Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 34
Ný aðferð við skurðlækningar
.Í'Æ;
Í-AAW-'
■. :. ■ " ■';■'■
Pad lok sextan klukkustundir að saurna þessa fingur á aftur.
Eftir átta vikur er sjúklingurinn orðinn svo góður i hendinni, að
hann er farinn að geta handfjatiað penna.
Að kvöldi 17. mars 1976 var 200
læknum boðið að verða vitni að
því, er nýr kapítuli var skráður í
sögu læknavísindanna. í fyrirlestr-
arsal B í sjúkrahúsi tækniháskól-
ans í Munchen var átján ára
gamall bakaralærlingur leiddur
fram fyrir þá. Hélt sá hægri hendi
sinni hreykinn á lofti og iðaði
fingrunum sem mest hann mátti.
Átta vikum áður hafði vél sú í
bakaríinu, sem skammtar deigið,
tætt af honum þessa sömu hönd.
Á tíu og hálfri klukkustund saum-
uðu skurðlæknarnir dr. Biemer og
dr. Duspiva hendina aftur á
handlegginn. Fingurnir urðu
smátt og smátt rjóðir á ný,
volgnuðu og tóku að hreyfast. Nú
er aðeins eitt, sem minnir bakara-
sveininn unga á óhappið, en það
er örið sem hringar sig utan um
höndina á honum.
Það sein gerir þennan árangur
kleifan — álimun í stað aflimunar
— er ný en erfið skurðstofutækni,
skurðaðgerðir með hjálp smásjár.
Smásjáin, sem notuð er við
aðgerðir af þessu tagi, stækkar
tuttugu til þrjátíu sinnum, og ekki
er vanþörf á, þegar verið er að
sauma saman smáæðar og sinar,
sem eru ekki nema hálfur milli-
metri í þvermál. Nálarnar, sem
notaðar eru í þessu skyni, eru ekki
af grófustu gerð, raunar svo fínar
að þær sjást vart með berum
augum, og tvinninn, sem er úr
gerviefni, er þrisvar sinnum
grennri en grennsta meyjarhár.
Þetta sama kvöld voru alls sjö
sjúklingar leiddir fyrir læknana
200, og hafði þeim öllum verið
hjálpað með þessari nýju aðferð.
Á þá höfðu verið græddar samtals
tvær hendur og þrettán fingur, en
fram til þessa hefur læknahópn-
um, sem við aðgerðirnar fæst
undir stjórn prófessors Ursulu
Schmidt-Tintemann, tekist að
græða limi á tuttugu og sex af
hverjum tuttugu og sjö sjúkling-
um, sem hann hefir haft til
meðferðar.
34 VIKAN 26. TBL.