Vikan - 20.05.1976, Blaðsíða 29
Sófasett í háum gœðaflokki — en lágum verðflokki
MEÐ STAÐGREIÐSLU AFSLÆTTIKOSTAR ÞAÐ AÐEINS FRÁ
KR. 144.360.-
MEÐ HAGKVÆMUM LÁNSKJÖRUM FRÁ KR. 160.400.-
Opið á föstudögum til kl. 7
jii —
hvnuv iuvym uvifuui
Húsgagnadeild
Hringbraut 121 - Sími 28-601
Græn, djúpskyggn augu hennar
og votar varir höfðu seiðmögnuð
áhrif á hann og hann var á valdi
ástríðna, sem reyndust öllu öðru
yfirsterkari. Hann ætlaði að faðma
hana að sér og kyssa hana, en Mari-
anne hörfaði ósjálfrátt undan. Hún
var líkt og leyst úr álögum. Spörv-
inn baðaði út vængjunum.
„Þetta er í annað sinn,” sagði
hún kuldalega, ,,sem þér hafið
boðist til þess að nema mig á brott.
Hvers vegna haldið þér, að ég sé
tilleiðanlegri núna en á brúðkaups-
nóttina?”
,,Vegna þess að þér standið einar
uppi, vinalaus, og snörur bíða yðar
við hvert fótmál. Þér getið ekki
haldið áfram þessu flóttamannslífi
yðar, siglt undir fölsku flaggi, og
verið undir náð og miskunn þeirra
sem ætla að svikja yður og tæla
komin. Það sem ég hef upp á að
bjóða er frelsi i nýju landi, mínu
landi. Ég fer ekki fram á, að þér
verðið mín, aðeins að þér komið
með mér. Ég er með skip...”
„Veit ég vel,” svaraði Marianne
köld í viðmóti. ,,Og ég veit einnig,
hvernig þér komust yfir það. Haldið
þér að ég muni nokkru sinni gleyma
þvi? Nei, Jason Beaufort, sú minn-
ing mun fylgja mér svo lengi sem
l.
BENZ0NI
26
C Opera Mundi Paris
HNNE
,,Þér eruð yndislega fögur,”
sagði hann dapurlega. „Engin ætti
að hafa leyfi til þess að vera svona
falleg. Það er hættulegt...já,
hættulegt. Á meðan þér dveljið hér
eruð þér í hættu. Þér verðið að
yfirgefa þetta hús, þetta land...
ell^gar munuð þér fyrr eða síðar
gjalda þess. Sjávargyðjur eru ekki
skapaðar til þess að troða stigu
þessa heims. Þær eru dætur hafsins
og sækja hamingju sina i undir-
djúpin og ég hef aldrei hitt nokkra
manneskju, sem er eins lík sjávar-
gyðju og þér. Komið með mér út að
hafinu, Marianne...”
ég lifi, grimmúðleg eins og
hatrið...”
„Ég er ekki að biðja yður um að
gleyma,” sagði Beaufort óþolin-
móður. Ég bið yður einungis að
koma með mér og leyfa mér að
bjarga yður. Þér eruð i bráðri hættu
hér.”
„Frakkar og englendingar eiga í
stríði. Enska lögreglan mun ekki
hafa upp á mér hér.”
„Ég er ekki að tala um það.
Hættan stafar af öðru og meiru en
ensku lögreglunni. ”
„Hvers konar hætta?”
„Það get ég ekki sagt yður, en
það er mikill háski á ferðum.”
„Ef bér viljið að ég trúi yður
verðið þér að segja mér, hvað það
er.”
„Nei, mér er það ómögulegt.”
„Þá hef ég engan áhuga á
þessari þokukenndu viðvörun yðar.
Og segjum svo að ég sé í hættu,
af hverju er yður þá svona áfram
um að hjálpa mér?”
„Kannski vegna þess, að ég hef
aldrei getað afborið að sjá sann-
kallað listaverk ^yðilagt, ef til vill
af því, að mig langar til þess að
gefa yður aftur jafnvirði þess, sem
ég tók frá yður. Komið með mér.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt
21. TBL. VIKAN 29