Vikan - 03.09.1970, Blaðsíða 7
Líklega er hann ekkert yfirmáta
hrifinn af þér, fyrst hann hefur
dregi'ð úr sókninni. Kannski vill
hann forðast öll fastari sambönd
og hefur því orðið smásmeykur
þegar hann sannfrétti að þú vær-
ir hrifin af honum. Þú segir að
hann sé feiminn; kannski hafa
mishsppnaðar tilraunir hans (því
okkur skilst að þær hafi ekki
tekizt) dregið eitthvað úr sjálfs-
trausti hans. Þú gerðir kannski
rétt í því að grafast fyrst fyrir
um hverjar af þessum tilgátum
eru næstar sanni, og hafa síðan
samband við okkur aftur. Þá
gætum við betur gefið þér ráð
til að krækja í hann.
Skriftin er mjög snotur og
bendir til að þú sért mjög kven-
leg í þér.
Heldur ekki framhjá
Sauðárkróki, 11/8 1970.
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður
og ætla ég bara að vona að þú
getir hjálpað mér í vandræðum
mínum.
Þannig er mál með vexti að
ég er hrifin af strák og hef verið
það í eitt ár og fjörutíu daga ná-
kvæmlega, hann veit að ég er
hrifin af honum því að ég hef
alveg sagt honum það, svo þegar
ég spyr hann hvort hann sé hrif-
inn af mér, þá svarar hann á
þessa leið: Ég veit ekki E (staf-
urinn minn), ég er með stelpu
og held ekki framhjá. Mér skilst
á honum að hann geti ekki gert
upp á milli okkar.
Já og annað, við höfum verið
saman og skrifuðumst á allan
síðastliðinn vetur. Nú, kæri
Póstur, viltu vera svo vænn að
gefa mér ráð, en það þýðir ekk-
ert að segja „gleymdu honum“,
því ég get alls ekki gleymt hon-
'um hvernig sem ég reyni.
Virðingarfyllst,
E.
P.S. Hvernig eiga tvíburarnir
og vogarmerkið saman? Vonandi
geturðu lesið þetta krass.
Það er alveg ástæðulaust fyrir
þig að reyna að gleyma honum
eða örvænta að svo komnu máli;
fyrst hann er sem sagt á báðum
áttum og þið eruð nokkuð góðir
vinir, þá ættirðu að hafa þó
nokkra von. Ilann getur ekki
gert unp á milli ykkar eins og
svo algengt cr, en það að hann
skuli ómögulega vilja halda
framhjá þótt honum bjóðist
bendir til að hann sé meiri skap-
f°stumaður en illgjarnar tungur
herma að ungir menn séu al-
mennt nú til dags. Líklega er
hep'oilee-ast fyrir þig að vera ýt-
in í sóknum, láta hann stöðugt
vita að þú hafir áfram hug á
honum, en umfram allt ekki vera
frek, það er líklegast til að
stuða þá manngerð, sem hann
virðist vera af. Þér tekst að öll-
um líkindum bezt við hann ef þú
kemur fram af kvenlegri hátt-
prýði og þolinmæði.
Vogarfólk og tvíburar eru
hvorttveggja félagsverur, kunna
bezt við sig í víðtækum sam-
böndum við annað fólk og eiga
gott með að aðlagast öðrum. —
Þeim tekst yfirleitt ágætlega að
vinna og lifa saman.
Stéttlaust þjóSfélag
- nei takk
Reykjavík, 17/8 1970.
Kæri Póstur!
Ástæðan til þess að ég bið þig
að ljá þessu bréfi rúm í dálkum
þínum er bréf, sem ég var að
lesa í þér áðan. ÞaS er skrifað í
tilefni skoðanakönnunar ykkar
meðal unga fólksins og ber heit-
ið: Stéttaskipting í vexti. Ég
skrifa þetta vegna þess að ég er
algerlega ósammála bréfritara
um þetta. Stéttaskipting er sama
og engin á íslandi, og þykir mér
það stórum miður. Ég skal skýra
ástæður þessarar skoðunar minn-
ar dálítið.
Onnur eins reginvitleysa og sú
fullyrðing að stéttlaust þjóðfé-
lag eigi rétt á sér byggist á þeirri
skoðun að allir menn séu eins að
hæfileikum, upplagi og menntun,
sem þeir auðvitað eru ekki og
geta aldrei orðið. Hvað mikið
sem reynt er að draga úr stétta-
mismuninum skýtur hann alltaf
aftur upp kollinum í einhverri
mynd. Fólk með svipuð áhuga-
mál, svipaða menntun og svo
framvegis hópar sig saman,
einfaldlega vegna þess að með
því móti líkar því lífið bezt. Lík
börn leika bezt, segir málshátt-
urinn. Ée get, tekið einfalt dæmi,
sem flestir íslendingar kannast
síálfsagt við. Hugsum okkur að
fólk úr alls konar ólíkum starfs-
hópum og með ólíka menntun
komi saman í partí. Það partí
verður aleerlega misheppnað,
-'’egna þess að ómögulegt er að
finna neitt umræðuefni, sem all-
ir geta talað um, nema kannski
i'eðrið. Og svo endar allt með
leiðindum og úlfúð.
Nei, það fer bezt á því að lofa
stéttunum að þróast í friði, lofa
öllum að samlagast þeim þjóðfé-
lagshópum, sem þeir eiga bezt
heimi í. Með því móti væri hægt
að koma í veg fyrir fjölmörg
leiðinleg og særandi atvik, sem
stöðugt eru að koma fyrir í þess-
ari stéttleysisringulreið, sem er
eitt megineinkenni íslenzka þjóð-
félagsins.
Virðingarfyllst,
Stéttvís.
NÝTT FRÁ DU PONT
Með nýja „RALLY"*bílabóninu frá
Du Pont má bóna bílinn á aðeins OtjPLöLGJ
1/2 klst. Reynið„RALLY"*strax í dag. sfmfIsooo178
• skrásett vörumerki Du Pont
GERIÐ BEZTU
KAUP í HÚS-
GOGNUM SEM
ÞÉR HUGSAN-
LEGA GETIÐ
GERT.
Sendum hvert á
land sem er.
AUÐBREKKU 59 KÓPAVOGI
T\ sími 42400
36. tbi. VIKAN 7