Vikan


Vikan - 03.09.1970, Blaðsíða 43

Vikan - 03.09.1970, Blaðsíða 43
Malta súkkulaðikexið er sjálfkjörið í hópi kátra félaga. Ánægjan fylgir Malta jafnt á ferð sem flugi, — hvert sem er. Það leynir sér aldrei,— Malta bragðast miklu betur. gekk burt úr þessu glæsilega gistihúsi. Þetta var mikil lífsreynsla, eins og ég hafði húizt við, hugsaði liann og hrosti ánægður með sjálfum sér, þegar hann gekk niður tröpp- urnar með marmaraljónun- um. Ókeypis. Og — eins og Boh hafði sagt: — Þetta er alveg óhætt. ☆ Úr Húsafelli - í Herjólfsdal Framhald af bls. 27. spurði hann ungu, síðhærðu karl- mennina í Húsafellsskógi hvað þeir ætluðu að gera við hárið á sér er þeir færu að verða grá- hærðir -—- og jafnvel sköllóttir! Sífellt fjölgaði þeim sem á hlýddu og var gerður góður róm- ur að máli okkar fyrrverandi og ástsæla þjóðhöfðingja. Á eftir voru skemmtiatriði. Skozkur drengjahópur sýndi bragðdaufa dansa við sekkjapípuundirleik, karlakórinn Vísir söng af snilld, ítalskir munnhörpuleikarar skemmtu, söngtríó létu í sér heyra og hljómsveitir léku sitt í hverju lagi og allar saman. Þá var Hátíðarlundur orðinn troðfullur af fólki, og unga fólk- ið söng allt með: — Allt sem við viljum er friður á jörð. . . . Þeir sem sungu hæst og mest voru á aldrinum 13—15 ára, og þó þau hafi ef til vill ekki öll gert sér grein fyrir þýðingu orðanna, þá voru þau sungin af einlægni og hjartans sannfæringu, enda er í raun og veru ekki farið fram á mikið. Sólin skauzt fram í örfáar mínútur og var fagnað með lófa- klappi og húrrahrópum. Svo fór hún og í staðinn fór að rigna, en enn var hlustað á bítlamúsík um stund. Upp úr kvöldmat var haldið heim á leið, enda var okkar dvöl ekki ætluð lengri á bindindis- mannamóti í Húsafellsskógi sum- arið 1970. Fólk var að ljúka við kvöldmatinn og örfáir voru farn- ir að lepja í sig restina af eld- vatninu. Þeir voru merkilega vinsælir. Uxahryggjaleið var fáfarin og kaffisopinn dýr á Þingvöllum, en þó vel þeginn eftir drulluna í Húsafelli. Helgina eftir flugum við á Þjóðhátíð Vestmannaeyinga í Herjólfsdal. íþróttafélögin þar skiptast á um að halda þessa merkilegu hátíð, og hefur það yfirleitt verið þannig að veðrið hefur verið betra þegar ár ÞÓRs hefur verið, og því hefur því verið haldið fram að Guð sé í Þór, eins og drepið var á í upp- hafi þessarar greinar. En ein- hver togstreita virðist hafa átt sér stað um þessa þjóðhátíð, þvi sól sást ekki á lofti fyrr en eftir hádegi á sunnudeginum, og und- ir kvöld var allt í ,,himnalagi“, því sól skein í heiði og litaði Herjólfsdal fallega gullinn. Það er alltaf gaman að koma á þjóðhátíð, en þó fannst okkur það meira gaman fyrir nokkrum árum. Nú er það orðið svo að Eyjaskeggjar flykkjast yfir til meginlandsins þegar þjóðhátíð nálgast, og meginlandsbúar fljúga til Eyja til að taka þátt i þessari exklúsívu hátíð inn- fæddra. Einn mætan Vestmanna- eying, útgerðarmann, hittum við hér í bænum rétt áður en lagt var af stað, og hafði sá ekki ver- ið á þjóðhátíð í 10 ár. Jú, mig er nú farið að langa til að vera þarna og sjá svona hvernig þetta fer fram, viðurkenndi hann. Þjóðhátíðin er að vísu sögð, í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum, eiga að fara fram „dagana þetta og hitt“, en þetta er fyrst og fremst hátíð næturinnar. Alltaf er eitthvað að ske í Dalnum, en það er ekki fyrr en undir kvöld að hann fer að lifna og bergin að tala. Þau tala sínu máli, en mik- ið lifandis skelfingar ósköp mega sumir þakka fyrir að Fjósaklett- ur er ómælgur á mannlegt mál. Þegar rökkvar kemur fyrst ljósadýrðin í Herjólfsdal í ljós. Skreytingar byggjast nú aðallega orðið á ljósum, og er ekki hægt að segja anriað en að Þórsarar jafnt og Týrsarar kunni orðið lagið á því að lýsa upp Dalinn. Efst á Fjósakletti trónar heil- mikil brenna sem er fómað um miðnætti fyrsta kvöldið, og verð- ur hlíðunum í kring svo mikið um að þau ryðja út úr sér eld- glæringum og ljósskotum þannig að maður heldur að nú rigni yfir sig eldi og brennisteini. Á föstudagskvöldinu voru menn yfirleitt góðglaðir. í Vest- mannaeyjum er ekkert verið að amast yfir því að menn fái sér brjóstbirtu á þjóðhátíð, enda hafa flestir vit á því að vera eins og sæmilega skynbornar skepnur. Og kona sem við þekkjum (hún er reyndar móðir mín) og bjó lengi vel í Eyjum, sagði þá sögu að í dentíð hefði það verið þann- ið að menn sem yfirleitt aldrei smökkuðu vín, þágu staup á þjóðhátíð. 36. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.