Vikan

Tölublað

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 24

Vikan - 24.06.1976, Blaðsíða 24
SVEIN/tSONGUK Á annað hundrað þátttakendum á ráðstefnu slökkviliðsmanna var boðið til slökkvistöðvar Keflavíkurflugvallar fyrirskömmu til að kynna sérstörf þeirra og allan aðbúnað. Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri og sveinar hans höfðu skipulagt móttökurnar með prýði og gerðu daginn lærdómsríkan og eftir- minnilegan öllum gestum. EF ÞÚ einhverntíma átt samræður við einn hinna mörgu yfirmanna slökkviliðs Keflavíkurflugvallar, þá skaltu vera vel á verði, því þú getur hæglega hrokkið svo illilega við, að það taki þig langan tíma að jafna þig aftur. Ég átti viðræður við einn slíkan nú nýlega, þegar óþekkt, skipandi rödd blandaði sér skyndilega inn í samtalið, og ég heyrði ekki betur en hún kæmi beint úr vasa þess, sem ég var að ræða við í mesta bróðerni. Satt að segja þá brá még svo ónotalega við að ég man hreint ekki, hvað röddin sagði, enda kom það samtalinu ekkert við. Mig minnir að hún hafi sagt eitthvað þessu Kkt: „Fjörutíu og fjórir. Fjörutíu og fjórir. Viltu taka tuttugu og fimm. Ég endurtek..." FHefði þér ekki brugðið? Og ekki batnaði það, þegar fjörutíu og fjórir tók röddina altalandi upp úr rassvasanum og fór að rífast við hana eins og ekkert hefði í skorist. Satt að segja þá greip ég krampataki um borðrönd og hélt mér þar dauðahaldi þangað til röddin var þögnuð og fjörutíu og fjórir hafði stungið henni aftur ofan í vasann. Hann brosti rólega þegar hann sá svipinn á mér og sagði: „Tuttugu og átta er að drepast úr tannpínu og þarf að komast til tannlæknis fyrir klukkan hálftvö. Ég verð víst að skjóta honum þangaö snöggvast. Sé þig seinna." Og hann var rokinn. Eg hitti svo fjörutíu og fjóra seinna um daginn þegar hann var búinn að kveikja í flugvél og þrjátíu og sjö og sextíu og átta voru Augnabliki sfðar eru Sveinar búnir að slökkva bálið og ef veler gáð sjáum við þrjá þeirra inni t flakinu önnum kafna við björgun farþega. Haraldur Stefánsson aðstoðars/.stj.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.