Vikan - 07.10.1976, Page 33
Allir muna eftir litlu fallegu kon-
unni hans Sukarnos indónesíufor-
seta, sem var svo lánsöm að vera
víðs fjarri, þegar honum var steypt
af stóli. Ratna Dewi var leikkona I
Japan, áður en hún varð forseta-
frú í Indónesíu, en síðan hún varð
ekkja árið 1970 hefur hún stundað
ljúfa lífið I Evrópu.
Ratna var trú Sukarno allt til
dauða hans. En hún lét ekki sorg og
sút ná tökum á sér, þegar eiginmað-
urinn var allur, en sneri sér snarlega
að evrópskum karlmönnum. Hún
fékk sér íbúð í París og hélt inn-
reið slna í samkvsemislífið þar og
víðar í Evrópu. Meðal fylgisveina
hennar má nefna Aga Khan, David
de Rotschild unga, og jafnvel
Bernhard prins I Hollandi taldist til
kunningjahóps hennar.
Ratna Dewi er fögur kona, og
heimspressan hefur fylgst með
ævintýrum hennar af miklum
áhuga og margsinnis ýtt henni hálfa
leið upp að altarinu. En hvernig
scm á því stendur hefur Ratna alltaf
gugnað. þegar hún var farin að
heyra óminn af brúðkaupsklukk-
unum, og snúið sér af mikilli ákefð
að öðrum mönnum. Ástarsambönd
hcnnar hafa ekki reynst byggð á
traustari grunni cn ríki bónda
hcnnarfyrrum.
Enski kaupsýslumaðurinn John
Bentley var stöðugt við hennar hlið
um skeið, en skarð hans fyllti svo
franski söngvarinn Alain Chamfort.
Þá kom tímabil I ævi hinnar kátu
ekkju, þegar hún sneri sér einkum
að glaumgosum, og þá fyrst fór
kjaftakvörnin I gang. En hversu
ákaft sem Ratna stundaði Ijúfa lífið
og hversu oft sem hcimspressan
trúlofaði hana, var hún alltaf jafn
engilbjört og fögur.
En nú er Ratna Dewi orðin 36
ára, og jafnvel fegurðardís frá landi
sólarupprásarinnar hlýtur að beygja
sig fyrir ellinni að lokum. Þetta er
Rötnu ljóst, og nú hermir sagan, að
hún sé farin að hugsa alvarlega um
framtíðina. Trúfastur fylgisveinn
hennar um þessar mundir er 38 ára
gamall franskur hertogi, Elzear de
Sabran-Pontives, og þar sem hann
er hvorki neinn glaumgosi né ræður
yfir umtalsverðum fjármunum, þá
telja kunnugir, að nú hljóti alvara
að vcra I spilinu.
Með glaumgosanum Auboin de
Bardot.
Með söngvaranum Al Chamfort.
Með enska kaupsýslumanninum
John Bentley.
Verður Ezear de Sabran-Pontives
loks til þess að binda endi á ekkju-
standið?
KHTA
KKMM
Með Sukamo forseta.
41. TBL. VIKAN 33