Vikan

Tölublað

Vikan - 30.05.1973, Blaðsíða 25

Vikan - 30.05.1973, Blaðsíða 25
verndar færeyskri tungu og fær- eyskum siðum. Nú er færeyska kennd meira og minna i öllum skólum. — Hvað geturðu sagt mér um rannsóknir á færeyskri sögu? — t kringum 1965 var stofnað Fróðskaparsetur Föroya. Það er visir til háskóla, sem kenna á færeyska tungu, sögu og náttúru- fræði. Við bindum miklar vonir við þessa alfæreysku stofnun. Það torveldar nokkuð rannsóknir á sögunni að við áttum ekki færeyskt ritmál fyrr en á miðri Þingsnesið, elzti liluti Þórshafnar. Færeyingar hyggjast reyna að varðveita það sem allra’ minnst breytt. siðustu öld. Hammershaimb er talinn hafa skapað það. Það var samt byrjað að skrifa löngu áður og Jens Christian Svabo (1T46- 1824) skrifaði stórmerk verk. Hann byrjaði að skrifa um 1770 og eftir hann liggja m.a. orðabók, Færeyjalýsing og safn danskvæða. Hann varð fyrstur manna til þess að skrifa niður danskvæði að nokkru marki. En Svabo skrifaði hljóðrétt og það var ekki nothæft ritmái. Hefur ekki margt breytzt i Þórshöfn, siðan þú varst að alast upp? Jú, margt hefur breytzt, bæði i Þórshöfn og annars staðar i Færeyjum. Fólkinu hefur fjölgað mikið og þaðhefur sett sinn svip á bæinn og bæjarbraginn. Samt er margt hið sama i gömlu hverfunum, sérstaklega úti á Þingsnesi. Þar var gamli þing- Það fer ekki milli mála að frá Þórshöfn er mikil útgerð og bátarnir virðast vera af ýmsum stærðum. staðurinn okkar og landsstjórnin situr þar. A nesinu er gamall bær með gömlum húsum og það er mjög gaman að sjá þarna lifandi gamlan bæ. Miðbærinn i Þórshöfn hefur nokkuð gamlan svip lika, en nýrri hverfi eru gjörólik, alveg eins og i Reykjavik. — Hefur þessum gömlu hlutum Þórshafnar ekki verið spillt með nýjum byggingum? — Nei, ekki mikið. En við gerum okkur grein fyrir þvi að við getum ekki varðveitt öll þessi gömlu hús. Það yrði of dýrt. Þegar fólk vill ekki lengur búa i þeim, er spurning um hvað eigi að gera. Það var haldin samkeppni milli arkitekta Norður- landaþjóðanna um framtiðar- skipulag og útlit Þingsnessins og Framhald á bls. 36 Kirkjubær á Straumey. Þar er að finna rústir fornrar steinkirkju. 22. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.