Vikan - 14.05.1969, Page 33
Þú hefur tilhneigingu til að tala um áhugamál þín
við hvern sem er; þessi ósiður hefur vakið andúð hjá
ýmsum, sem æskilegast væri að losna við. í>að er
nauðsynlegt að þú gerir upp gamla skuld.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Svo getur farið að vanhugsað verk i byrjun vik- unnar geti reynzt þér erfitt viðureignar þegar frá líður. Gerðu háar kröfur til sjálfs þín og slakaðu ekki á.
Tvíburamerkið f22. maí — 21. júní): Eyddu ekki orkunni til ónýtis og hagræddu verk- efnum þínurn. Vertu ekki of smámunasamur, það fer illa með taugarnar. Það blæs ekki byrlega fyrir vinum þínum; það er í þínu valdi nð aðstoða þá.
% Krabbamerkið (22. júnf — 23. júlí): Þér er mikil nauðsyn á að brydda upp á nýungum, sem vekja áhuga á störfum þínum. Þú munt þurfa að kafa djúpt til að fá lausn á vandamálunum. Þú eignast nýjan vin. Bezt er að vera heima um helgina.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Ráðlegt er að taka sér hvíld frá störfum um stund, og ef það er ekki hægt, breyta þá lífsvenjunum ofurlítið. Þú lendir í ævintýri, sem vekur hjá þér stóra spurningu. Miðvikudagur happadagur.
Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september): Líkur eru á mótbyr í vikulokin, og sú andstaða er þér sjálfum að kenna. Annars verða dagarnir hver öðrum líkir og þér gengur vel í starfi. Nokkuð ræt- ist úr á fjármálasviðinu.
Vogarmerkið (24. september — 23. október) Láttu ekki á þig fá þótt þú heyrir sögur sem hafa elcki við rök að styðjast. Vertu varkár og gefðu ekki loforð í fljótheitum. Reyndu að vera hlutlaus í fjölskyldudeilum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Allar líkur benda til þess að þú farir í ferðalag, sem verður þér til mikillar ánægju. Útgjaldaliðirnir eru nokkuð hærri en þú áætlaðir. Þér sinnast alvarlega við starfsfélaga þinn.
Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Farðu eftir eigin höfði í ákveðnu máli og kærðu þig ekki um hvaö aðrir segja. Ákveðið vandamál mun leysast á auðveldan máta. Þú bryddar upp á nýungum sem hvarvetna verður vel tekið.
$ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Eftir skamman tima stendurðu andspænis tveim kostum. Þér mun veitast erfitt að velja réttu leið- ina, nema þú fáir utanaðkomandi hjálp. Farðu gæti- lega í umferðinni, sérstakleg? rð kvöldlagi.
y«20®^ Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): A vinnustað gerast miklar breytingar sem eru fólgn- efa, til happs. Þú færð tækifæri til að efla aðstöðu þína, ef þú gætir þess að slá út trompinu á réttum tíma. Fjölskyldunni bætist góð eign.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Á vinnustað gerast miklar breytingar sem eru fólgn- R ar í meiri hagræðingu og mannaskiptum. Án efa ■ muntu fagna þessum breytingum, þvf þær eiga H einnig að auka tækifæri þín.
Ronson
HABÞURRKA HEIMILANNA
TILVALIN FERMINGARGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK
20. tbi. VIICAN 33