Vikan


Vikan - 19.11.1970, Blaðsíða 51

Vikan - 19.11.1970, Blaðsíða 51
“Kmni ess Rjómaís milli steikar og kaffis isréttur er frískandi ábætir, sem fljótlegt er aö útbúa. Vinsæid- ir hans viS matborSið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram- reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar uppskriftir: ÍSSÚKKULAÐI. Fyilið glas að 1/3 með kakó eða kakómalti. Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís í, skreytið með þeyttum rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum. JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim yfir Isinn og hellið 1 msk. af vini yfir (t. d. likjör eða sherry). BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiís / 1 msk. sólberja- eða jarðarberjasulta / 1/2 dl þeyttur rjómi / 1 msk. hnetukjarnar. Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið ísinn yfir, skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum. ÍS I PONNUKÖKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur. Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku utanum, hellið súkkulaðisírópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir. NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis í glas nougat- ís, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sítrónu- safa saman við aprikósumauk og skreytið með því. HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / Va ds. niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkulaði / 2 msk. saxaðar möndlur / 1 lítri vanilluís. Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur. Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði og möndlur þar yfir. Spænið ísinn upp og setjið hann yfir ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða stund eftir að þær eru stífar. Blandið því sem eftir er af sykr- inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvítunum utan um ís- inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) í örfáar mínútur, eða þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax. ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas til hálfs með sterku, köldu kaffi. Leggið nokkrar skeiðar af vanilluís í kaffið, skreytið með þeytt- um rjóma og rifnu súkkulaði.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.