Vikan - 24.06.1976, Side 14
Sviffluga með hjálparmótor er líka til, og hér er ein slík í lendingu.
I
Svifflug hlýtur að vera óska-
draumur flestra unglinga, þvi fátt
er hægt að hugsa sér skemmti-
legra en að svífa einn í svifflugu,
heyra aðeins vindinn gæla við
vængina og vera laus við alla
mótorskelli, bensín og oliulykt,
sem alltaf fylgir vélflugum.
Svifflug hefur verið stundað hér
síðan fyrir síðari heimsstyrjöld, og
eftir þvi sem ég hef komist næst
hefur Sandskeiðið verið aðalbæki
stoð svifflugmanna frá upphafi.
Þegar ég var unglingur fór ég
snemma að þvælast upp á Skeið
'eins og Sandskeiðið er oftast
CORYSESALOMÉ
Snyrtivörur í
sérflokki
Mildar vörur
unnar úr jurtaríkinu.
Fást í helztu
snyrtivöruverzlunum
landsins.
KRISTJÁNSSON H.F.
Símar 12800, 14878
heildsölubirgðir.
U VIKAN 26. TBL.
kallað', og ekki leið á löngu þar til
ég fór að læra, en þegar skelli-
nöðrutímabilið fór í hönd varð
svifflugið útundan, svo að ég
hætti. Alla tíð síðan hef ég ætlað
að byrja aftur, og í hvert sinn sem
ekið er framhjá Skeiðinu rifjast
upp gamlar minningar. Loks lét ég
verða af því að fara upp eftir, en
þá var kennsluvélin ekki komin,
svo lét mér nægja að horfa á, og
Jim, sem auðvitað var með, tók
myndir af því, sem fyrir augu bar.
Aðeins tvær svifflugur voru
upp frá þennan laugardag og fáir
af félögum Svifflugfélagsins. Þrátt
fyrir það var flogið af ákafa allan
tímann og aldrei stoppað. i einu
flugtakinu slitnaði virinn, sem
dregur sviffluguna á loft, en
flugmanninum tókst að lenda
mjúklega fyrir það. Rokið var upp
til handa og fóta og vírinn
splæstur saman í einum hvelli, svo
töfin yrði ekki of mikil.
Það er kannski best að útskýra,
hvernig svifflugurnar eru dregnar í
loftið, en til þess er oftast notað
spil, sem knúið er átta cylindra
mótor. Spil þetta er staðsett á
öðrum enda vallarins, en svifflug-
an á hinum. Vír úr spilinu er
dreginn yfir allt Skeiðið og tengd-
ur í sviffluguna. Þegar farið er í
loftið er spilið sett í gír og allt
i botn Stjórnandi spilsins
sl.f af bensíngjöfinm, þegar svif-
fiuyan ér í vissri fjarlægð, en þá
togar flugmaður svifflugunnar í
takka og virinn fellur til jarðar.
Margir halda, að svifflug sé
stórhættulegt, en það er mesti
misskilningur, því meðal artnars er
enginn mótor í svifflugu, sem
getur bilað. Svífflugur eru byggð-
ar til þess að svifa, og þótt ekked
uppstreymi sé til þess að hægt sé
að hækka flugið nær flugmaður-
inn alltaf nægilegri hæð til að fara
tvo til þrjá hringi í nágrenni við
völlinn og lenda svo. Einnig er
hægt að nota vélflugur til að draga
svifflugur í loftið, en það er yfirleitt
Lent mjúklega, /oftbremsurnar koma upp úr vængjunum.
Hér sést vel, hvernig vírinn er tengdur í sviffluguna. Pokinn a
virnum er fallhlíf til að draga úr falli vírsins, þegar honum er sleppt.
Vírinn splæstur saman með b/ýtengjum, sem eru ótrúlega sterk.
+