Vikan - 08.04.1971, Síða 3
14. tölublað - 8. apríl 1971 - 33. árgangur
Fimmtíu
myndir af
Kristi
Engin samtímamynd er til
af Jesú frá Nazaret. En á
þeim næstum tvö þúsund
árum, sem liðin eru síðan
hann var uppi, hafa lista-
menn allra þjóða verið önn-
um kafnir við að gera
myndir af honum. Þessar
myndir eru jafn mismun-
andi og þjóðir þær og
menn, sem hafa gert þær.
Sjá myndaopnu á hls. 30.
EFNISYFIRLIT
GREINAR Bls.
Keisaratignin sem varð dauðadómur 12
Palladómur um Lúðvík Jósefsson 14
Markaðstorg hégómans 22
Woodstock 32
MarkaSs-
torg
hégómans
Framhaldsleikrit sjónvarps-
ins, Markaðstorg hégóm-
hans, sem nú er nýlokið,
naut mikilla vinsælda. í
þessu blaði segjum við frá
höfundinum og verki hans,
og ennfremur er stutt við-
tal við Susan Hampshire,
sem lék hina lævísu
Becky. Sjá blaðsíðu 22.
Viðtal við
unga mynd-
listarkonu
Hildur Hákonardóttir lief-
ur lagt stund á myndvefn-
aS undanfarin ár, og nú í
vetur hélt hún fyrstu sjálf-
stæSu sýningu sína. Hún
hlaut góSa dóma og mörg
af verkum hennar seldust.
Vikan birtir viStal viS
Hildi og litmyndir af henni
og verkum hennar í þessu
blaði. Sjá blaðsíðu 28.
KÆRI LESANDI!
Páskablað Vikunnar er slærra
en venjulega, alls sextíu síður og
flytur fjölbreytt efni: greinar,
sögur, viðtöl og fleira.
önnur af tveimur smásögum
heitir einmitt „Páskar' og er eft-
ir rússneska stórskáldið Leo Tol-
stoy. Hann fæddist í Tula 1828 og
var af tignu fólki kominn, en
missti ungur báða foreldra sína.
Ungur fór hann til St. Pétursborg-
ar og hóf fmr háskólanám, lagði
stund á stærðfræði og lög. Hann
vanrækti námið með öllu og gaf
sig á vald taumlausu líferni. En
jtegar hann hafði tapað aleigunni
i spilum árið 1851, ákvað hann
að hefja nýtt og betra líf. Hann
gekk í herinn og tók þátt í Krím-
stríðinu. Sú lífsreynsla gerði hann
að skáldi og varð honum efnivið-
ur í fyrstu skáldverk hans. Að
stríðinu toknu fór Tolstoy í lang-
ar utanlandsreisur, en að þeim
loknum lwæntist liann og settist
að á óðali uppi í sveit. Hann lifði
hamingjusömu fjölskyldulífi um
árabil og eignaðist stóran barna-
hóp. En síðustu árin höfðu trú-
mál truflandi áhrif á hann. Hann
vildi koma á fót eins konar
„kristnum sósíalisma“ og barðist
fyrir þeirri stefnu sinni af öllum
kröftum. Hann fórnaði meira að
segja hamingju sinni í einkalífinu
fyrir hugsjón sína. Hann yfirgaf
heimili sitt árið 1910, en lézt á
járnbrautarstöð litlu síðar.
VIÐTÖL
Vefarar þurfa að ná sextugu, rætt við Hildi
Hákonardóttur, myndvefara 28
SÖGUR
Páskar, smásaga eftir Leo Tolstoy 16
Hlutverkaskipti, smásaga 20
Gullni pardusinn, framhaldssaga, 12. hluti 24
Á meðan bilstjórarnir voru á balli, fram- haldssaga, 2. hluti 34
ÝMISLEGT
Kristur í augum aldanna, myndasyrpa 30
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn, um- sjón: Herdis Egilsdóttir, kennari 45
Kátir krakkar á grímuballi, myndasyrpa 26
FASTIR ÞÆTTIR
Siðan siðast 4
Mig dreymdi 6
Pósturinn 8
Krossgáta 10
í fullri alvöru 11
Stjörnuspá 36
Myndasögur 43, 47, 50
í næstu viku 58
FORSÍÐAN
Um allan heim er eggið tákn páskanna. Hugur
allra barna snýst mestanpart um páskaegg og
unga á þessari löngu hátíð. ViS völdum fallegar
myndir af unga, sem er að skríða úr egginu til
að prýða forsiðuna á páskablaðinu okkar.
VltVAN Útgefandi : Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigríður
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjórn,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
14. TBL. VIKAN 3