Vikan - 20.05.1976, Blaðsíða 10
Aleta drottning fer að versla sér til
afþreyingar, en sjóræningjarnir gerðu hér
strandhögg fyrir nokkru, svo lítið af
glæsivarningi er á boöstólum.
Hashida galdramaður ríður inn um borgar-
hliðin og á eftir honum fylgja margir asnar
hlaðnir dýrindis varningi.
Hann finnur tóma búð. Hann á auðvelt
með að dáleiða kaupmanninn, sem stenst
engan veginn járnvilja galdramannsins.
Aleta kemur inn og verður yfirsig hrifin af öllum glysvarningnum, sem
þarna er að fá. „En þetta er nú ekki neitt," segir kaupmaðurinn. „Hið
fegursta og besta er hér inni [ bakherberginu."
Þar stendur Hashida og brosir. Hann sveiflar skærum demantinum
reglulega. „Fáið yður sæti, kæra frú. Það er þreytandi að versla. Heit
sólin hefur þreytt yður, yður er farið að syfja, syfja."
Hann sér hann hefur öll ráð hennar i hendi
sér. „Sofðul" Aleta gerir eina tilraun til að
hrista af sér slenið, en demanturinn dregur
úr henni allan mátt.
Og stuttu síðar má sjá nokkra menn á leið til
fjalla með buröarklefa með tjöldum fyrir.
Næsta vika — Leitin.
10-/2
10 VIKAN 21. TBL.