Vikan

Issue

Vikan - 24.06.1976, Page 30

Vikan - 24.06.1976, Page 30
 Sþáin gildir frá fímmtudcgi til miðvikudags flS? HRÚTLIRINN 21. mars - 20. april Tilbreytingarleysið er alveg að fara með geð- heilsu þína og þú ert neikvæðari en nokkru sinni áður. Reyndu að líta hlutina réttu auga. fSl| NAUTIÐ 21. april — 21. mai Reyndu að taka meira tillit til annarra. Sjálfselskan er að verða sterkasti þáttur skapgerðar þinnar og þú ættir að reyna að vinna bug á þessu sem fyrst. jjgf TVÍBURARNIR 22. mai - 21. júni Gamlar minningar sækja á og þér finnst sem þú hafir týnt einhverju í lífinu, sem var þér mikils virði. Leitaðu styrks hjá þínum nánustu. ®P’ KRABBINN 22. júni - 23. júií Með þér brenna óteljandi spurningar og þér finnst þú hvergi finna svör við þeim. Taktu þetta ekki of nærri þér, þú mætir meiri skilningi síðar. Wmm é LJÓNIÐ 24.júii -- 24. agúst Viðhorf þitt til margra hluta hefur verið með eindæmum barnalegt. Þrátt fyrir ríkar tilfinningar mættir þú nota skynsemina meira. MEYJAN 24. ágúst — 23. sept. Einhverjar illdeilur virðast ætla að koma þér í koll á nokkuð óvæntan hátt. Reyndu að jafna málin hið skjótasta svo ekki fari verr. VOGIN 24. sept — 23. okt. Skemmtilegir dagar eru að líða hjá og við \ tekur grár hversdagsleikinn. Þú átt erfitt með að sætta þig við breytinguna, þótt yfirleitt takir þú því vel. SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. Einhver reynir að pretta þig, en þú áttar þig í tíma og fellir hann á sjálfs hans bragði. Gættu þess þó að ofmetnast ekki af sigrinum. BOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des. Miklar áætlanir hafa orðið til í höfðinu á þér og ættir þú að koma þeim á framfæri hið skjótasta. Þetta er örugglega allrar umræðu vert. Hr STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. Skap þitt er ekki með allra besta móti þessa dagana og þú hefðir gott af því að taka örlítið meira tillit til þeirra sem yngri eru. VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr. Ótrúleg heppni eltir þig á röndum og þú ert í sjöunda himni. Lífshamingjan lýsir af þér og bókstaflega ekkert getur raskað ró þinni. FISKARNIR 20. febr. - 20. mars Dugnaður þinn er með eindæmum og ekkert virðist vera þér ómögulegt. Þar sannast, að viljinn einn ber menn að minnsta kosti hálfa leiðina. STcJÖRNUiPfl hugga mig. Sá möguleiki er líka fyrir hendi, aö ég hafði aðeins verið honum stundargaman. Er engin önnur kona í lífi hans? Ég heyrði rætt um það heima hjá furstanum af Benevento, að ein- hver pólsk greifynja væri með í spilinu.“ „Walewska? Jú, rétt er það, að hún elskaði hann heitt og fórnaði öllu til að geta verið nærri honum. Það var vegna þess að hún var með barni, að hann ákvað að yfirgefa Jósefínu." „Þarna sjáið þér,“ stundi Marianne. „Walewska greifynja er farin frá honum. Það er ekki langt síðan, en hún er farin.“ „Vegna þess, að hann verður að kvænast aftur, og hún kærði sig ekki um að þjást. Hvers vegna ætti lánið fremur að leika við mig? Þeir kölluðu hana „pólsku konuna“ hans og hún er ung, falleg og tíginborin, en samt lét hann hana sigla sinn sjó. Hvað get ég farið fram á nema þessa einu nótt?“ í þetta sinn varð Arcadius de Jolival svarafátt. Hann veit, hugsaði Marianne, að ég hef á réttu að standa, en hann vill ekki játa það. Hann óttast að örvæntingin nái aftur tökum á mér. Nú fékk hún mikið hóstakast og Jolival flýtti sér að láta hana súpa á mixtúrunni, en síðan ætlaði hann að fá hana til þess að borða dálítið af súpunni sem Requin hafði komið með. En Marianne var ekkert svöng. Lyktin af súpunni olli henni velgju. „Eg er þyrst,“ sagði hún, „hræðilega þyrst.“ Hanh kinkaði kolli og færði henni vatn að drekka, sem hann hafði hitað dálítið yfir glóðar- lampanum. Því næst vafði hann teppunum þétt utan um hana og settist við hlið hennar. Er hún lá þarna þegjandi og örmagna af hitasóttinni, varð Marianne hugsað til Jason Beauforts. Henni gramdist nú, að hún skyldi ekki hafa þegið boð hans. Vonin um glæsta framtíð í leikhúsinu hafði orðið til þess að hún lét aðvaranir c/iusturstræti Á BÖRNIN1 SVEITINA Heklupeysur Heklubuxur Denimsett Ullarhosur Strigaskór Stígvél Styðjum íslenzkan iðnað 30 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.