Vikan


Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 32

Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 32
Þvottavélar 2 oerOir. KæHskáoar 5 stærQir. ZANUSSI er bozta valifl ILUKIrll M2 Snorrabraut 44 - sími 16242 STJÖRNUSPÁ ,v!a Nfc A|A a TPT Tfv 9 -• n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Mál, sem þú hélzt að væri útrætt, krefst nú um- ræðu, vegna nýrra viðhorfa. Þér gefst ekki mikill tími til að sinna einkamálum þínum. Þú skalt gerast djarfari en hingað til; þú hefur trompin á hendinni. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú er einstaklega pirraður og óánægður eins og stendur. Þú skalt kappkosta að komast eitthvað burtu til að létta þér upp. Þú hefur áhyggjur af persónu, sem þú berð ábyrgð á, að ástæðulausu. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Margt fer öðruvlsi en ætlað er, en þú munt þó sætta þig við öll málalok. Þú færð þakklæti i einhverri mynd fyrir greiða, sem þú gerðir fyrir langa löngu. Það verður fremur drungaiegt og leiðinlegt um sinn. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú ert alltof eigingjarn og sjálfselskufullur, gættu þess að þú særir ekki þá, sem þér eru kærir, með þessum ágöllum þínum. Þú ert líklegur til að hagn- ast á einhverju braski, en leggðu ekki mikið fé í það. iH? Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður fyrir óhappi í sambandi við atvinnutæki þitt. Þú skalt hugleiða vel allar aðstæður, áður en þú ræðst í framkvæmdir. Vanræktu ekki vini þína og ættingja. Gerðu þér dagamun rétt bráðlega. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það er nokkuð erfitt tímabil framundan hjá þér, vegna hlutar, sem brugðizt hefur. Einbeittu þér að verkefnum þínum, og, ef þú ert allur af vilja gerð- ur, muntu komast yfir þessa erfiðleika með sóma. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú þarft að taka að þér störf einhvers annars og hagnast líklega töluvert á því. Þú ættir að sinna meira fjölskyldu þinni og heimili en þú gerir. Þú gerir góð viðskipti við góðan kunningja þinn. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú verður fyrir smáhappi, sem hefur talsverða þýð- ingu fyrir þig, persónulega. Þú færð góðar fréttir langt að komnar. Þú kynnist eldri manni, sem innan skamms mun gerast góður ráðgjafi og hollur félagi. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vertu hress og glaður, hvað sem á dynur, það mun bæta mikið um fyrir þér. Þú kemst yfir fróðleik af einhverju tagi, sem tekur hug þinn allan. Þú lendir fyrir tilviljun á stað, sem þú hefur ánægju af. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú ert i góðu jafnvægi og nýtur þess sem þú að- hefst. Vinur þinn leitar ráða hjá þér og skaltu lið- sinna honum þótt þú fórnir nokkrum tima til þess. Gættu þess að skemmta þér ekki úr hófi fram. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú hefðir mikið yndi af því, að vera veitandi og láta aðra njóta lífsins á þinn kostnað. Þér býðst gott tækifæri til að afla þér vasapeninga. Þú ættir að stytta þér stundir við áhugamálin, þó eitthvað kosti. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vinir þínir koma þér á óvart, með vel undirbúnu uppátæki. Þú verður fyrir skemmtilegri tilviljun, tekinn fyrir allt annan en þú ert, og getur það orðið til góðs fyrir þig. Skyndileg gestkoma á laugardag. 32 VIKAN 8- tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.