Vikan - 07.10.1976, Qupperneq 11
Áform mín gagnvart dóttur
þinni eru fullkomlega heiðarleg
— ég ætla að biðja hana að
hreinsa skeliinöðruna mina.
I NÆSTU VIKU
VIÐTAL VIÐ OLGU GUÐRÚNU
Olga Guðrún Árnadóttir varð landsfræg fyrir fáeinum
árum, þegar banna átti lestur hennar á barnasögu í
útvarpinu. Ennþá frægari varð hún á síðasta ári
fyrir bráðskemmtilega plötu, sem orðið hefur geysilega
vinsæl. Olga Guðrún er ófeimin að láta skoðanir
sínar í ljósi, eins og sjá má í viðtali, sem birtist í
næstu VIKU. Örlítið sýnishorn: ,,Ég hef svo rótgróna
andúð á þessu skólakerfi okkar, að mér'finnst að
leggja ætti niður hefðbundna kennslu í nokkur ár og
nota húsnæðið til einhvers skemmtilegra og þroska-
vænlegra.”
Má ég biðja þig um að koma
ekki í svona æpandi fötum
næst.
Ég hef augu í hausnum, og ég
sé, aö þú hefur fariö inn (
lárviöarrunnana með Oktavíu.
HADDA FER j BÚÐIR
HADDA FER I BÚÐIR nefnist þáttur, sem hleypt er
af stokkunum I næstu VIKU. Okkur hefur lengi dreymt
um að koma á slíkum þætti, þar sem lesendum eru
gefnar vísbendingar um sitthvað, sem á boðstólum
er I íslenskum verlsunum. HADDA mun tína til eitt
og artnað, sem hún sér á búðarrölti sínu, og við
birtum þennan fróðleik eftir því, sem rfni standa til,
en alltaf eitthvað I hverju blaði.
SUNDABORG ER FYRIRMYNDARBORG
Inni I Sundahöfn er stórhýsi mikið, sem nefnist
Sundaborg, og blaðamaður VIKUNNAR, sem fór
þangað nýlega I könnunarleiðangur, komst að þeirri
niðurstöðu, að Sundaborg væri fyrirmyndarborg.
I Sundaborg hafa 26 fyrirtæki aðsetur I sama húsi, og
allur rekstur þeirra, sem kalla má sameiginlegan, fer
fram hjá þeirra eigin þjónustufyrirtæki. Við fræðumst
nánar um þessa athyglisverðu starfsemi I næstu Viku.
NY FRAMHALDSSAGA
,,Það hafði rignt slðan fyrir dögun. Fínum, köldum
regndropum, sem settu hroll I hópinn, sem var að
myndast milli St. James og Buckinghamhallarinnar og
alla leið upp að Constitution Hill. Hópur af æstu
fólki”. Þannig hefst framhaldssagan „Paddington
Green” eftir Claire Rayner, sem byrjar I næstu
VIKU. Þessi orð segja kannski ekki mikið, en þó nóg til
þess, að áreiðanlega fýsir marga a 5 lesa áfram.
JACK NICHOLSON GEKK VEL j SKÓLA
Faðir Jacks Nicholson var málari, og móðir hans rak
snyrtivöruverslun. Jack stóð sig vel I skóla og hefði
auðveldlega getað fengið styrk til háskólanáms, en
eftir að hann hafði einu sinni troðið upp á skóla-
skemmtun gat ekkert fengið hann ofan af þvl að vinna
á sviðinu. Árum saman varð hann nánast að betla
hlutverk, en nú er svo komið, að hann hefur ekki við að
neita þeim. Sjá nánar um Jack Nicholson I næstu VIKU.
VIKAN Otgefandi Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Trausti ölafsson,
Guðmundur Karlsson, Ásthildur Kjartansdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson. Utlitsteiknari: Þorbergur
Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla
og dreifing Síðumúla 12. Slmar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð I lausasölu kr. 300. Áskriftarverð kr.
3.350 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 6.320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 11.700 I ársáskrift.
Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddapar: nóvember, febrúar, maí, ágúst.
41. TBL, VIKAN 11