Vikan


Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 51

Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 51
Draumar Dansaö vid jardarför Kæri draumráðandi. Viltu vera svo vænn að ráða fyrir mig eftirfarandi drauma. Fyrri: Það var þannig að ég og vinkona mín, sem við skulum kalla K, vorum í einhverju stóru húsi og við löbbuðum upp langan stiga og komum upp á pall sem var með hand- riði og var hátt uppi og á honum voru stólar og við vorum að bíða eftir fólki svo að við fengum okkur sæti. Við vorum búnar að bíða mjög lengi og aldrei kom neinn svo að K var orðin leið á því að bíða svona lengi. Hún henti sér yfir handriðið og niður á gólfið sem var langt fyrir neðan. Hún lést samstundis er hún kom niður. Ég.vildi ekki sjá hana þarna og beið uppi þangað til búið var að fjarlægja líkið. Þegar ég kom niður sá ég alls staðar blóð, þar sem hún hafði legið, og hún hafði verið I hvítum skóm sem höfðu verið teknir af henni og voru ataðir I blóði. Svo dreymdi mig I þessum draumi jarðarförina hennar. Hún fór fram í kirkju en hálfeinkennilega. Mér fannst fólkið ekkert sorgmætt en ég var mjög sorgmœdd. Fólkið dansaði bara þarna úti á miðju gólfi og ég var mjög hneyksluð á þessu. Seinni draumur: Það var um miðja nótt og það hafði verið ball á staðnum en ég fór ekki. Þá kom vinur minn og vakti mig. Hann var dálítið vel I því og ég skammaði hann fyrir að drekka alltaf svona. Sagði hann þá að hann ætlaði ekki að drekka meira og dró upp litla flösku og stillti henni út I glugga og í þessari flösku var rauðleitt vín. Síðan gaf hann mér flöskuna (þessi strákur drekkur æði mikið). Þá eru draumarnir búnir. Ég vonast til að þeir fái birtingu. Kær kveðja,6131-9840. Fyrri draumurinn er nokkuð einkennilegur en þó held ég að ég verði að spá þér giftingu sem líklega ber mjög undarlega að (ef til vill brátt) og sitt mun sýnast hverjum. Margt bendir til að þú verðir mjög taugatrekkt í kringum brúðkaupið og jafnvel svo að þú takir það út í veikindum. Reyndu að hafa þig hæga og spenna bogann ekki of hátt þegar að þvi kemur (sem er ekki ljóst af draumnum). Framtíðin lofar góðu þrátt fyrir byrjunarörðugleika. Seinni draumurinn er einfald- lega fyrir vætutíð og góðri fram- tíð. Gullhringir og eyrnalokkar Kæri draumráðandi. Þú værir mjög góður ef þú vildir ráða þessa drauma fyrir mig því að mér finnst þeir tákna eitthvað. Mig dreymdi þá snemma I ágúst. Fyrsti er svona: Mér fannst ég vera I banka sem pabbi minn setti peningana sem voru í bauknum mínum I fyrir 10-12 árum. Ég fór í þennan banka og bað um bankabókina mína. Ég fékk hana og inni I henni voru 40 nýkrónur en I plastinu sem er utan um bókina voru tveir hringir sem mér fannst vera úr gulli. Annar var mjög fínlegur með bleikum steini en helmingurinn var farinn af hringnum (bara vír eftir). Mér fannst eins og systir pabba hefði gefð mér hann (hringurinn var mjög líkur hringsem mamma mín á). Hinn hringurinn var breiður að framan en mjór að aftan. Það var grafð eitthvert munstur á hann að framan en ég sá það ekki almennilega. Það var eitthvert dót I eldspýtupakka sem ég tók ekkert eftir hvað var og þá var draumurinn búinn. Annar draumur: Mér fannst ég vera inni í eldhúsinu heima hjá mér og kona manns sem var í heimsókn hjá okkursagði við mig: Ó ég missti gulleyrna- lokkinn minn I gólfð, geturðu fundið hann? Ég settist á gólfið ogfór að leita ogfann eyrnalokkinn hennar. Svo leitaði ég meira og fann sex svipaða eyrnalokka. Mér fannst þeir vera óekta. Og þá var draumurinn búinn. Þriðji draumurinn: Mér fannst ég vera búin að týna eyrnalokk sem ég á. Eyrna- lokkurinn var minnir mig eins og hjarta I laginu. Svo fannst mér ég hafa spjald stórt sem var þéttset l eyrnalokkum. Mér var boðið að eiga einhvern af þeim en ég vildi ekki nema alveg eins og ég týndi en það var enginn þannig og þá afþakkaði ég boðið. Þannig endaði sá draumur. Með fyrirfram þökk, Stelpa. Það blæs ekki byrlega fyrir fólkinu í kringum þig í ástar- málum og þú mátt alveg búa þig undir erfiðleikatímabil í sam- skiptum við fjölskylduna en það er að litlu leyti af þínum völdum. Þar er fremur um að ræða annarra manna vandamál sem munu að einhverju leyti bitna á þér. Þú gerðir mjög gott ef þú reyndir að sjá hlutina í réttu ljósi og taka ekki of persónulega það sem þér finnst beinast að þér. Orsakanna virðist vera að leita annars staðar. Líklega mun eitt hjóna- band fara í súginn en annað bjargast naumlega (þetta getur einnig átt við ástarsambönd, hugsanlega þín en sennilega annarra). Þú skalt vara þig á allri óreiðu. Næsti draumur er í öðrum dúr. 1 honum og þriðja draumnum einnig ertu vöruð við að vera of mikið fyrir innan- tómt prjál og yfirborðsmennsku, einnig að leggja ekki of mikið upp úr einhverri glansmynd af sjálfri þér heldur reyna að vera einlægari og eðlilegri í um gengni. Seinasti draumurinn bendir reyndar til að þér takist það þó þér finnist ef til vill að þú hafir misst af einhverju. Skop Hcyrðu. Ertu að hlæja eða gráta? Sé þctta innbrotsþjófur skaltu bara fara niður sjálf. Hann vcrður örugg- lega skíthræddur. Það var þér líkt að leggjast svo lágt að leita að sönnunum. Því miöur, hcrra minn. Þér getið ekki fengiö „þaö sama og hann þarna.” Þetta er eiginkona hans. 8. tbl. Vikan 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.