Vikan - 13.05.1971, Qupperneq 5
Books, April 1971, bls. 29:).
„Ég er sannfærður að mjög fáir
Bandaríkjamenn hafa mikla vij-
und um útbreiðslu hernaðará-
róðursins eða áhrif hans á líf
þeirra með mótun skoðana
þeirra, og skoðana (sem birtast
í atkvæðum með fjárveitingum
til vopnaframleiðslu) umboðs-
manna þeirra á þingi, og skoð-
ana hinna svokölluðu „ombuds-
manna' þeirra sem starfa við
bandarískar fréttastofnanir. Jafn-
vel þeir sem í alvöru leitast við
að kryfja þetta mál til mergjar,
hafa aðeins fengið litlar upp-
lýsingar um upplýsingakerfi
hersins.
„Samkvæmt minni vitund, —
þráft fyrir að þessi skoðanamót-
andi maskína hefur endrum og
eins sætt gagnrýni þegar at-
hæfið hefur orðið svo augljóst
að ekki tókst að hylja það, og
þó að lærðir menn á sviði fjöl-
miðlunar hafi á lærðan hátt
skrifað um maskínuna, — þá
hefur enginn leitast við að lýsa
henni fyrir almenningi, hvort
sem er í einstökum atriðum eða
hinum venjulegu aðferðum".
Jón A. Sigurðsson,
Asvallagötu 24.
Hér eru vissulega háalvarleg og
viðkvæm mál tekin til meðferð-
ar, og bréfritari hefur fyllsta rétt
til að koma skoðunum sínum á
þeim á framfæri. Fróðlegt væri,
ef fleiri lesendur vildu taka til
máls um þetta efni og senda
okkur línu.
Jesus Christ
Superstar
Kæri Póstur minn!
Ég ræðst í það stórvirki að
skrifa þér bréf, þótt ég sé með
pennalötustu manneskjum í
heimi. Um daginn var flutt í
þættinum Lög unga fólksins
eitthvert verk (ég man ekki
hvað það hét), sem einhver út-
lend hljómsveit flutti. Það átti
vlst að vera um krossfestingu
Krists. Það heyrðust höggin
þegar var verið að negla nagl-
ana í krossinn og stunurnar frá
Jesú er hann var á krossinum
og hlátur hermannanna. Þegar
plöturnar með Trúbroti og Æv-
intýri komu út, það er verkin
eftir Wagner, voru þær bannað-
ar og enn er bannað að flytja
þær í útvarp. En þetta fyrr-
nefnda er flutt I útvarpinu. Ef
það hefði verið íslenzk hljóm-
sveit, sem hefði flutt það, hefði
það örugglega verið bannað I
útvarpi, en það virðist vera allt
í lagi fyrst það er útlend hljóm-
sveit.
Svo var Náttúru bannað að flytja
( sjónvarpinu verk eftir Bach og
Grieg, sem þeir breyttu ekki
neitt. En þó var fluttur skemmti-
þáttur með Nice, þar sem þeir
fluttu verk eftir Sibelius, sem
þeir breyttu dálítið. Það var
stjórnandi skemmtideildar sjón-
varpsins, sem vildi ekki að
Náttúra flytti þessi verk. Og
þegar hann var spurður hvers
vegna þátturinn með Nice hefði
verið fluttur í sjónvarpinu, sagði
hann að sér hefði ekki verið
kunnugt um að sá þáttur hefði
verið fluttur þar. Ja, ég hefði
nú haldið að stjórnandi skemmti-
deildar sjónvarpsins ætti að hafa
auga með því skemmtiefni sem
flutt er í sjónvarpinu.
Það stóð I Samúel og Jónínu
um daginn að Jón Þórarinsson
stjórnandi skemmtideildar sjón-
varpsins gæfi blaðamönnum
langt nef og segði að þetta
kæmi engum við, og svo fram-
vegis. Og þætti þetta furðu
ósvífið af honum og bæri hon-
um að segja af sér, og svo sann-
arlega tek ég undir það, ef
þetta er satt og jafnvel líka þótt
það væri lýgi, því svona menn
eru algerlega óhæfir stjórnend-
ur. Mér þætti fróðlegt að vita
hvað ykkur finnst um þetta og
ég vona að Jón Þórarinsson rek-
izt á þetta, ef bréfið verður birt,
sem ég vona, því ég er búin
að leggja á mig nóg erfiði við
þessar skriftir.
Með fvrirfram þökk. H.B.
Verkið um krossfestinguna, sem
þú minnist á, er efalaust rokk-
óperan Jesus Christ Superstar,
sem úrval úr mörgum popp-
hljómsveitum söng inn á plötu.
ÞaS er satt, að fljótt á litið
virSist heldur lítiS samræmi í
því hjá hljóSvarpinu okkar og
sjónvarpinu aS banna hjá sér
flutning íslenzkra popphljóm-
sveita á klassískum verkum, en
hljóSvarpa hins vegar og sión-
varpa flutningi hliðstæðra hljóm-
sveita erlendra á þeim. — Um
hugsanlegar ástæSur forráSa-
manna þessara stofnana vitum
viS ekki.
Þér gerið góð kaup i
GITE
GITE
nýtur sivaxandi vinsælda.
GITE
ffaest I verzlun yðar.
Halldór Jónsson
Halnarstnæti 18 - sími 22170 - 4 límur
— Hvernig stendur á að þessi maður er í náttfötunum
mínum?
19. TBL. VIKAN 5