Vikan - 17.04.1975, Síða 4
VoreStulka Vikunnar
í Evuklasóum
Sigrlöur Gubjónsdóttir er dóttir Guðnýjar
Magnúsdóttur og Guðjóns Steingrimssonar
og á heima að Bergstaðastræti 65, Reykjavlk.
Sigrlður er 19 ára að aldri, 1.78 m á hæð og 57
kg-
Sigrlður tók gagnfræðapróf við Hagaskóla,
en er nú'á fyrsta ári I Myndlista- og handfða-
skóla tslands. Nám við þann skóla skiptist i
tvennt, þannig að almennt listnám tekur tvö
ár, en sérnám önnur tvö ár. Sigrlður þarf þvl
að ákveða sig eftir eitt ár, og bjóst hún við, að
myndlistardeildin yröi fyrir valinu. Þó
kvaðst hún hafa lúmskan áhuga á tlskuteikn-
un og teiknaö stundum föt að gamni slnu fyrir
sjálfa sig og vinkonurnar.
Sigrlöur kvaðst hafa orðið að vinna með
náminu i vetur. Hún er I skólanum frá kl. 9-3,
en vinnur slöan hjá Pósti og slma frá kl. 5-8 á
kvöldin. Sföastliðið sumar vann hún á Borg-
arspitalanum og vonast til að fá vinnu á
Kleppi I sumar.
Það mætti ætla, aö Sigrlður ætti fáar tóm-
stundir með svo miklu námi og vinnu, en hún
sagðisthafa nógan tima til að gera það, sem
hana langaði til. Hún kvaðst hafa gert dálitiö
af þvf að fara á boll, en væri aö mestu hætt
þvi, þvl að sér þætti miklu skemmtilegra að
spjalla við fólk heima við I ró og næði. Hún
sagðist fara talsvert i bló, hlusta mikið á
músfk og lesa ljóð.
Um framtfðaráformin sagði Sigrlöur: — Sú
braut, sem ég hef valið.er hál braut, og þess
vegna er erfitt að spá nokkru um framtlðina.
1.
Frakki frá PIRETTA Finnlandi, stlgvél frá
ADIGE.
2.
Flauelspils I rústrauðu og skyrta I sama lit
frá DRAWELLA, peysa frá SÖS og IB.
3.
Gallabuxur frá IN WEAR, hnepptur bolur frá
SöS og IB.
4.
Bómullarkjóll frá IN WEAR, frönsk leður-
stlgvél frá ADIGE.
eva