Vikan - 24.04.1980, Blaðsíða 4
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980
Vikan, Hljómplötuútgátan, Ferda-
skrifstoEan Úrval kynna:
FULLTRÚI UNGU
KYNSLÓÐARINNAR
1980
8 stúlkur taka þátt í keppninni —
krýning í lok maí — sigurvegarinn
tekur þátt í alheimskeppninni á
Filippseyjum í haust — Sjöldí glæsi-
legra verðlauna að auki.
Svava Johansen er 16 ára gömul,
þriðja í röð 5 systkina og dóttir
hjónanna Kristínar og Rolfs
Johansen. Sem stendur stundar
hún nám í 9. bekk Langholtsskóla
og er staðráðin í því að ganga
menntaveginn. Hvers vegna?
— Jú, mig dreymir um að
komast til Frakklands, þá helst
Suður-Frakklands, og lœra málið.
Ég hef komið þangað og hreifst af
landi og þjóð. Allt umhverfi í
Frakklandi er svo skemmtilegt,
húsin, göturnar, fólkið. Ég gœti vel
hugsað mér að búa þar og starfa í
framtíðinni.
Svava leikur badminton á
hverjum degi, ánægjunnar vegna
en ekki línanna. Gaman hefur hún
einnig af lestri góðra bóka og þá
helst ástarsagna og glœpareyfara,
Ekki var hún þó frá þvi að gaman
gœti verið að kynna sér franskar
bókmenntir þegar fram í sœkti, en
eins og hún sjálf segir: — Ég er nú
ekki nema 16 ára ennþá.
Stúlka nr. 1.
SVAVA JOHANSEN:
Dreymir
um Frans
4 Vlkan 17. tbl.