Vikan - 24.07.1980, Qupperneq 2
30. tbl. 42. árg. 24. júlí 1980.
Verð kr.1500
GREINAR OG VIÐTÖL:
2 Mest um fólk: Frumsýning á Evitu i Reykjavík.
4 Lífsmark i Fljótsdal.
7 Flugkabarett.
8 Nýtt hótel á Njáluslóöum.
10 Skoplegir þjónar.
12 Guöfinna Eydal sálfræðingur: Kyn- líf á meðgöngutíma.
24 Golf frá 1936. Rætt viö Þorvald Ásgeirsson golfkennara.
28 Jónas Kristjánsson skrifar um veit- ingastaði í Árósum: Á borö við Holt og Sögu.
36 Hvað geta eftirlætisdýrin þin sagt þér um þig?
46 Vikan og Neytendasamtökin: Skyndimatur á borðið.
50 Ævar R. Kvaran: Látinn morfinisti segir frá.
SÖGUR:
18 Holocaust. 1. hluti framhaldssögu eftir Gerald Green. Eftir bók þess- ■ ari hefur verið gerður sjónvarps-, myndaflokkur, sem sýndur verður i sjónvarpinu i haust.
34 Willy Breinholst: Rosmarie er komin i bæinn.
Mest um fólk
Atriði úr Evitu. Það er hópur úr Jassballettskóla Báru sem flutti dansana í Evitu við mikinn fögnuð.
40 Meyjarfórnin, 11. hluti framhalds- sögunnar.
ÝMISLEGT:
14 Vikan og Heimilisiðnaöarfélag ís- lands: Tileinkað ári trésins.
31 Kate Bush — í opnu blaðsins er stór veggmynd af henni.
48 Eldhús Vikunnar og Klúbbur mat- reiðslumeistara: Graflax i sinneps- sósu.
*VlKAN. Olgefandí: Hílmir hf. Ritstjóri: Helgi
Pétursson. Blaöamenn: Borghildur Anna Jónsdóttir.
Eirikur Jónsson, Hrafnhildur Sveinsdóttir. Jóhanna'
Þráinsdóttir. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson.
Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar.
Sveinsson. Ritstjórn í Siöumúla 23. auglýsingar,.
afgreiðsla og dreifing í Þverholti 11, simi 27022.
Pósthólf 533. Verð í lausasölu 1500 kr. Áskriftarverö
kr. 5000 pr. mánuð. kr. 15.000 fyrir 13 töluhlöð árs ’
fjórðungslega eða kr. 30.000 fyrir 26 blöð hálfsárslega.
Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar:
nóvember,'febrúar, maí og ágúst. Áskrift í Reykjavik
og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Um málefni neytenda er fjallað i samráði við
Neytendasamtökin.
2 Vikan 30.tbl.
Það var mikið um fólk þegar
hljómsveit Birgis Gunnlaugsson-
ar og Dansflokkur Jassballett-
skóla Báru fögnuðu árs afmæli
hæfileikakeppni Dagblaðsins og
hljómsveitarinnar í Súlnasal
Hótel Sögu. Fögnuðurinn var
ekki af lakara taginu því að
þessu tilefni var frumflutt í
Reykjavík dans- og söngdag-
skrá byggð á söngleiknum um
Evitu, tónlist eftir Andrew L.
Webber. Einnig sungu tvær
hressar úr Grindavík nokkra
frumsamda bragi við mikinn
fögnuð. Gestir skemmtu sér hið
besta, matargestir gæddu sér á
íslensku nautakjöti framreiddu á
argentínskan máta og dularfull-
um eftirrétti sem var kynntur
sem grillaðir bananar, aldeilis
fínn matur.
Þarna voru ýmsir sem flestir
kannast við, á sviði og utan þess,
en þó fleiri, sérstaklega uppi á
sviði, sem hljóta að verða betur
þekktir eftir frammistöðuna í
sýningaratriðum sínum. Það er
tilgangur hæfileikakeppninnar
að uppgötva áður óþekkta
skemmtikrafta af ýmsu tagi og
þess konar starfsemi hefur lengi
vantað í íslenskt skemmtanalíf
og því vel að hún skuli nú hafa
dafnað í heilt ár. Birgir Gunn-
laugsson gat þess, er hann bauð
gesti velkomna, að hann hefði
haft á prjónunum í 7 ár að
hrinda þessari hugmynd í fram-
kvæmd. Og nú loks hafa DB og
hljómsveit hans tekið af skarið.
Til hamingju með afmælið.
Guðrún Á. Simonar var hyllt með blómum, en hún var mjög hjálpleg við upp-
haf hæfileikakeppninnar.