Vikan


Vikan - 14.05.1969, Page 47

Vikan - 14.05.1969, Page 47
ar 1969“. Kom það þó greinilega fram á skemmtuninni, að allar hljómsveitirnar hlutu þennan tit- il, því að allar fengu þær bikara og allir voru bikararnir jafn stór- ir. Að vísu veittu Hljómar sínum bikar fyrstir viðtöku, og kann misskilningur blaðamannsins að vera frá því sprottinn. Ungum manni frá Bítlafyrir- tækinu Apple, Tony Branwell, var boðið að vera viðstaddur skemmtunina, og lét hann svo um mælt, að allar hljómsveitirn- ar, sem fram komu, væru fyrir ofan meðallag miðað við brezkan „standard“. Segir þetta nokkuð um ágæti hinna þriggja hljóm- sveita ungu kynslóðarinnar 1969. ☆ Framhald af bls. 23. Bragðið hafði keim af hrafnaklukku, salvíu og myntu, og keimurinn minnti á vorið. Angelique varð yfir sig hrifin af þessari lind. 1 upphafi ferðarinnar hafði hún reynt að koma Mopuntook i skilning um, að hún igæti ekki farið langt frá varðstöðinni. En síðar varð hún að hverfa frá því, vegna þess að þau höfðu ferazt svo langt og í svo miklum hlykkjum, að hún óttaðist að villast, ef hún viki frá honum. Nóttin var að falla á, þegar hún nálgaðist varðstöðina aftur á hælum þessa stóra, rauða manns. Hún var kúg-uppgefin. Enn einu sinni var áköf leit að Madame de Peyrac að hefjast. Mopuntook skálmaði um, sérlega ánægður með þennan dag vatns- könnunar og fagnaði yfir því, hve Angelique hafði sýnt eindregna hæfi- leika til að þekkja sundur gott vatn og slæmt. Virðulega, en þó kump- ánlega, lagði hann verndandi handlegg um öxl de Peyracs, sem ekki var ýkja hrifin af, og lét í ljósi igleði sína. Hann sagði að hvíta konan væri, náttúrlega, eins og allar aðrar kon- ur, full þrá, og henni hætti til að láta of mikið í það skina, að karl- maðurinn vissi ekkert ihvað hann væri að tala um, en hún þekkti gott lindarvatn og gæti greint milli hinna ýmsu vatnstegunda af bragðinu. Þetta væri mikill hæfileiki, blessaður hæfilei'ki. Hann, höfðinginn við Umbagogvatn, ekki langt undan, vonaði að ihvíta fólkið yrði um kyrrt við Silfurvatnið lengi, og að Appalachianslóðin yrði opnuð á ný, slóðin sem Indíánarnir fylgu meðan þeir verzluðu, milli miklu árinnar í norðri og stranda Atlantshafs. 1 ljós kom, að deginum hafði verið vel varið. Og þegar næsta dag komu nokkrir Metallakkar og töldu heppilegt, að hvitu mennirnir slægjust í félag með þeim um síðustu stórveiðarnar, áður en veturinn gengi í garð. Hvítu mennirnir kæmu með byssur sín- ar, byssupúður og skotfæri, en fengju i staðinn sinn hlut af veiðidýrun- um, sem næðust. E'lgsdýrin, sem um sumarið höfðu haldið sig í Kanada, voru nú á leið í áttina til veðurmildari svæða Maine. Þegar Mopuntook kom aftur heim frá Wapassou hafði hann veitt mönnum sínum þungar ákúrur fyrir leti og ómennsku einmitt á þeim tíma, sem meira væri um veiði- dýr en endranær, og benti þeim á að það væri þeirra eigin værukærð, sem ætti sök á hallærunum, sem á hverjum vetri hjó drjúgt skarð i raðir þeirra. Þeim fyndist þeir ævinlega hafa nógar birgðir, en þær reyndust aldrei duga allan veturinn á enda. Þar að auki hafði Mopun- took dreymt: Hann dreymdi að andinn mikli segði honum að skipu- leggja síðustu veiðiferð haustsins og bjóða hvítu mönnunum frá Silfur- vatni með, þeim sem staðið höfðu uppi í hárinu á herskáum írokunum og sloppið lifandi með hárið á höíðunum, í krafti tungulipurðar sinnar og töfra! Það þurfti svo sannarlega nokkuð til að hafa Irokana ofan af hefndarhyggju sinni! Hvítu mennirnir höfðu goldið manngjöld með því að kveikja i öllum sínum bingðum. Síðan lét hann fylgja upptalningu á öllu því fágæti, sem þar ihafði verið fórnað i logunum, upptalningu sem Metallakkarnir endurtóku eins og ljúfan bænasöng og nutu hvers orð. Hundrað baggar af loðfeldum, koníak, rauð teppi og svo framvegis. Þrumumaðurinn átti engan sinn jafningja í hópi hvítra manna. Hann bjó yfir sérstöku valdi. Betra að vingast við hann. Mopuntook og fóik hans, ættflokkarnir umhverfis Umbagogvatnið, ætluðu að taka hann undir sinn verndarvæng. Nicolas Perrot, Florimond, Cantor og einn Englendinganna fóru með Indiánunum fjórar eða fimm dagleiðir til vesturs, til mestu veiða árs- ins, en þeir sem eftir voru einbeittu sér að þvi að ljúka störfunum heima fyrir. Þegar veiðiflokkurinn kom aftur frá Umbagogvatni í lok fyrstu viku nóvember, hófst nýtt annatímabil: Að koma þessum viðbótarbirgðum matar í hæfilega geymslu. Að þvi loknu álitu þau, að nú hefðu þau nægilegt til að lifa af veturinn. Með nokkurri heppni, góðu vori og ein- hverri gildruveiði um veturinn, myndu þau hafa þetta af. Eloi Macollet kinkaði kolli, bjartari í bragði en hann hafði verið um ihríð. — Kannski þurfum við ekki að éta hvert annað, þegar allt kemur til alls. SDÉSAR9 iTCHCOGKSi ANNAÐ HEFTI KOMIÐ ÚT 10 SPENNANDI OG SKEMMTILEGAR SAKAMÁLASÖGUR Alfred Hitchcock er löngu orðinn heimsfrægur fyrir kvik- nyndir sínar, sjónvarpsþætti, sögusafn og margt fleira. Allt sem frá hans hendi kemur hefur sömu eiginleika til að bera: í því er fólgin hroll- vekjandi spenna með skoplegu ívafi. — Hit- chcock fæddist í Lond- on 13. ágúst 1899. Hann var við nám í verk- fræði, þegar honum bauðst vinna við kvik- myndir og lagði þá námið þegar í stað á hilluna. Hann nam leik- stjórn á örskömmum tíma og var fyrr en varði kominn í hóp áhrifamestu leikstjóra. Kvikmyndir og sjón- varpsþættir Hitchcocks skipta hundruðum og mánaðarlega gefur hann út í geysistóru upplagi smásagnasafnið Hitchcocks Mystery Magazine. Sögurnar í þessu safni eru allar valdar úr því. Þær eru gæddar beztu sostum Hitchcocks, í senn spennandi og skemmtilegar, þannig að ógerningur er að slíta sig frá þeim fyrr en þær eru á enda. Fæst á næsta sölustað. HILMIR HF. - SKIPHOLTI 33 PÖSTHÖLF 533 - SÍMI 35320 - REYKJAVÍK V---------------------------------------/ — Hvað ertu að segja, maður! En sú hugmynd! •— Það hefur komið fyrir, skal ég segja þér, frú mín góð. Og hann var ekki að gera að gamni sínu. Þegar Angeiique heyrði hann segja þetta, varð hún allt í einu gripin kvíða. 1 huga hennar toguðust á vellíðunin, sem fegurð þessa staðar veitti henni og eðlilegur geigur við það, sem þau áttu í vændum og hve illa þau voru undir það búin að mæta því. Þessir karlar, og fáeinar konur yrðu að hírast saman í svona litlu hreysi með ófullnægjandi mat- arbirgðir, með engin lyf, búandi í algerri einangrun langt frá manna- slóðum, og svo voru það börnin, veikbyggðari en fullorðna fólkið. Allt varð þetta að lifa af veturinn. 39. KAFLI Joffrey de Peyrac hafði ekkert sagt, þegar hann sá Angelique takast á hendur það erfiða verk að reykja ketið. Hún hafði á tilfinningunni að hann fylgdist með henni úr fjarska og var staðráðin i að reynast alls trausts makleg. — Lætur hann sér detta í hug að ég sé gagnslaus og að ég muni standa álengdar fjær með krosslagðar hendur? Þau þurftu að vinna upp heilt ár. Hafði hann ekki sjálfur sagt það? Og nú áttu þau varla nema garmana sem þau stóðu i. Hvilíkt leynilegt fagnaðarefni væri henni ekki að hjálpa honum að komast af, hjálpa honum að sigra, þegar hún hafði ekkert getað þjónað honum lengi. Sú tilhugsun að vinna fyrir hann, hörðum höndum og gera þannig eins konar yfirbót fyrir ótryggðina áður fyrr, gerði Angelique bjarta í augurn. Og allt harðréttið varð henni auðvelt. Suma hluti getur ekkert sannað nema tíminn og þess á meðal er tryggð í ástum. Hún var ákveðin í að rífa niður þann tortryggnismúr, sem stundum virtist standa írammi fyrir Joffrey de Peyrac í viðskiptum hans við hana. Hún ætlaði að sanna honum að hann væri henni allt í öllu og hún myndi á engan hátt takmarka frelsi hans sem manns, né 20. tbl. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.