Vikan


Vikan - 06.08.1970, Blaðsíða 16

Vikan - 06.08.1970, Blaðsíða 16
SMÁSAGA EFTIR KAREN BRASEN LESTIN frá Madrid nam staðar fyrir fram- an stöðina klukkan tvö um nóttina og blés síðustu stununa. Hún var komin að landa- mærastöðinni, og spánsku tollverðirnir stigu út og við tóku nokkrir Frakkar, sem litu lauslega á vegabréfin og þrykktu syfiulega skáhöllum stimplunum einhvers staðar á pappírinn. Lestarpallurinn var illa upplýst ur með tveimur gulum kolbogaljósum. Daníel slö skinnkraganum upp yfir eyr- un og lét sig aftur síga í skotið sitt. Hann þráði góðu, þægilegu íbúðina sína í París, heitt bað og rúmið sitt. Það hafði verið ó- gerningur að ná í svefnvagn, því að hann hafði ákveðið heimförina svo skyndilega. En kannski, hugsaði hann, gæti hann mútað svefnvagnsstjóranum til þess að láta sig fá koju. Hann opnaði augun til hálfs og sá, að kona var komin inn í klefann til hans. Hún settist gegnt honum í hinu horninu, stíf í baki, eins og hún væri að bíða eftir ein- hverjum. Hún var þreytuleg að sjá, og Daní- el þótti einkennilegt, að hún gæti haldið sér svona beinni í baki. Hún var klædd í ljós- brúnan frakka, með brúna hanzka og skó. Andlitið var langleitt og ögn of fölt, og eini liturinn, sem maður tók eftir á henni var sólgulur ullarklútur með svörtu ullarkögri, sem hún hafði bundið um höfuðið. Hárið á henni sá hann ekki. Við hlið hennar stóð lít- il ferðataska úr dökkbláu lérefti með brún- um leðurröndum. Hún var mjög snjáð, og það var ekkert nafnspjald á henni. Daníel lokaði aftur augunum. Lestin fór aí stað með hnykk og ók hægt burt frá stöð- inni, — hálfmyrkur brautarpallurinn hvarf í dimmuna. í sama bili heyrði hann konuna á móti sér andvarpa. Þetta var einkennilegt andvarp, sem kom Daníel til að opna augun á ný. Ósjálfrátt andvarp, eins og fullt þakklætis, og tein- rétta veran andspænis honum seig nú skyndi- lega niður í stólinn eins og örmagna. Hún hefur verið hrædd, flaug honum i hug, og það var ekki fyrr en lestin fór af stað, að hún var úr allri hættu. Hann horfði á hana taka af sér hanzkann ofurhægt. Hún var með fallegar hendur án nokkurs skrauts. Þá hneppti hún frá sér frakkanum, og í ljós kom gul ullarskyrta í sama lit og klúturinn, pilsið var gljáandi svart, og hún var ennþá grennri en hann hafði gert ráð fyrir í fyrstu. Síðan lyfti hún handleggjunum og strauk með báðum höndum gula klútinn niður á hálsinn. Hún var með fallegasta rauðgullna hár, sem hann minntist að hafa séð á nokk- urri konu fyrr. Það var stuttklippt með þéttri hálfbylgju rétt yfir boglaga, dökkum brúnum. Hún var í mesta lagi átján ára, hugsaði hann. Hún sá skyndilega, að hann var að horfa á hana, og hún lét strax hendurnar falla í skaut sér, eins og hlýðið barn. Hann starði hugfanginn í augu hennar, sem minntu hann á svartar fjólur í hálfrökkrinu. Daníel fór hjá sér. Hann var ekki vanur að glápa á fólk, en síðan hann fór frá Mad- rid hafði hann verið einn í klefanum, og auk þess var eitthvað mjög heillandi við þessa ungu stúlku. Honum virtist hún vera á flótta frá einhverri óþekktri hættu og væri því tortryggin í garð allra, sem nálægt henni komu. Daníel lokaði augunum og þóttist sofa, en hann gat ekki hætt að hugsa um hana. Hún bað hann um hjálp, en þögul ósk hennar um að fá að vera í friði, kveikti forvitni hans. Hann heyrði hana fitla við lásinn á Hún bað hann um hjálp, en þögul ósk hennar um að fá að vera í friði kveikti forvitni hans. Hann heyrði hana fitla við lásinn á tösku sinni í hálfrökkrinu og loka honum aftur, þar til allt varð hljótt. Var hún sofandi? Hann gauttil hennar augunum.... 1() VIKAN 32 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.