju af að horfa á þá. Augu hans hvörfluðu líka nógu oft yfir til hennar. Hún var af því taginu, sem maður rakst ekki á á hverjum degi. Þegar hún kom hlaupandi út úr skugga trés nokkurs í Garmisch og gaf með þumal- fingrinum til kynna að hún vildi fá far — þá hafði þessi vöru- flutningabíll stöðvazt með ein- um rykk. — Hvert þá, ungfrú, hrópaði bílstjórinn út um gluggann. — Hvert farið þér? — Til Bozen. — Get ég fengið far þangað? — Með mestu ánægju. Já, þannig hafði þetta verið. Og nú var hún búin að segja honum að hún hefði ekkert vega- bréf og hann yrði að smygla henni yfir landamærin í far- angursrýminu. — Það er þó nokkur áhætta fyrir mig, ungfrú, sagði hann. Gaby greip um handlegg hans. — Og ef ég bið yður nú mjög vel? Þunglamaleg hönd hans þreif- aði eftir henni. — Nú, jæja, kannski. Segið mér nú eins og er, er lögreglan á eftir yður? — Já, viðurkenndi hún. — Hvers vegna? — Ég hljóp frá manni, iaug hún ákveðin, — og til þess að hefna sín, hefur hann kennt mér um þjófnað. Gaby gat ekki séð, hvort hann trúði henni. í rauninni féll henni ekki allskostar við hann. Lág- vaxinn, kraftalegur maður, tæp- lega fimmtugur. Hann hafði stutt enni og glotti stöðugt. En hvort hann féll henni vel eða ekki, það skipti nú engu máli. Það, sem máli skipti, var að halda honum í góðu skapi. Til þess varð hún að beita öll- um ráðum. Þangað til hún væri komin til Bozen. Hvað þá mundi taka við, um það gat hún ekki hugsað núna. Fyrst varð hún að komast burt frá Þýzkalandi. Gaby dró hring af fingri sér. — Takið við honum, sagði hún, — hann stendur fyrir sínu. — Gefið mér hann, svaraði karlinn, — þegar okkur hefur tekizt að komast yfir landamær- in. Glott hans fór í taugarnar á henni. Og það var heitt í bíln- um. Og hann lyktaði af öli, leðri og tóbaki. — Gefið mér nú almennilegan koss, skipaði hann allt í einu. Hann var með ljótar, gular tennur. En það hafði enga þýð- ingu að ætla að leika fína frú. Hún varð nú að vera eins og brúða, gefa honum vissa von. Hún kyssti hann. Eiginlega hefði þetta átt að aðvara hana. Maður, sem not- færði sér aðstæðurnar svona blygðunarlaust, var honum ekki til alls trúandi? En hún mátti prísa sig sæla að hafa rekizt á einn af hans tegund. Annar hefði e.t.v. farið með hana beint í hendur lögreglunnar. Þetta var ekki rétta andartakið til þess að vera með einhver látalæti.... Gaby brosti til hans, lét, sem henni geðjaðist að honum. Og þó svo hann vilji ennþá tíu kossa, mín vegna má hann það, ég get skolað á mér munninn á eftir. Hrædd? Já, hræðslan kom þegar hann beygði allt í einu út af veginum og ók inn á eyðilegt svæði. Þá voru andlitsdrættir hans eitt- hvað svo furðulegir og henni virtust hendur hans eins og hrammar á dýri. — Hvað á þetta að þýða? spurði hún. — Nú, ég verða þó að fela yð- ur aftur í. Ekki get ég stanzað til þess á þjóðveginum. Ég verð að skoppa nokkrum tunnum til, þér verðið að vera eins innar- lega og unnt er. Þetta hljómaði mjög rökrétt. Hún stóð við hlið hans þegar hann opnaði ólar strigayfir- breiðslunnar. Hann klifraði á undan og dró hana síðan upp. Striginn féll aftur niður eins og hengi og það varð koldimmt í vörugeymslunni. Hann dró andann með hryglu, þreifaði eftir henni, reif kjólinn nærri því utan af henni, gefinn fyrirheit hennar höfðu borið ár- angur, leikur hennar var úti. Gaby hrinti honum frá sér, sló hann í andlitið og fór að hrópa. —- Hjálp, hrópaði hún. Andardráttur hans var mjög nálægur, heitur og hryglukennd- ur. Og hendur hans, hendur hans.... Hróp hennar hættu. Allt hætti. Einnig líf hennar. Þegar hann sleppti henni var hún dauð. Flutningabíllinn kom hálfri klukkustundu of seint til landa- mæranna. Lík hennar fannst aldrei. Um nóttina var Janine flutt á sérsjúkrahús við Staffelsee. Hún var með fullri meðvitund, en ástand hennar var óbreitt. Amerískur herlæknir, sem var um borð í þyrlunni, sagði það sem Dr. Stephan Haller hafði einfaldlega ekki viljað hugsa. — Skaddaður hryggur, löm- un þvert á hann, það álítið þér þó líka, herra læknir, ekki satt? Stephan Haller sat við hlið hennar meðan á fluginu stóð, virti hana fyrir sér og beið eftir merki, sem gefið gæti einhverja von. Nei, hugsaði hann, þessi sjúkdómsgreining má ekki vera rétt. Það verður að gerast kraftaverk. Janine má ekki verða algjörlega örkumla, hún verður að geta talað aftur, staðið upp, gengið .... orðið mannvera ... Hann reyndi að bægja frá sér þekkingu sína, setningarn- ar úr kennslubókinni, sem þrengdu sér inn í huga hans: Hafi lömun, sem beinist þvert á hrygginn orsakazt af valdbeit- Framhald á bls. 49. - SAKAMÁLAIÖGREGLAN í BERLÍN HEFUR HANDTEKIÐ OFBELDIS- EVIANN OG ÞAR AF LEIÐANDI AF TILVILJUN KOMIZT AÐ ÞVÍ AD ÖNN- UR KGNA VAR JÖRÐUÐ í STAÐ JANINE SIEBERT. 20. tbi. VIKAN 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.