Vikan


Vikan - 21.07.1977, Side 21

Vikan - 21.07.1977, Side 21
Samstarfið við Færeyinga hefur verið mjög ánægjulegt, og er vonandi, að það verði svo í framtíðinni. Ferjan kemur til Seyðisfjarðar á hverjum laugar- degi kl. 5-6 og fer þaöan aftur kl. 8. Verslanir eru opnar á þeim tíma, sem ferjan er í höfn og önnur þjónusta er til reiðu. Á laugar- dögum er því heilmikið um að vera í bænum, og oft er fjöldi aðkomu- fólks milli 500 og 1000 manns. Farfuglaheimilið á Seyðisfirði. Hér sjáum við Friðþjóf Þórarinsson á bryggjunni á Seyðisfirði, en hann hefur í mörg ár flutt ferðafólk yfir i Loðmundarfjörð. VEÐURFARIÐ EINSDÆMI Ekki er hægt að ferðast um Austurland, án þess að koma við í Hallormsstaðarskógi. Þar hefur Skógrækt ríkisins miðstöð starf- semi sinnar á Austurlandi, og er skógurinn mikill og fallegur. Á Hallormsstað er heimavistarskóli og húsmæðraskóli, þar sem rekið er hótel á sumrin. Þar eru 27 gisti- herbergi með 2—4 rúmum hvert og prýðileg veitingasala. Einnig er hægt að fá þar svefnpokapláss, sem hafa verið mjög vinsæl. Verð á gistingu er sem hér segir: Eins manns herbergi , kr. 2600.- Tveggja manna herb. kr. 3300.- Aukarúm í herb. kr. 700,- Svefnpokapláss kr. 1000.- Morgunverður kr. 680.r Hótelstjóri er Vilborg Sigurðar- dóttir, en hún er nýtekin við stjórninni af Ásthildi Rafnar. Húsakynni hótelsins eru mjög skemmtileg, og það er rólegt og afslappandi að dvelja þar. I Hallormsstaðarskógi er margt hægt að skoða. Tjaldstæði eru aðeins á einum stað, í Atlavík, svo að aðrir hlutar skógarins eru ákaflega friðsælir. Merkir staðir, sem vert er að skoða, eru t. d.: Guttormslundur, en þar eru fjörutíu ára gömul lerkitré, sem eru mjög falleg og tignarleg. Eins er Gróðrarstöðin sérstaklega at- hyglisverð. i sumar mun Jón Loftsson skógfræðingur skipu- leggja svonefnda ratleiki um skóginn, og verða þeir eflaust mjög vinsælir. Annars eru greið- færar götur um allan skóginn, og er ákaflega gaman að ganga þar um. Stundum kemur fyrir, að hreindýr sjást þar, jafnvel alveg heima við hótelið, en það eru þá dýr, sem af einhverjum orsökum hafa orðið eftir niðri í byggð, þegar önnur hafa haldið til fjalla á vorin. Eftir viðdvöl í Hallormsstaðar- skógi er tilvalið að aka áfram inn Fljótsdalinn, sem er blómleg sveit, en vegurinn liggur í hring, þ.e. niður með Fljótinu að vestan til Egilsstaða. Á þessari leið eru nokkrir staðir, sem vert er að gefa gaum að. Ranaskógur er t.d. nokkru sunnar en Hallormsstaðar- skógur og er ákaflega fallegur, sérstaklega skógarbotninn. Á Val- þjófsstað er merkileg kirkja, sem er gaman að skoða, og svo er ekið framhjá Skriðuklaustri, sem Gunnar Gunnarsson skáld lét byggja á sínum tíma. Þá má líka nefna Hengifoss, sem er talinn einn af fallegustu fossum á landinu, en til þess að skoða hann þarf að labba spölkorn frá veginum. Rétt er að geta þess, að Ungmenna- og iþróttafélag Aust- urlands er um þessar mundir að gefa út bækling með staðarlýs- ingu af Hallormsstað. i honum er m.a. fjölþætt myndaefni og yfirlitskort af staðnum, sem ættu að koma ferðafólki að góðu gagni. Sigurður Blöndal skógræktarstjóri hefur tekið þennan bækling saman. Einnig er nú hægt að fá bæklinga um gönguleiðir á Aust- urlandi, og eru þeir mjög gagnlegir fyrir fólk, sem hefur áhuga á löngum gönguferðum. Sumarblíðan i Hallormsstaðar- skógi er alveg einstök að sögn þeirra, er þar hafa dvalið sumar- langt. Þar bærist varla hár á höfði, og þegar rignir, sem ekki gerist oft, er aðeins um hlýtt sumar- regn að ræða. Það er því engin furða, að Hallormsstaður skuli hafa verið með vinsælustu ferða- i mannastöðum landsins á undan- förnum árum og áratugum. ÝMISLEGT ANNAÐ Þetta, sem hér hefur verið um fjallað, er aðeins lítill hluti af ferðamannasvæði Austurlands. Frá Egilsstöðum er einnig þægi- legt að bregða sér í ferð niður á firði, eins og það er kallað, en þá erátt við Reyðarfjörð, Eskifjörð og Norðfjörð. Þar er alls staðar boðið upp á alla þá þjónustu, sem ferða- fólk þarfnast. Það er alltaf gaman að skreppa austur, og eins og ísiendingar vita víst allir, þá skiptir veðrið ekki svo litlu máli, ef ferða- skapið á að vera í toppstandi. , A.Á.S. — Keyptirðu eitthvað hjá Sölunefnd vamarliðseigna. 29. TBL.VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.