Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.06.1976, Side 34

Vikan - 17.06.1976, Side 34
einu. „Er það vegna samúðar yðar við stjórnina?” Arcadius de Jolival yppti öxl- um. „Ef Bruslart ætlaði sér að fang- elsa alla þá, sem aðhyllast þessa stjórn, þá þyrfti hann rýmri vistarveru en þessa hérna. Nei, ég er í hálfgerðu skuldafangelsi.” „Nú, hverjum skuldið þér?” „Dame Desormeaux, öðru nafni Fanchon-Fleur de Lys. Ég hygg að þér hafið hitt þá markverðu konu?” „Þetta tötralega, gamla skass? Skuldið þér henni peninga?” sagði Marianne og varð æ ráðvillt- ari. „Já, raunar.” Jolival reyndi að láta fara betur um sig og hélt áfram. „Þér skulið ekki gera of mikið úr druslunum, sem hún er í. Hún klæðir sig eftir því sem við á. Ég hef séð hana klædda líkt og hún væri keisaraynja.” „Hún er hræðileg.” „Já, siðferðilega. Verri gerast þær varla, en þetta var eitt sinn fögur kona. Vitið þér hvernig hún fékk þessa nafngift sína?” „Nei, hvernig ætti ég að vita það? Ég hef aðeins séð hana einu sinni.” „Hún má muna sinn fífil fegri. Þegar hún var upp á sitt besta, var Fanchon eins fögur og lilja og Loðvik 15. eerði hosur sinar grænar fyrir henni. Þau áttu meira að segja eina dóttur saman, Manette, og hún var jafn fögur og móðir hennar. En metnaði Fanchons fyrir hönd dóttur sinnar voru engin takmörk sett. Hún lét ala hana upp eins og prinsessu, sem hún raunar var og einmitt í þessu klaustri, sem við erum stödd í. Á meðan lét móðir hennar heldur betur hendur standa fram úr ermum og stundaði ábatasama iðju, en var ekki beint vel séð af heldra fólkinu. Endirinn varð svo sá, að hún varð að krjúpa fyrir framan böðul Parísarborgar og lilja var brennimerkt á hægri öxl hennar. En hún kunni ekki að stammnt sín og hældist um yfir þessu. Þegar allt kom til alls, þekkti hún mæta vel liljuna úr svefnherbergi konungs. Þessi lilja varð svo til þess, að hún komst í gegnum bylt- inguna án þess að fá á sig svo mikið sem skrámu og meira að segja jók hún við auðæfi sín. Manette var alin upp sem hefðar- mær og hegðaði sér þvi miður samkvæmt því þar til yfir lauk. Þann dag, sem dóttir Fanchon var gerð höfðinu styttri, sór hún þess dýran eið að berjast gegn bylting- unni og öllu sem fylgdi í kjölfar hennar. I dag á konungurinn eng- an hollari fylgismann og vita- skuld hatar hún keisarann í jafn rfkum mæli.” IISSI & PINNI Stórkostleg hugmynd, skipstjóri! Éghef heyrt þaö sé dásamlegt að vera á Tahiti' _ og þar séu dansandi stelpur og, 1 bjölluhljómur eins og fegursta tón- | ■“ „list... ■ *)/> Þvilik heppni! Nú skulum við hlusta! t Þegar við erum farnir, Skeggur. Þá verður gaman! Þá fáum við frið fyrir mömmu og þurfum ekki að höggva við, mála þök og þræla allan daginn! Við förum í?, © King Fc»lure« Syndiote, lnc„ I9?4. WorldtighU - og margt annað sem er þess virði að líta á. Vörur fyrir alla - Verð fyrir alla IÉKK- KKISTVLI. Laugavegi 15, s(mi 14320. Mikið og vandað vöruúrval. Handskorinn kristall Mótaður kristall Litaður kristall Glervörur í miklu úrvali Onix vörur mjög fallegar Styttur í fjölbreyttu úrvali Keramik frá Glit 34 VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.