Vikan - 24.04.1980, Blaðsíða 63
Sigurborg Sævarsdóttir, Illugagötu 46,
900 Vestmannaeyjum, óskar eftir penna-
vinum, stelpum og strákum á aldrinum
14-15 ára. Áhugamál hennar eru marg-
visleg og hún svarar öllum bréfum.
Þóra Jónsdóttir, Stillholti 14, 300
Akranesi, hefur áhuga á að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11-13 ára.
Áhugamál hennar eru íþróttir og margt
fleira.
Heiöu Hallsdöttur, Vesturgötu 133, 300
Akranesi, langar til að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 11-13 ára.
Áhugamál: íþróttir og margt fleira.
Sigrún Jónsdóttir, Bogabraut 14, 545
Skagaströnd, A-Hún., hefur áhuga á að
komast i bréfasamband við stelpur og
stráka á aldrinum 14-16 ára. Hún er sjálf
14 ára. Áhugamál hennar eru
margvísleg og hún svarar öllum bréfum.
IVlarit Kostöl, Landbrukskurset, 4850
Aamli, Norge, er 17 ára gömul norsk
stúlka sem hefur áhuga á að eignast
islenska pennavini. stráka og stelpur á
sama aldri. Áhugamál hennar eru allt
sem viðvikur landbúnaði, frímerki.
handavinna. gamlir dansar. bréfaskriftir
og fleira. Hún skrifar bæði á norsku og
ensku.
Guðný Hólmfríöur Axelsdóttir, Litlu-
Brekku, Höfðaströnd, 566 Hofsósi,
hefur áhuga á að eignast pennavini sem
fæddir eru á árunum 1965-1967. Hún er
sjálf fædd árið 1967. Æskilegt er að
mynd fylgi fyrsta bréfi.
Guórún Olga Baldvinsdóttir, Þúfum,
Öslandshlíð, 566 Hofsósi, hefur áhuga á
að eignast pennavini á aldrinum 15-17
ára. Hún er sjálf 17 ára. Hún óskar eftir
að mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er.
Bjarni Björn Sigurðsson, 632 Dcvon
Road, Comp. Hill, P.A. 17011, USA.er
islenskur 16 ára gamall strákur búsettur
i Ameríku. Hann hefur áhuga á að
skrifast á við stúlkur á aldrinum 14-16
ára. Hann skilur islensku en skrifar hana
ekki. Áhugamál hans eru íþróttir.
Ijósmyndun ogfleira.
Karl Þorsteinsson, box 7002, Reykjavík,
óskar eftir pennavinum á aldrinunt 17-
70 ára. Svarar öllum bréfum.
I
Guðrún Gunnsteinsdóttir og Unnur |
Pálína Guðmundsdóttir, 524
Norðurfirði, Strandasýslu. Við erum
liérna tvær og okkur langar að skrifast á
við 13-16 ára stráka. Erum sjálfar 14 og
erum alveg æðislegar Bæ, bæ. og skrifið
okkur nú. piltar
Kristín Benediktsdóttir, Hvalnesi,
Austur-Skaftafellssýslu, 781 Hornafirði,
óskar eftir að skrifast á við krakka á
öllum aldri, er sjálf 15 ára. Svarar öllum
bréfum.
Björg Linberg Kunólfsdóttir,
Brúarlandi, Deildardal, 566 Hofsósi,
óskar eftir að eignast pennavini á
aldrinum 15-17 ára. Hún er sjálf 17 ára.
Hún biður um að mynd fylgi fyrsta bréfi
ef hægt er.
Lovísa Guðnadóttir, Silfurbraut 2, 780
Höfn, Hornafirði, hefur áhuga á að
skrifast á við stelpur og stráka á
aldrinum 12-14 ára. Áhugamál hennar
eru diskótónlist, iþróttir, plaköt, dans og
margt fleira. Hún svarar öllum bréfum.
Margrét Ásgeirsdóttir, Heiðargerði 9,
108 Reykjavlk, óskar eftir að skrifast á
við stráka og stelpur á aldrinum 13-15
ára. Áhugamál eru t.d. hestar. diskó.
bækur, frimerki og margt fleira.
Kennararnir klára setningarnar fyrir mig!
Halló Póstur!
Við erum nýbyrjuð að kaupa Vikuna og mér finnst hún
ágæt. Mér finnst Pósturinn sérstaklega góður og er oft að
pæla í hlutum, sem fólk spyr um. Ég vona að þú svarir
þessu bréfi mínu fjótt og það eins vel og þú svarar mörgum
bréfum.
Mitt vandamál er að ég stama. Ég hef alltaf stamað en
það háði mér ekkert í grunnskólanum. Allir krakkarnir
þekktu mig og vissu að ég myndi klára setningarnar, þó það
tæki lengri tíma. Og þá var ég ekkert stressaður og stamaði
miklu minna. Eins var það með kennarana. Þeir meira að
segja tóku mig í taltíma og þá lagaðist þetta mikið. En núna
er ég byrjaður I fjölbraut og þá fór alll að versna. Krakk-
arnir horfa á mig og eru alltaf eitthvað að hvíslast og pískra
þegar ég er að tala. Og kennararnir nenna ekki að bíða eftir
því að ég klári setningarnar heldur klára þær fyrir mig,
spyrja svo næsta mann og ég er kannski ennþá í stressi í
miðri setningu þegar þriðji maður er spurður. Einnst þér
þetta ekki alvegferlegt? Eg er auðvitað alveg í hassi út af
þessu öllu saman og held mig úti í horni st'o það tali nú
örugglega enginn við mig. En mér finnst það leiðinlegt. Ég
er nefnilega ekki svoleiðis strákur sem vill vera einn. Mér
finnst gaman að vera með skemmtilegu fólki og hafa það
gaman. Og ég get sungið án þess að stama! Og mér hefur
alltaf þótt gaman I partíum.
Hvað get éggert í málinu? Égget ekki talað við hvern
einasta mann I mörg þúsund manna skóla, ha? Og útskýrt
fyrir þeim hvað ég er taugastrekktur út af þessu? Ég vona
að þú getir hjálpað mér. Kannski stamar þú líka og veist
hvernig manni líður!
Með þökk fyrir hjálpina. E‘nn svekktur.
Að vísu stamar Pósturinn ekki en getur þó auðveldlega gert
sér í hugarlund hvernig þér líður og finnst þú svo sannar-
lega ekki öfundsverður.
En það er engin ástæða til þess að gefast upp og fyrst og
fremst skaltu varast að láta þetta hafa of mikil áhrif á þig.
Þetta eldist sennilega af þér mjög fljótlega og þegar þú ert
farinn að samlagast nýja skólanum betur fer allt i sitt gamla
horf. Varastu samt að draga þig um of i hlé og það er alls
engin ástæða til þess að þú hangir úti í horni í eigin
aumingjaskap.
Það er að sjálfsögðu hinn mesti dónaskapur af kennurum
að ljúka fyrir þig setningum og jafnvel að gefa sér ekki tíma
til að leyfa þér að ná þér á strik, en þú getur treyst því að
þetta er einungis þeirra aðferð við að reyna að hjálpa þér
— en heldur misheppnuð!
Gættu þess umfram allt að láta þetta ekki vinna þér tjón
(meira en orðið er) og stofnaðu til kynna við nýju krakk-
ana. Þú skalt tala um þessi vandræði þín í léttum tóni og
gera jafnvel ofurlítið grín að sjálfum þér. Þá máttu vera viss
um að þú bæði hjálpar félögum þínum til að taka vandann
léttum tökum og losar sjálfan þig við alls kyns óþarfar
vangaveltur. Gerðu skólafélögunum ljósa grein fyrir að þér
þyki það ekki óþægilegt þótt þau tali um þetta við þig eða
svo þú heyrir og þá máttu vera viss um að stamið verður
þér auðveldara viðfangs.
Enn er sá kostur að leita læknishjálpar og þú átt þar um
margar leiðir að velja. Hins vegar ættir þú að geta læknað
þig mun betur sjálfur og ekki sakar þar sú reynsla og
þekking sem þú hefur hlotið í sambandi við fyrri talkennslu.
Reyndu umfram allt að forðast að hugsa um þetta sem
óleysanlegt vandamál því það gerir þér einungis erfiðara
fyrir í framtíðinni.
17. tbl. Víkan 63