Vikan


Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 25

Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 25
KYNVILLA er eitt af þeim viðkvæmu fyrirbærum, sem ekki hefur þótt hæfa að fjalla um opinberlega til þessa. En nú á dögum er rætt og ritað hispurs- laust um þessi mál eins og hvað annað. Til marks um það má nefna, að hið virta bandaríska blað, TIME, tók kynvillu rækileg til meðíerðar fyrir skemmstu og birti táknmynd á forsíðu í tilefni þess. Blaðið reyndi að kryfja málið til mergjar, bæði sem þjóðfélagslegan vanda og persónulegt vandamál einstakl- inga. Ýmsar fróðlegar upplýsingar var þarna að finna, sem ekki höfðu verið birtar áður. Samkvæmt Kinsey-skýrslunni frægu áttu 10% karlmanna í Banda- ríkjunum að hafa verið kynvilltir einhvern tíma á ævinni, en 4% alla ævi (2% kvenna). Blaðið telur líklegt, að þessar tölur hafi lítið breytzt, og kynvilla fari því ekki að neinu ráði í vöxt. Hins vegar beri nú meira á starfsemi kynvillinga en óður og þeir geri minna til að leyna eðli sínu. Um 50 samtök þessa fólks munu nú vera starfandi í Bandaríkjunum og halda uppi margs konar starfsemi fyrir félagsmenn sína. TIME boð- aði einnig í áðurnefndu hefti ýmsa sérfræðinga á sinn fund til að rök- ræða um þetta viðkvæma mál. Þeir voru síður en svo sammála, en margir voru þeirrar skoðunar, að nýr skilningur á eðli vandans væri nauðsynlegur, og ekki væri lengur hægt að útkljá hann með bannfæringu og refsingum, eins og gert hefur verið hingað til. — Við brugðum okkur í bæinn snemma á þorr- anum og lögðum fyrir fólk á förnum vegi þessa spurningu: Hvaða augum lítur þú á kynvillu? SIGRÍÐUR GUNN- ARSDÖTTIR, hárgreiðslunemi: Þetta er sjúkt fólk, og mér finnst að það eigi að hjálpa því — og hveris vegna ekki með því að stofna fyrir það klúbba og þessháttar? TRAUSTI FRÍ- MANNSSON, vélvirki: Ég hef ekkert kynnt mér þetta, en frá einu sjónarmiði má t.d. segja að þetta sé brot á boð- orðunum og grundvall- aratriðum kristinnar trúar. HALLA HAUKSD., sendill: Ógeðslegt. SVEINN LARSSON, hljóðfæraleikari: Urkynjun. KRISTÍN PETER- SEN, nemi: Þetta er nú nokkuð sem fólk talar ekki um. EINAR MARKAN, söngvari: Mér finnst þetta vera einkamál manna og er ósköp normal sjálfur. En mér finnst líka að þetta fólk eigi að láta unglingana í friði. 8. tw. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.