Vikan


Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 63

Vikan - 25.02.1982, Blaðsíða 63
að vera heil heilsu og vel þroskuð líkamlega til þess að geta tekið pilluna. Læknir skoðar hana því áður og verður að segja til um hvort allt sé í lagi. En það eru til fleiri getnaðar- varnir en pillan. Smokkur eða hetta ásamt sæðisdrepandi kvoðu er hættulaus getnaðar- vörn og að mörgu leyti hentugri ungu fólki. Stelpur geta hugsanlega misst meydóminn með því að troða einhverju inn í leggöngin en ef þú ert að hugsa um hvort það geti gerst við notkun bómullar- tappa sem algengt er að stelpur noti við blæðingar er það mjög ósennilegt. Það er ekki gott að segja til um hver sé rétti aldurinn til að stofna til barneigna og sam- búðar. Pósturinn hefur þó alltaf verið þeirrar skoðunar að betra sé að bíða með slíkt í það minnsta fram yfir tvítugt. Ungt fólk á að læra og þroskast vel áður en það bindur sig.Hjóna- skilnuðum fer ört fjölgandi og ein ástæðan er talin sú að fólk eignist börn og hefji sambúð áður en það sé nægilega undir það búið. Unga fólkið er ef til vill yfir sig ástfangið í byrjun en þegar ástarbruninn tekur að renna af því, eins og oft vill verða, er það ekki nógu þroskað til að horfast i augu við hina ýmsu erfiðleika sem á veginum verða og leysa þá í sameiningu. Pósturinn Það liggur ekkert á. Maðurinn er barn og unglingur aðeins lítið brot af ævi sinni en fullorðinn lengi lengi. Æskan er það sem svo margir þrá seinna meir (ef til vill vegna þess að þeir flýttu sér svo að verða fullorðnir að þeir gleymdu að njóta hennar til fulls). Hvers vegna þá að vera að flýta sér? Njótið æskunnar og ástarinnar, ekkert liggur á að axla ábyrgð þá sem barneignir og sambúð hafa í för með sér. Pósturinn er hættur að svara spurningum um aldur, skrift og stjörnumerki, aðallega vegna þess að hann var að drukkna í þessum spurningum og til þess að gera öllum jafnt undir höfði var hreinlega hætt algjörlega að ansa þessu fyrir tæpum tveimur árum. Þetta hefur oft verið tekið fram en það er eins og sumir lesendur hafi ekki meðtekið þetta ennþá. Hafi Pósturinn verið of frekjulegur þykir honum það leitt og biðst vel- virðingar á. Það er ekki oft sem strákar skrifa og spyrja um getnaðar- varnir og það er ánægjulegt að vita til þess að þessi mál eru ekki einkamál kvenna eins og stundum mætti halda. í staðinn ætlar Pósturinn að gera eina undantekningu og giska á aldur þinn. Þú ert svona 16-17 ára? Líkams- æfingar Hæ Pósti. Við erum hérna tvær með nokkur aukadekk á maganum og fleira af því tagi. Þar sem okkur líst ekki nógu vel á það œtlum við að spyrja þig um það hvort Vikan gæti nokkuð birt prógram fyrir þær stelpur sem vilja æfa þrekþjálfun og losa sig við slenið og fituna. Ef þú gerir þetta ertu algjört æði. Tvœr að drukkna I spiki. Pósturinn getur upplýst að á döfinni er að birta þætti um líkamsæfingar og þjálfun, sem hægt er að stunda heima, fyrir þá sem þurfa að styrkja sig og grennast. Þessir þættir eru í vinnslu og ættu að birtast þegar líður að vetrarlokum. Skop Marta var mjög úrræöagóð þegar byssubófarnir birtust. Hún faldi gim- steinana í munninum. Verst að tcngdamamnta skyldi ekki vera hér — þá hefðum viö geta bjargað litsjónvarpinu líka. „Go gva lillinn er góður!” — hjálpi mér allir heilagir! Má ég mæla með að þér sækið námskeið í framsögn, frú mín góð. 8. tbl. Vikan 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.