Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 29
3. hluti.
Örninn og næturgalinn.
13. kafli.
Grikkland, Róm og Karþagó
mynda bandalag.
Marianne vaknaði af órólegum
svefni, sem hver martröðin af
annarri hafði rofið og var komin
með sótthita, þótt hún lægi þarna
í hlýjum hálminum. Hún var með
særindi í hálsi og brátt byrjaði
hún að hósta. „Þér hafið heldur
betur kvefast,” sagði Arcadius
hinn nýi vinur hennar. „Yður var
líka mjög kalt þegar komið var
með yður hingað. Þér þurfið á
umnönnun að halda."
Hann lét ekki standa við orðin
tóm og þegar Requin færði þeim
mat fór hann fram á, að hann
kæmi með teppi handa henni,
mixtúru gegn kvefinu og heitt
púns.
„Ég hef ekki fengið neina fyrir-
skipun um það,” sagði maðurinn
hranalega. „Mér er alveg sama,
þótt hún gefi upp öndina hér.”
„Ekki er ég viss um að Fanchon
sé á sama máli, enda myndi ridd-
arinn láta hana svara til ska ef
svo færi. Ef þér hafið ekki fengið
neina fyrirskipun, skulið þér
verða yður úti um hana.”
Requin drattaðist ólundarlega
út aftur, en hann kom aftur eftir
skamma stund með bunka af
teppum sem hann fleygði kæru-
leysislega í Marianne. Síðan dró
hann pela upp úr vasa sínum.
„Mixtúra,” sagði hann.
„Ég bað líka um heitt púns!
JULIETTE
BENZONI
C Opera Mundi Paris
„Það kemur.. .“
Hann stóð þarna andartak og
átti bersýnilega í töluverðri innri
baráttu. Loksins stundi hann
þungan, dró upp annan pela og
rétti Arcadius. Það var engu
líkara, en hann væri að skilja við
góðan vin.
„Romm," rumdi í honum.
Arcadius brá flöskunni upp í
birtuna og hló.
„Hann er ekki fullur! Hafið þér
tekið toll af tomminu? Nú, við
skulum láta það kyrrt liggja, ef
þér færið mér allt, sem ég þarfn-
ast handa henni.“
„Ég held hún megi deyja,“
muldraði hinn rámri röddu.
„Þér hafið þegar sagt það, en
farið nú og gerið það sem ég segi,
élla klaga ég yður fyrir Fanchonr
Jolival settist móðurlega við
hliðina á sjúklingnum og lét hana
súpa á meðalinu. Því næst
breiddi hann teppin vandlega yfir
hana. Sjálf hafði hún ekki hugsun
á neinu. Hún var dauðþreytt og
auk þess gráti næst. Hún hafði
sjaldan orðið veik um ævina og
hafði því enga þolinmæði til þess
að mæta sliku. Veikindin juku
einungis á löngun hennar til þess
flýja úr þessum helli, sem minnti
hana ónotalega á grafhvelfingu.
Hún vildi ekki deyja þarna eins
og melrakki í greni sínu.
Örvæntingin sem hafði gagntekið
hana um nóttina var horfin, en í
staðinn var komin ómeðvituð
sjálfsbjargarviðleitni.
Sótthitinn varð til þess að hver
hugsun rak aðra. Hún reyndi að
upphugsa einhverja íeið út úr
þessum vanda, því að þótt
Bruslart ætlaði ekki að drepa
hana, þá var hún ekki eins viss
hvað snerti Morvan. Hann var
ákveðinn í því að refsa henni,
jafnvel þó hann þyrfti að ganga í
berhögg við óskir riddarans. Að
vísu myndi hann kannski gera sig
ánægðan með ef Fanchon gerði
hana að auðvirðilegri skækju í
hóruhúsi sínu. Morvan hafði
raunar farið með Bruslart og
hinum Riddurum skuggans, en
hann myndi koma aftur og hver
vissi nema honum lánaðist að
sannfæra riddarann um, að best
væri að drepa hana. Hann .afetti
öruggan bandamann þar sem
Saint Hubert barón var, en hann
hafði megnustu fyrirlitningu á
Marianne. Á meðan hún væri að
veslast upp í þessari dýflissu voru
þeir kannski að þjarma að
Bruslart og fá hann til þess að
fallast á sitt mál. Þeim mun
meira, sem hún hugsaði um þetta,
því sannfærðari varð hún um, að
kosturinn yrði einn af tvennu,
Signa ellegar hóruhúsið að
Ranelagh. Hún varð þess vegna að
flýja. En hvernig?
„Verið nú ekki með þessar
áhyggjur," sagði Jolival vingjarn-
lega og rauf þar með hugsanir
hennar. „Þér hugsið of stíft.
Maðurinn, sem féll að fótum yðar
í gærkvöldi er einvaldur og hann
mun vissulega hafa uppi á yður.‘-
„Ef hann óskaði eftir nærveru
minni i kvöld myndi vera smuga,
en hann kvaðst ekki geta hitt mig
aftur fyrr en eftir nokkra daga.
Ef hann gerir það þá nokkurn
tíma."
„Þér vanmetið sjálfa yður. Ég
er viss um, að hann hugsar til
yðar.“
„Þér eruð traustur vinur, en ég
veit að þér eruð einungis að
r
%
Myndrænar veggfóðursmyndir sem gera skemmtilega breytingu á heimilinu, rúmlega 4 metra breiðar,
full lofthæð.
Einnig fjöldi mynda á innihurðir.
Skemmtileg nýjung.
Grensásvegi 11 - sími 83500. Bankastræti 7 - sími 11496.
Skemmtileg nýjung
26. TBL. VIKAN 29