Vikan


Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 43

Vikan - 14.05.1969, Blaðsíða 43
r V PIRA-SYSTEM HIN FRÁBÆRA NÝJA HILLUSAMSTÆÐA ER í SENN HAGKVÆM OG ÖDÝR Það er ekki margt, sem hefur lækkað í verði að undanförnu. Það liafa PIRA hillusamstæðurnar gert sökum hagræð- ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nefn- ið til livers þcr þurfið hillur og PIRA er svarið. Odýrustu bókahillur, sem völ er á, hillur og borð í barnaherbergi, í vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið. Sjáið myndina; hér þar er skipt á milli borðstofu og stofu með PIRA-vegg. Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA hillusamstæður geta staðið upp við vegg, eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf- ur eða naglar til að skemma veggina. Notið veggrýmið og aukið notagildi íbúðarinnar. PIRA hillusamstæðurnar eru lausn nútímans. HÚS OG SKIP hf. Ármúla 5 — Sími 84415 — 84416 henni ljóst að Anita yrði sjálf að ráða sínum gjörðum. Stella vissi það. En Anita var litla systir henn- ar. Hún fór inn í dagstofuna, þar var Frank að lesa blöðin. — Anita er litla systir mín, sagði hún blátt áfram. Frank lagði blaðið frá sér. — En litla systir þín er fullorðin kona. — En þetta með að fara ein út í sveit. Þú heldur þó ekki ... — Ég held að þau komi mjög seint heim, Stella. Það er allt og sumt. Láttu hana hafa lykil að- húsinu, það veitlr henni meira sjálfstæði. — Það getur verið. En þú hefðir ekki þurft að minnast á vatnið. — Þú hefir þá skilið mig, er það ekki elskan? Hann stóð upp, tók hana í faðm sinn, greip um öxl hennar, á þennan sérstaka hátt, alveg eins og hann hafði gert tíu árum áður, við vatnið. Það vakti alltaf með Stellu sömu öryggistilfinninguna og hún hafði fundið daginn sæla. Frank vissi það líka. Stella ýtti honum frá sér. — En ég vil ekki að Anita geri eitthvað sem hún þarf að iðrast eftir. — Hefir þú þurft þess? — Það er ekki það sem ég á við, og þú veizt það. Hún færði sig frá honum. — Ég man daginn sem Anita fæddist. Ég var níu ára og ég var yfir mig hrifin, og hafði of- urást á henni. Hún var aðeins tiu ára þegar við giftumst, og eftir það sá ég hana sjaldan, þangað til nú. Hún átti erfitt með að skilja að Anita var fullorðin, og stund- um var það líka erfitt að skilja að faðir þeirra var látinn. En þetta var samt staðreynd sem hún átti erfitt með að skilja, vegna þess að hún hafði verið svo lengi fjarvistum frá þeim. — Jæja, ég verð að horfast í augu við það að Anita sé full- vaxin kona. — Já, sagði Frank, — og hún verður að ráða málum sínum sjálf. — Það er svo bezt að hún velji rétt. — Nei, aðeins að hún ráði sjálf. Hann horfði á hana. — Þú varst aðeins nítján ára, þegar þú valdir. — Við höfum líklega verið mjög heppin, að við skulum vera svona hamingjusöm; Anita er svo áhyggjulaus og fjörug, svo elskuleg og saklaus. Mikið frek- ar en ég held að ég hafi verið. Áður en þau gátu sagt nokkuð fleira, komu börnin hlaupandi inn, með sín vandamál. Svo hringdi síminn og störfin tóku við, hvert af öðru, svo Stella leiddi ekki hugann að Anitu fyrr en síðdegis. Stella sat við sauma, þegar litli bíllinn hans Mike rann að dyrunum. Stella leit út um glugg- ann, undrandi yfir því að þau voru komin svona snemma. Anita stökk út úr bílnum og þaut upp gangstíginn. Mike tók bílinn aft- ur af stað, með drunum. Hún rakst á Frank, þegar hún kom inn, en hún lét sig engu skipta og þaut upp á loft. Frank fór inn í stofuna til Stellu. — Þau hafa rifizt, Frank, sagði Stella. — Kannski ætti ég að fara upp til hennar og vita hvað er að. — Þú lætur það vera, sagði Frank. — Það eru þau sem eru ekki á sama máli. Ekki þú, — þau .... — Ég fer nú samt. Stella lagði frá sér saumana. Hún hlustaði við dyr Anitu, áður en hún barði. Það heyrðist ekkert hljóð, en Stella bjóst við að heyra grát- hljóð. — Hvað er það, sagði Anita, og rödd hennar var hrjúf, en ekki grátklökk. — Má ég koma inn? Þetta er Stella. — Já, Stella. Anita sat í stól rvið gluggann. Andlitið var hörkulegt, en augun þurr og hakan ákveðin. Hún var ekki að gráta og alls ekki þessleg að fara að gráta. — Ég var svo hrædd um að eitthvað hræðilegt hefði skeð, sagði Stella, -— þegar þið komuð svona snemma heim. — Það skeði líka nokkuð hræðilegt. Ég eyðilagði daginn fyrir honum, það er allt og sumt. Ég gerði sjálfa mig að hræðilegu fífli. Ég fór að rifast við Mike út af auðvirðilegum smámunum. — Ja, ef það eru smámunir, þá ætti að vera hægt að kippa því í lag. — Nei, ég get ekki fengið mig til að viðurkenna að það séu smámunir. Nú er allt ómögulegt, búið.... — Hvað var þetta, í herrans nafni? — Ja, ég held ég elski Mike, og hann veit það, en hann segir að við getum ekki gift okkur strax, við séum ekki reiðubúin. Hefurðu heyrt aðra eins þvælu? Stella var agndofa. Litla syst- ir hennar í stríði við Mike, vegna þess að liann var of varkár. — Ég verð að segja ag mér finnst tímarnir hafi breytzt. Ég býst við því. En þú hef- ir líklega aldrei þurft að horf- ast í augu við svona vandræði. — Tímarnir hafa ekki breytzt svo mjög, Anita. — Ó, Stella, ég vildi óska að ég væri miðaldra og ráðsett eins og þú, og komin yfir alla þessa angist vegna ástarinnar. Stella tók andköf. — Miðaldra? Ég er nú varla komin á efri ár, Anita. Ég er tuttugu og átta ára og Frank er þrjátíu og eins. Við erum ekki beinlínis á grafar- bakkanum. — En þið Frank eruð komin yfir alla þessa kvöl. Þið eruð hamingjusöm í hjónabandi, þú veizt hvað ég á við. Miklar freist- ingar, miklir möguleikar.... — Já, það segir Bernhard Shaw. Þú heldur að við séum komin yfir allt slíkt. — Eruð þið það ekki. Og þá, þegar öllu er lokið, höndin bœr- ist ekki.... Þetta er úr ljóði Stella. — Já, sagði Stella, — ég veit það. Blóðið storknað. Við heyr- um aðeins töluð orð, Trompetar ómuðu áður, en nú er hold að- eins hold, áður var það eldur. Hún varð meyr, þegar henni kom ljóðið í hug. En hún varð að segja það sem hún ætlaði sér við Anitu. — í hamingjunnar bæn- um, Anita. Það heyrir til nítján ára aldrinum að lesa ljóð eftir Rupert Brooke. Ég man ekki ljóðið, en ég get fullvissað þig um að hann orti þetta ekki um okkur Frank. Þetta ljóð á ekki við okkur. Hún brosti og hristi höfuðið. — Komdu nú, ef þú hefir átt í erjum við Mike, þá gerðu það gott aftur, það er ef þér sjálfri finnst það þýðingar- mikið. — Það er einmitt það, Stella, ég er ekki viss um hvort það er þýðingarmikið eða ekki. — Þú kemst fljótlega að því, sagði Stella, og flýtti sér út. Hvaða hugmyndir hafði Anita um hana? Miðaldra og búin að vera? Sumarið sem þau Frank hittust, var sama sumarið sem hún fékk ofurást á ljóðum eftir Rupert Brooke. Hún las þau upp- hátt fyrir Frank, og hann sagði að Brooke lýsti dögum þeirra við vatnið nákvæmlega .... Hún var búin að gleyma ljóðinu. Þegar hún kom inn í dagstof- una fór hún að leita að ljóða- bókinni. Það var eintak sem Frank hafði gefið henni og hann hafði skrifað brot úr einu ljóðinu á titilblaðið, og bætt við: Þetta segir allt, sem ég hugsa, ef ég gæti sett það fram á þennan hátt. Hún mundi ekki ljóðið, en hún mundi orðin sem Frank hafði skrifað. Bókina fann hún hvergi. Hún 20. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.