Vikan - 21.07.1977, Síða 65
t
'd hjartans.
rnahálfu konungsríki
ugliðsforingjann sinn
,,Aumingja Margrét," var við-
kvæðiðfyrirtuttugu árum. ,,Aum-
ingja Margrét," er líka sagt í dga.
Fallega og lífsglaða prinsessan
— „yndislega Rósa" — er nú
bitur miðaldra kona.
Og drottningin iðrast afskipta
sinna.
„Skyldur," hefur líklega verið
eitt af fyrstu orðunum, sem
Margrét Rósa heyrði sem barn.
Hún heyrði þetta orð oft, var sínkt
og heilagt minn á skyldur sínar við
föðurlandið. Skylduræknin olli
því, að hún yfirgaf manninn, sem
hún elskaði.
Margir grétu, þegar þeir lásu
yfirlýsingu Margrétar 31. október
1955:
,,Ég /ýsi því hér yfir, að ég hefi
ákveðið að giftast ekki Peter
Townsend, flugliðsforingja."
Þessi yfirlýsing, um að hún setti
boð kirkjunnar, skyldur og holl-
ustu við krúnuna, ofar eigin
óskum, var framkomin vegna
þrýstings frá Elísabetu drottningu
og manni hennar Filip prins.
Og drottningin iðrast...
Rithöfundurinn Róbert Lacey
hefur nýverið sent frá sér vinsæla
bók og að því að talið er áreiðan-
lega. Bókin heitir „Majesty," og
þar segir:
— Ef Elísabet gæti horfið aftur I
tímann, myndi hún leyfa systur
sinni að giftast Townsend.
Drottningin hefur viðurkennt
það fyrir sínum nánustu, að það
hafi verið mistök að banna
giftinguna, en það leiddi til
óhamingju fyrir Margréti. Hún
giftist Snowdon lávarði, og var
hjónaband þeirra óhamingjusamt.
Ástæðan fyrir því, að drottn-
ingin samþykkti skilnað þeirra
Margrétar og Snowdons, var ekki
samband Margrétar og hins 28 ára
gamla Roddy Llewellyn, heldur
sálarástand hennar. Hún var
niðurbrotin og varð að fara I
meðferð hjá sálfræðingi. Opinber-
lega var heilsufarsástand prins-
essunnar leyndarmál, skrifar
Lacey.
„Dóttirmín, Margrét prinsessa,
á ekki að telja sig bundna, þegar
hún velur þann mann, sem hún
óskar að giftast. Hún á að fá að
hlýða rödd hjartans."
Þetta sagði Georg VI konungur
opinberlega. En þá grunaði hann
ekki, að dóttir hans yrði ástfangin
af einum liðsmanna hans í hernum
— fráskildum manni og ótigin-
bornum.
Haustið 1943 óskaði Georg
kóngur eftir því að gera flughetjur
úr breska hernum að lífvörðum við
hirðina. Þetta var mikill heiður.
Meðal flugmannanna, sem sér-
stakt frægðarorð fór af, var Peter
Townsend flugliðsforingi.
í mars 1944 hlaut Townsend
útnefninguna. Hann var þrítugur
— Margrét prinsessa var fjórtán
ára.
Hlutverk hans var meðal annars
að fylgjast með heimilishaldi í
Buckingham höllinni og vera
tengiliður milli þjónustufólksins og
konungsfjölskyldunnar, afla upp-
lýsinga um fólk, sem óskaði eftir
áheyrn, skipuleggja kurteisisheim-
heimsóknir konungsfjölskyldunn-
ar og fylgja prinsessunum Elísa-
betu og Margréti í leikhús, veislur
eða annað, sem þær kusu að fara.
Vinir Townsend efuðust um, að
hann kynni við sig við hirðina. Það
var ólíklegt, að hinn hugrakki
flugmaður gæti haldið það út að
vera konungsþjónn og barnfóstra
prinsessanna.