Vikan


Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 33

Vikan - 14.05.1969, Qupperneq 33
Þú hefur tilhneigingu til að tala um áhugamál þín við hvern sem er; þessi ósiður hefur vakið andúð hjá ýmsum, sem æskilegast væri að losna við. í>að er nauðsynlegt að þú gerir upp gamla skuld. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí); Svo getur farið að vanhugsað verk i byrjun vik- unnar geti reynzt þér erfitt viðureignar þegar frá líður. Gerðu háar kröfur til sjálfs þín og slakaðu ekki á. Tvíburamerkið f22. maí — 21. júní): Eyddu ekki orkunni til ónýtis og hagræddu verk- efnum þínurn. Vertu ekki of smámunasamur, það fer illa með taugarnar. Það blæs ekki byrlega fyrir vinum þínum; það er í þínu valdi nð aðstoða þá. % Krabbamerkið (22. júnf — 23. júlí): Þér er mikil nauðsyn á að brydda upp á nýungum, sem vekja áhuga á störfum þínum. Þú munt þurfa að kafa djúpt til að fá lausn á vandamálunum. Þú eignast nýjan vin. Bezt er að vera heima um helgina. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Ráðlegt er að taka sér hvíld frá störfum um stund, og ef það er ekki hægt, breyta þá lífsvenjunum ofurlítið. Þú lendir í ævintýri, sem vekur hjá þér stóra spurningu. Miðvikudagur happadagur. Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september): Líkur eru á mótbyr í vikulokin, og sú andstaða er þér sjálfum að kenna. Annars verða dagarnir hver öðrum líkir og þér gengur vel í starfi. Nokkuð ræt- ist úr á fjármálasviðinu. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Láttu ekki á þig fá þótt þú heyrir sögur sem hafa elcki við rök að styðjast. Vertu varkár og gefðu ekki loforð í fljótheitum. Reyndu að vera hlutlaus í fjölskyldudeilum. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Allar líkur benda til þess að þú farir í ferðalag, sem verður þér til mikillar ánægju. Útgjaldaliðirnir eru nokkuð hærri en þú áætlaðir. Þér sinnast alvarlega við starfsfélaga þinn. Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Farðu eftir eigin höfði í ákveðnu máli og kærðu þig ekki um hvaö aðrir segja. Ákveðið vandamál mun leysast á auðveldan máta. Þú bryddar upp á nýungum sem hvarvetna verður vel tekið. $ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Eftir skamman tima stendurðu andspænis tveim kostum. Þér mun veitast erfitt að velja réttu leið- ina, nema þú fáir utanaðkomandi hjálp. Farðu gæti- lega í umferðinni, sérstakleg? rð kvöldlagi. y«20®^ Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): A vinnustað gerast miklar breytingar sem eru fólgn- efa, til happs. Þú færð tækifæri til að efla aðstöðu þína, ef þú gætir þess að slá út trompinu á réttum tíma. Fjölskyldunni bætist góð eign. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Á vinnustað gerast miklar breytingar sem eru fólgn- R ar í meiri hagræðingu og mannaskiptum. Án efa ■ muntu fagna þessum breytingum, þvf þær eiga H einnig að auka tækifæri þín. Ronson HABÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN FERMINGARGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK 20. tbi. VIICAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.