Vikan


Vikan - 14.05.1969, Síða 32

Vikan - 14.05.1969, Síða 32
Coco Chane! Framhald af bls. 21. sér leiðast, mundi hún eftir brúðunum, sem hún hafði leikið sér að í bernsku. Hún tók að klippa sundur efni og gera alls konar tilraunir i sambandi við kjóla og fatnað. Hún kunni ekki að sauma, en samt tókst henni að setja saman kjól handa vinkonu sinni, sem vildi vera í einhverju „nýju og frumlegú* í helgarferð til Deauvilie. Gabriella fékk saumakonu til að sauma kjólinn eftir sínum teikningum og fyrir- mælum. Þegar vinkonan kom aftur eft- ir þriggja daga ferð, varð Gabri- ellu hverft við, þegar hún sá, að kjóllinn hafði gersamlega breytt um lit í sólinni. Efnið hafði sem sagt ekki þolað sólina. Það var heimskulegt af mér að útbúa kjól úr þessu efni, hugsaði hún með sér. En þar skjátlaðist henni. Vin- kona hennar var í sjöunda himni yfir kjólnum. — Ég var eina konan í Deau- ville, sem var í kjól úr svona efni og með svona óvenjulegu sniði. Það horfðu allir á mig og dáðust að kjólnum mínum. Hún grátbað vinkonu sína um að útbúa fleiri kjóla handa henni. Gabriella spurði Arthur, hvað honum fyndist um þetta nýja tómstundastarf hennar. — Að vísu er þetta ekki starf fyrir konur að mínu áliti, sagði hann. — En ef þig langar ákaft til að gera þetta, þá skal ég hjálpa þér, Coco mín. Hann kallaði hana alltaf Coco eftir hesti á Longchamps. Þetta gælunafn varð síðar hið fræga vörumerki hennar. í Rue de Cambon í París var ofurlítil verzlun með skilti, sem á stóð „Pour Louer“. Þessi verzl- Gölfteppi ifir allt ðólíil efla siHi ibdpí?_______________________________________ Teppadreglar frá enskum og íslenzkum verksmiðjum - breidd- in er 365 cm svo engin samskeyti myndast á miðju gólfi. Góðir greiðsluskilmálar. Mikið úrval af Ryateppum, Axminster og Wiltonteppum. Laugavegi 31 - Sími 11822 | un varð verkstæði Coco Chanel og var það í mörg ár. Arthur keypti þessa litlu búð handa henni 1912. Hún réði til sín tvær ungar stúlkur, sem sögðust kunna að sauma. Á þessum tíma ein- kenndist tízkan í París af skrauti og íburði. Paul Poiret var hinn mikli tízkukóngur þessa tíma. Þá voru lífstykkin i algleymingi og allur klæðnaður kvenna hafður fyrirferðarmikill og óþægilegur. Hin óþekkta Coco sendi gjörólík- an klæðnað á markaðinn. Kjól- ar hennar voru einfaldir en stimt glæsiiegir og vöktu þegar mikla athygli. Fyrr en varði var fullt út úr dyrum á hverjum degi í litlu búðinni í Rue de Cambon. Fyrri heimsstyrjöldin gjör- breytti heimsmyndinni, og þegar henni var lokið sökk skip tízku- kóngsins Paul Poirets. Coco stofnaði nýtt fyrirtæki í Deau- ville og vann að því öllum árum að breyta tízkunni sem mest. Hún framleiddi stutta kjóia, sem sýndu fótleggi kvenna alveg upp að hnjám, en það þótti mikil bylting á þeim tíma. Og hún tók að sauma kjóla úr efnum, sem áður höfðu ekki þekkzt og voru miklu léttari, litríkari og með- færilegri á allan hátt. Vetrardag nokkurn, þegar svalur vindur blés um Long- champs, fékk Coco lánaða peysu hjá hestastráknum. Það leið ekki á löngu, þar til hver einasta kona í París vildi ganga í peysu. Coco hafði mikið yndi af hestum, eins og áður hefur verið sagt. Hún veitti því snemma eftirtekt hversu erfitt var fyrir konur að stunda hestamennsku í pilsum. Allt í einu fékk hún nýja hug- mynd. Hvers vegna máttu kon- ur ekki ganga í buxum? í fyrsta skipti í veraldarsögunni naut konan þeirra réttinda, sem höfðu verið séreign karla í aldaraðir: að ganga í buxum. Það var Coco sem stóð fyrir hverri einustu breytingu sem varð á sviði tízkunnar. Milljón- ir kvenna um allan heim fylgd- ust með hverri hreyfingu hennar með aðstoð blaðanna. Dag nokk- urn brenndi hún sitt síða og fall- ega hár fyrir hreina slysni, og neyddist til að klippa það. Fyrr en varði voru næstum alla konur í París orðnar stuttklipptar! Coco hafði sem sagt fulla ástæðu til að vera ánægð og hamingjusöm. Henni hafði tekizt að leggja hinn fræga tízkukóng Poiret að velli. Hún hafði skap- að nýja tízku og græddi á tá og fingri. En þá tóku örlögin í taumana og sviptu hana allri ánægju af velgengni sinni. Dag nokkurn barst henni sú fregn, að elskhugi hennar, Arthur Capel, hefði lát- izt í bílslysi. Tízkuprinsessan, sem allt Frakkland dáðist að, hafði misst prinsinn sinn og var aftur orðin ein og yfirgefin. Til þess að reyna að gleyma sorg sinni og örvæntingu gerðist hún framtakssamari en nokkru sinni fyrr. Einnig tók hún að, stunda skemmtanalífið miklu meir en áður. Hún varð miðdep- illinn í hópi listamanna Parísar. Listamenn eins og Salvador Dali, Picasso og Cocteau voru daglegir gestir hjá henni, og ef þeir voru í fjárþröng, sem oft bar við, skrifaði hún ávísun fyrir þá á stundinni. — Coco hefur gert meira fyrir okkur en nokkur annar, sagði Picasso nýlega. — Við hefðum líklega allir soltið í hel, ef við hefðum ekki notið aðstoðar hennar. Hún varð stöðugt áræðnari á viðskiptasviðinu og ákvað meðal annars um þessar mundir að setja nýja ilmvatnstegund á markað- inn. Ilmvatnssérfræðingur í Grasse við Cannes bauð henni að velja úr tíu nýjustu uppfinn- ingunum, sem hann hafði gert. Coco valdi fimmtu flöskuna, sem hann rétti henni. — Ég vel alltaf það, sem stend- ur í einhverju sambandi við fimm, sagði hún. — Það er happatalan mín. Hún kallaði nýja ilmvatnið Chanel Nr. 5 og það leið ekki á löngu, þar til það varð mest selda ilmvatn í víðri veröld. Nú er það selt í 140 löndum. Og enda þótt hún eigi það ekki leng- ur, því að hún seldi réttinn á því 1924, þá á hún enn hlut- deild í því. f hvert skipti sem kona strýkur dropa af því á bak við eyrun, fjölgar peningunum í pyngju Coco. Hún saumar kjóla fyrir marg- ar af frægustu konum í Evrópu. Hertogaynjan af Windson, her- togaynjan af York, Barbara Hutton og Marina prinsessa láta sauma alla kjóla sína hjá Coco Chanel í París. Og hverja ein- ustu stúlku í heiminum dreymir um að eignast föt, sem framleidd eru hjá henni. Það má með sanni segja, að Coco Chanel hafi skapað útlit nútímakonunnar. Hún losaði hana við lífstykki, skraut, strúts- hatta og annan klæðnað, sem óþægilegt og þvingandi- var að vera í. Það er henni að þakka, að konur geta nú klæðzt einföldum fötum en smekklegum, léttum og þægilegum. Og það er einnig henni að þakka, að múrinn milli ríkra kvenna og fátækra hefur verið rifinn niður. Nú verður sem betur fer ekki lengur séð á klæðnaði konu, hvort hún er rík eða ekki. Þrátt fyrir allt þetta er Coco sjálf einmana og óhamingjusöm. Örlögin veittu henni þó enn eitt tækifæri til að höndla ham- Framhald á bls. 36. 32 VIKAN 20- tbL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.