Vikan - 03.09.1970, Blaðsíða 4
r 9
3IÐAI ;íðas ú
Góður er hver genginn, en illur
aftur fenginn.
íslenzkur málsháttur.
Ungfrú Svíþjóð 1970
Þessi kroppur tilheyrir ung-
frú Svíþjóð árið 1970, en hún
heitir Britt-Irtger Johansson, er
20 ára og ættuð frá Kalmar. Hún
tók þátt í keppninni um titilinn
„Ungfrú Alheimur", sem háð var
í Flórída ekki alls fyrir löngu,
og þar hafnaði hún meðal 15
þeirra álitlegustu. Nú hef-
ur Britt-Inger ákveðið að setjast
að í Ameríku, því í Svíþjóð sé
lítið fyrir hana. Einu sinni var
hún trúlofuð Ameríkana, og ætl-
uðu þau að gifta sig 4. júlí sl.,
en eftir að hún varð ungfrú Sví-
þjóð, fyrr í sumar, hætti hún við
allt —- og enn bíður Alan eftir
henni.
Biskupinn sieppur
Nú hefur verið hætt við að
stefna þýzka biskupnum frá
Múnchen, Matthíasi Defregger,
fyrir rétt, en hann hafði verið
bendlaður við stríðsglæpi nazista
í heimsstyrjöldinni síðari. Hafði
þessum rómversk-kaþólska bis-
kupi verið gefið það að sök, að
hafa látið taka af lífi 17 óbreytta
ítalska borgara, í hefndarskyni
fyrir árás sem Italir gerðu á Þjóð-
verja, en biskupinn var háttsett-
ur í Wehrmacht-leyniþjónust-
unni á Hitlerstímanum. Eftir að
þýzk yfirvöld höfðu athugað
málið í heilt ár og yfirheyrt 200
vitni, komust þau að þeirri nið-
urstöðu að ekkert væri hæft í
þessum „orðrómi“.
Sinfónísk tilþrif
Nei, þetta er ekki Robert Plant
á Isle of Weight, heldur er þetta
Leonard Bernstein, snillingurinn
sá, sem hér er að stjórna sin-
fóníuhljómsveitinni í Los Angel-
es, þar sem eingöngu voru leik-
in verk eftir Mahler og Beet-
hoven. Að hljómleikunum lokn-
um stóðu hljóðfæraleikararnir
upp og klöppuðu stanzlaust (fyr-
ir Bernstein) í rúmar 10 mínút-
ur.
Bernstein er með skemmti-
legri „sjónvarpsfígúrum“, og það
væri óskandi að sjónvarpið héldi
áfram að sýna þættina „Hljóm-
leikar unga fólksins". En úr því
við erum farnir að tala um
hljómlist og sjónvarp, er ekki
úr vegi að mæla með því við
dagskrárstjórn sjónvarpsins, að
endurtekinn verði þátturinn
„Hljóð eða tónlist?“, sem sýndur
var um miðjan sl. mánuð. Hann
er með því merkilegra sem við
höfum séð um þessi efni.
BB
BRIGITTE Bardot hefur nú
endurheimt þessa heimsfrægu
STUTT
OG
LAG-
GOTT
„Ég borgaði sjö dollara
fyrir þessa bók og svo er
hún um pólitík!‘“ sagði ung
og reið og nýgift bandarísk
kona, er hún hafði kynnt
sér efni bókarinnar The
Making of a President
(Forseti búinn til).
skammstöfun, en á tímabili var
það bandaríska hljómsveitin
Beach Boys sem hana „átti“. —
Þetta er nýleg mynd af henni,
tekin fyrir utan villuna La Ma-
draque, og með henni á mynd-
inni er sonur hennar, Nikulús,
sem nú er 10 ára. Býr hann hjá
föður sínum, Jacques Charrier,
og lætur sig dreyma um að verða
geimfari. BB segist láta sig
dreyma um að verða góð móðir.
Núverandi fylgisveinn hennar er
Patrick Gilles, og hafa þau hang-
ið saman í heilt ár — en sam-
kvæmt BB láta þau ekki einu
sinni eftir sér að hugsa um
hjónaband.
4 VIKAN 36. tbi.