Vikan


Vikan - 06.08.1970, Qupperneq 34

Vikan - 06.08.1970, Qupperneq 34
<B> FRÁ RAFHA RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER ÍSVEQ2Z-24 302 80-322GZ SIJ'O RNÖSPÁ*^ y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vinir þínir koma þér á óvart með vel undirbúnu gamni. Þú lendir í mjög skemmtilegri aðstöðu fyrir misskilning og átt eftir að hafa mikið gaman af. Þú týnir hlut sem þér þykir vænt um. Nautsmerkið (21. apríl -- 21. maí): Þú ert í góðu jafnvægi og nýtur þess að vera til. Þú þarft á ráðleggingum að halda í vissu máii, en áður en þú tekur lokaákvörðun skaltu hafa undirstöðuna trygga, ekki með minnsta veikum punkti. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður fyrir happi sem hefur töluverða þýðingu fyrir þig persónulega. Þú færð góðar fréttir frá gömlum kunningjum sem staddir eru í fjarlægð. A laugardaginn færðu kærkominn gest. Heillatala er 7. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Eitthvað veldur þér vonbrigðum og skapar þér tals- verð aukaerfiði. Þú munt þurfa að takast á hendur erfitt verk, sem ólíklegt er að þú þurfir nokkurn tíma að inna af hendi síðar. Heillalitur er gulur. Ljónsmerkið (24. jú 1 í — 23. ágúst): Þú ert nokkuð sjálfselskur og gætir ekki sem skyldi að tilfinningum umhverfis þíns. Útivera og félags- líf á mjög vel við. Þú ættir að grípa hvert tækifæri sem gefst til að ferðast. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Mál sem þú hélzt að löngu væri sofnað, kemst nú á nýjan skrið og skaltu nota tækifærið og láta álit þitt í ljós. Þú hittir kunningja þinn og dvelur kvöldstund með honum á skemmtilegum stað. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð lítinn tíma til að sinna einkamálum þínum vegna utanaðkomandi manna sem þurfa að hafa samband við þig og taka upp tíma þinn. Bezta skemmtun sem þú ferð á er í aðsigi. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur gerzt sekur um að spilla eigum annarra og færð ákúrur frá aðilum sem þú sízt kærir þig um að skipti sér af málum þínum. Þú kostar allmiklu upp á gamlan hlut, sem tæpast er þess virði. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú hefur tekið þér fyrir hendur margbrotin verk- efni, sem tekur langan tima fyrir þig að leysa. Reyndu að vera yfirboðurum þinum að skapi, þótt það kosti þig einhverja sjálfsafneitun.. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú verður fyrir allmörgum töfum utanaðkomandi aðila og kemur það þér í tímaþröng með viss verk- efni. Ýmislegt fer á annan veg en þú hugðir, en þú munt verða harðánægður með niðurstöðurnar. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vegna forfalla einhvers kemstu i góða aðstöðu til að auka tekjur þínar. Þú færð þakklæti og ef til vill einhverja gjöf fyrir framkomu þína við visst tækifæri. Útilíf væri mjög æskilegt i tómstundum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Reyndu að iita á alla hluti bjartsýnisaugum og sjá íj fleiri en eina hlið á hverju máli, þá muntu verða 1 vinsæll. Þetta er uppskerudrjúgir tímar fyrir elsk- 1 endur, en enginn ætti að taka hlutina hátíðlega. 1 34 VIKAN 32- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.