Vikan - 13.05.1971, Page 46
Kælishápar
ER BEZTA VAUÐ
7 mismunandi gerðir með og án djúpfrystis.
Zanussi hefur framleitt rafmagnsáhöld í meira en hálfa öld og hafa þegar
framleitt meira en 10 milljón véla Firmað hefur viðskipti við 120 lönd víða
úti i heimi. Tækninýjungar sitja í fyrirrúmi hjá ZANUSSI.
yynssirimis
SNORRABRAUT 44 SlMAR 16242 15470.
gísl. Og þótt Modyford land-
stjóri þrái það heitast aðhengja
mig, þá þorir hann ekki að
gera það, þegar hann veit að ég
get hvenær sem er stungið rýt-
ingi milli rifjanna á hans há-
göfgi Chelsham jarli.
Veikur vonarneisti tendrað-
izt með henni. — Er frændi
minn hér í Port Royal?
Renard kinkaði kolli og lagði
aðra skammbyssu á borðið.
Einkennilegt bros lék um var-
ir hans.
—• Já, hann er hér. Það var
hann sem fékk þá stórkostlegu
hugmynd að lokka Lucifer í
dauðann á þennan hátt. Hann
tók af sér sverðið og lagði það
við hliðina á byssunum á borð-
inu. — En Mylord ætlaðizt til
að sagan um vandræði þín ætti
aðeins að vera upplogin saga.
Vonarneistinn varð meiri.
Hún spurði, með ákafa sem hún
átti bágt með að leyna: — Hvar
Þér sparið með áskrift
SKIPHOLTI 33 - SIMI 35320
er frændi minn? Eg held að þarna a gólfinu, fallinn fyrir
þér séuð að ljúga, Renard!
— Hann er þarna inni! Ren-
ard kinkaði kolli að dyrunum
fyrir innan og gerði enga til-
raun til að stöðva hana, þegar
hún hljóp í áttina þangað og
reif dyrnar upp á gátt.
Herbergið fyrir innan var
svefnherbergi, jafn grátt og
skítugt og hitt, en Damaris sá
ekki annað en manninn sem
sat þar. Hann sneri baki í hana,
en grái silkijakkinn og hárkoll-
an sannfærðu hana um hver
það var.
Hann hreyfði sig ekki og
sagði ekki neitt og þetta óhugn-
anlega hreyfingarleysi gerði
hana stjarfa af hræðslu.
Hún greip í handlegg hans,
en þá komst hreyfing á mann-
veruna í stólnum, sem valt til
hliðar og féll á gólfið. Hún
öskraði af hræðslu, þegar hún
kom auga á rýtingsskeftið sem
skagaði út úr brjósti hans. Þetta
var Chelsham jarl, maðurinn
sem hafði staðið uppi í hárinu
á kóngum og drottningum.
Gullni pardusinn, sem í manns-
aldur hafði smeygt sér gegnum
öll vandræði með undirferli og
alltaf komizt af, lá nú dauður
morðingjahendi á ómerkilegri
knæpu í Vestur-Indíum. Það
var karlhæðni í þessum örlaga-
ríku afdrifum hans.
Þetta flaug í gegnum huga
Damaris þegar hún virti fyrir
sér líkið á gólfinu. Henni var
ekki ljóst að Renard hafði fylgt
henni eftir, fyrr en hann sagði:
— Mylord var jafn djöful-
lega stoltur og Lucifer, sagði
hann með niðurbældri reiði, —
én hann fékk sína ráðningu, þá
sömu og Lucifer fær bráðum
að kenna á, ég læt ekki nokk-
urn mann fara á bak við mig.
Hvað þér viðkemur, dúfan mín,
þá getur hvorugur þeirra hjálp-
að þér lengur.
Meðan hann talaði, gekk
hann framhjá glottandi líkinu
í áttina til hennar. Hún leit upp
og las örlög sín í áköfum aug-
um hans og varð lömuð af
hræðslu. En lömunin hvarf,
þegar hann snerti við henni og
nú barðizt hún í örvæntingu
á móti honum. En hún sá fljót-
lega að hún gat ekki varið sig
og enda þótt hún vissi að eng-
inn heyrði til hennar, rak hún
upp skerandi óp.
Framhald í nœsta blaði.
46 VIKAN 19. TBL.