Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.10.1975, Qupperneq 5

Vikan - 30.10.1975, Qupperneq 5
Vinnuherbergi Péturs er í miðaldastíl m,eð rauðum þykkum gluggatjöld- um. Þar er fjöldi bóka um söguleg og alþjóðleg málefni, og eins og sjá má á myndinni er skrtfborð Péturs hlaðið skjölum og ritum, sem bera vott um athafnasemi hans og starf lagt 1 rúst og 20 milljónir manna fórust, án þess að upplifa staði eins og Leningrad og Stalingrad. Ég hef hvorki fyrr né síðar komið á stað, sem hafði jafnmögnuð áhrif á mig og grafreiturinn fyrir utan Leningrad, en þar eru jarðneskar leifar 1.5 milljón íbúa. - Áþekkir staðir eru í Stalingrad og fyrir utan Madrid á Spáni. Þar er minnismerki um þá, sem féllu í borgarastyrjöldinni, dalur hinna föllnu, en þangað hef ég llka komið. Að tala um svona hluti, án þess aó hafa komið þangað, er tómt mál, segir Pétur og brosir. ...ekki von til þess að þjóðaisamstaða naist um þetta mál. - En það er landhelgismálið, sem er mitt hjartans mál um þessar mundir. Aðalmálið er nú að mínu áliti, hvers vegna talað er um að veita útlendingum hlutdeild t þjóð- arauð íslendinga eftir að Haagdóm- urinn hefur lýst því yfir, að 12 mílna reglan sé dauð, og að þeir eigi engan rétt I okkar þjóðarauði. Á meðan þessari spurningu er enn ósvarað, er ekki von til þess að þjóðarsamstaða náist um þetta mál. ' - Ég er sammála Pétri, segir Bára. Hefði faðir minn lifað nú, hefði hann glaðst yfir hlutdeild Péturs í þessu máli. Hann var mikill þjóð- arvinur og lét sig sjávarútveg miklu skipta. Nú er farið að rökkva úti, og senn er von á gesti þeirra hjóna, herra Fuller. Ég hef setið allt of lengi og tafið fyrir þeim Pétri og Báru, sem hafa þann sið að taka alltaf vel á móti gestum. Þetta hefur verið ánægjulegt kvöld og margt skemmtilegt skrafað, en nú verð ég að kveðja og þakka fyrir mig og gefa heimilisfólkinu tækifseri til að búa sig undir að taka á móti næsta gesti. Á.K. Svefnherbergið er mjög óvenjulegt eins og annað hjá Báru og Pétri. Bleikir litir eru þar allsráðandi, og hér sjáum við hvildarbekkinn, sem er klœddur bleiku flaueli. Slíkt hús gagn er vafalaust sjaldséð í íslenskum svefnherbergjum. 44. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.