Vikan - 19.02.1970, Blaðsíða 6
^JIIIIIIMIIIIIMMIIIIi
■■fcunniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii^
SKÓLA-
TIZKAN
SAFARI- og FÓTLAGA-
skórnir eru sportlegir
þægilegir með mjúkum
sóla. Yfirleðrið er í
tízkulitum ársins. Verð
og gæði við allra hæfi.
idlun
^IIIIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII^
GEFJ U NARGARN
^Tízkan í dag
Lifandi auglýsingar
í útvarpið
Kæri Póstur!
Mig langar til að skrifa þér
um hugmynd sem ég fékk um
daginn. Ég hef skrifað þér
nokkrum sinnum áður og að
minnsta kosti tvisvar sinnum
hefur þú birt bréfin frá mér, svo
að ég ætla að spreyta mig enn
einu sinni. Áður en ég kem að
efninu, vil ég færa þér beztu
þakkir fyrir ýmislegt gott efni,
sem þú hefur birt. Það má segja,
að alltaf sé eitthvað í Vikunni,
sem styttir manni stundir, mis-
jafnlega mikið að vísu, en sem
sagt alltaf eitthvað. Ég hef mikla
ánægju af ævisögum og öllu sem
við kemur fólki. Ég hef þess
vegna haft ánægju af ævisögu
Jacks London, sem þið eruð að
birta um þessar mundir. Auk
þess hef ég lesið margar af bók-
um hans og er mikill aðdáandi
þeirra. En eitt finnst mér vanta
tilfinnanlega hjá ykkur í seinni
tíð, og það er fastur heimilis-
þáttur eins og var hér einu sinni.
Væri ekki ráð að endurvekja
hann?
Og þá kem ég að hugmynd-
inni minni- Mér finnst auglýs-
ingarnar í sjónvarpinu líflegar
og skemmtilegar margar hverj-
ar. Reyndar skal viðurkennt, að
þegar maður hefur horft á sömu
auglýsinguna í hundraðasta sinn,
þá er maður búinn að fá algert
ofnæmi fyrir henni. En yfirleitt
eru þetta einu auglýsingarnar
sem veita manni ofurlitla
skemmtun um leið, og eru þar
af leiðandi áreiðanlega áhrifa-
ríkari en flestar aðrar auglýs-
ingar. En hvernig væri nú að
hressa ofurlítið upp á auglýsing-
arnar í útvarpinu líka? Þær eru
eins og kunnugt er allar í sama
virðulega jarðarfarartóninum.
Mætti ekki útbúa þær eitthvað í
líkingu við sjónvarpsauglýsing-
arnar, syngja þær eða láta leik-
ara flytja þær og svo framvegis?
Ég er sannfærð um, að auglýs-
ingagildi útvarpsins mundi þá
aukast að miklum mun. Eg kem
hér með þessari hugmynd minni
á framfæri, af því að ég hef
hvergi séð hana koma fram áð-
uð.
Að svo mæltu þakka ég fyrir
birtinguna og sendi ykkur mínar
beztu kveðjur.
H. P., Hafnarfirði.
Líklega brýtur það í bága við
núverandi reglugerð um auglýs-
ingar í útvarpi að hafa þær
sungnar og leiknar, eins og mað-
ur hefur heyrt hjá erlendum út-
varpsstöðvum. En gömlum lög-
um má alltaf breyta og við kom-
um hugmyndinni hér með á
framfæri.
Leiklistarnám
Kæri Póstur!
Mig langar að biðja þig að
svara nokkrum spurningum um
leiklistarnám fyrir mig. f fyrsta
lagi: Hvert á maður að senda
umsókn eða komast í samband
við leikfélag? Hvað þarf maður
að vera gamall? Hvaða menntun
þarf? Hvað er námið langt?
Ég vona, að þú getir hjálpað
mér um þessar upplýsingar
fljótt. Mér liggur á þeim!
Með fyrirfram þökk.
B. B.
Nú imin aðeins einn eiginlegnr
leiklistarskóli starfandi hér á
landi, og er það leiklistarskóli
Þjóðleikhússins. Xil skamms
tíma var annar skóli starfræktur
í Iðnó, en hann hefur nú verið
lagður niður, þar sem í ráði mun
vera að stofna einn allsherjar
leiklistarskóla, en ekki kunnum
við neitt frá því máli að segja
nánar. Til þess að verða teknir
í leiklistarskóla Þjóðleikhússins
þurfa nemendur að standast inn-
tökupróf, en sérstakar prófkröf-
ur munu ekki vera gerðar. —
Þá mætti einnig nefna Leiklist-
arskóla Ævars Kvarans, sem
margir hafa sótt sér til gagns.
Svar til XX:
Við erum þeirrar skoðunar, að
þú eigir að ganga hreint til verks
og spyrja hann, hver hugur hans
sé í raun og veru í þessu máli.
Þú segir, að hann sé bæði blíð-
ur og nærgætinn, og einmitt
slíku fólki hættir oft við að
hliðra sér hjá sannleikanum og
leika tveim skjöldum til þess að
valda ekki óþægindum. En sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
þú hefur fengið um hinn aðil-
ann, þá ættir þú að hafa mjög
góðar vonir. Þú skalt því vera
alveg óhrædd og fá úr málinu
skorið í eitt skipti fyrir öll. Hálf-
velgjan er bæði hættuleg og þér
finnst hún eðlilega niðurlægj-
andi, eins og fram kemur í bréfi
þínu.
6 VIKAN 8 tbl