Vikan - 24.06.1976, Qupperneq 31
hans sem vind um eyrun þjóta.
En nú kom á daginn, að hann
hafði haft á réttu að standa.
Hættan sem hann hafði sagt fyrir
um var nú orðin að veruleika og
nú gat hann ekki orðið henni að
neinu liði. Þegar Bruslart og
kumpánar hans kæmu aftur, væri
Ameríkaninn kominn út á rúm-
sjó. Að vísu hafði hann minnst á
vin sinn að nafni Paterson,
afríska ræðismanninn i Nantes,
en fyrir fanga I kalknámum
Chaillot hefði Nantes alveg eins
getað verið á Mars. Marianne
lygndi aftur augunum og reyndi
að neyða sjálfa sig til þess að
hugsa sem minnst. öll hugsun var
sársaukafull og jók aðeins á sótt-
hitann og hún vildi sem fyrst
verða ferðafær á ný.
Ein klukkustund leið af
annarri, dagur og nótt runnu
saman í eitt og engin leið að gera
greinarmun þar á. Klukkustund-
irnar voru eins og heilir dagar eða
jafnvel vikur. Tíminn sniglaðist
áfram og vökustundirnar voru
fullar af kvíða og óvissu. Þess á
milli féll hún í djúpan svefn, en
þegar hún vaknaði aftur skalf
hún frá hvirfli til ilja. Allan
þennan tíma var Arcadius óþreyt-
andi við að hlúa að henni. Hann
reyndi allt hvað hann gat að fá
hana til þess að borða, og taka inn
heilsudrykkinn. Einu sinni á dag
kom Fanchon til þess að sjá
hverju fram yndi. Hún sýndi
þeim enga miskunn, en mældi
þau út líkt og hestaprangari, sem
heldur að hann sé að verða af
góðum káupum.
„Hún er eins og garðyrkju-
bóndi að líta eftir salatinu sínu,
þegar næturfrostin fara í hönd,“
sagði Arcidius og reyndi að gera
sér upp glaðværð. En hlátur hans
þagnaði fljótt í þessu þrúgandi
andrúmslofti dýflissunnar.
Annars annaðist Requin þau á
sinn óþýða, fráhrindandi hátt.
Jafnvel þótt Marianne hefði átt
einhverja peninga, hefði hún ekki
þorað að reyna að múta honum.
Hann þjónaði Fanchon-Fleur de
Lys eins og tryggur hundur og
það myndi ekki nægja að fleygja í
hann beini.
Samt náði hún sér smám
saman. Lengra varð á milli hósta-
kastanna, hitinn lækkaði og
brostin rödd hennar náði aftur
eðlilegum styrkleika. Inn á milli
tókst Marianne að brosa að
hinum trygglynda vini sínum.
„Ég held að mér sé að skána, en
ég hefði engan veginn komist yfir
þetta án yðar aðstoðar."
„O-jú, þér eruð mjög ungar og
ég hef einungis létt undir með
náttúrunni. Þér hefðuð áreiðan-
lega jafnað yður upp á eigin
spýtur."
Hún hristi höfuðið og sem
snöggvast varð hún hugsi.
„Nei,“ muldraði hún, „vegna
þess að ef þér hefðuð ekki verið
hér, þá hefði lífslöngunin fjarað
út.“
í fyrsta skipti siðan hún var
handtekin sofnaði hún nú værum
svefni, þeirrar ættar, sem er mun
meira endurnærandi en nokkurt
meðal á jörðu. Hana dreymdi, að
hún væri á leið í svarta vagninum
til Butard, skínandi eins og
stjarna, en allt í kring var snævi-
þakin jörðin. En svo vaknaði hún
upp með andfælum við
ókennilegt hljóð. Hún settist upp
og sá hvar Arcadius sat úti í
horni. Hann var einnig vakandi
og lagði við hlustirnar. Augu
þeirra mættust þarna í hálfrökkf-
inu.
„Hvað er þetta?“ hvíslaði
Marianne.
„Mér fannst eins og steini væri
velt. Hlustið! Þarna endurtekur
það sig. Hljóðið kemur einhvers
staðar innan úr námunni."
Jolival hafði þegar skýrt það
fyrir Marianne að gangurinn
fyrir utan klefa þeirra tæki enda
við vegg skammt undan.
Nú heyrðist einhvers konar
krafs, en því næst ótvíræð blóts-
yrði. Arcadius spratt á fætur.
Flöktandi kertaljós birtist í gang-
inum og það nálgaðist óðum.
Marianne var nú einnig staðin á
fætur og gekk í áttina að félaga
sínum. Það var greinilega einhver
að koma, en hver og hvaðan hafði
hann komið?
„Þeir hljóta að hafa grafið sig í
gegnum vegginn," hvíslaði Joli-
val. „Með góðum verkfærum er
auðvelt að rjúfa gat á kalksteins-
veginn. En hver. ..“
Hann lauk ekki við setninguna.
Ljósið nálgaðist. Þau heyrðu létt
fótatak. Skuggi birtist á veggnum
og Marianne færði sig nær
Arcadiusi. En svo bældi hún
Þarft þú
aðveitavatni?
Tveggja áratuga reynsla af plaströrum
frá Reykjalundi hefur sannað að
ekkert vatnslagnaefni hentar betur
íslenskum aðstæðum.
Plaströr eru létt og sterk og sérstak-
lega auðveld í notkun.
Plaströr þola jarðrask og jarðsig.
Plaströr má leggja án tenginga svo
hundruðum metra skiptir.
Plaströr eru langódýrasta en jafnframt
varanlegasta vatnslagnaefni á markaðnum.
Plaströrin frá Reykjalundi fást í stærð-
um frá 20 m/m - 315 m/m (/2 "-12 ”).
Grennri rör fást í allt að 200 metra
rúllum (20-90m/m) en sverari rör í 10
og 15 metra lengdum (110-315 m/m).
Við höfum allar gerðir tengistykkja og
veitum þjónustu við samsuðu á rörunum.
Þurfir þú að veita vatni skaltu hafa
samband við söludeild okkar.
REYKJALUNDUR
Mosfellssveit. Sími 66200.
26. TBL. VIKAN 31