Vikan - 26.05.1983, Side 5
EF þaö er á þínum persónulega óska-
lista aö sjá meö eigin augum „alvöru-
fatnað” frá stóru risunum í tísku-
heiminum er vissara aö leggja land
undir fót því slíkt rekur sjaldnast á
fjörur okkar íslendinga. Eitt slíkt færi
barst þó upp í hendurnar á dögunum
þegar fatnaöur frá hinum fræga
Giorgio Armani var sýndur á Breiö-
vangi.
Tilefniö var að fyrirtækiö Terma sf.,
með systurnar Sólrúnu og Sigrúnu
Sævarsdætur í forsvari, kynnti á
Islandi hans fyrsta ilmvatn. Þaö
nefnist aö sjálfsögöu einungis
ARMANI og minnir áþreifanlega á þá
stefnu tískukonga 1 gegnum arin aö sa
sem klæðist sköpunarverki þeirra skuli
ilma í samræmi viö þaö. Þannig aö ef
einhver er svo ófyrirgefanlega fáfróöur
aö þekkja ekki fötin af færi mun honum
hjálpað í návígi meö ilminum. Og þekki
viökomandi ekki ilminn strax er
honum hvort sem er ekki viðbjargandi
áþessusviði.
Það geröist ýmislegt fleira þetta
kvöld á Breiðvangi, snyrtivörur frá
Helenu Rubinstein voru í sviösljósinu,
því fyrirtækið Terma sf. flytur þær til
Islands og til áréttingar á tilvist þeirra
voru á staðnum Claude Ury, aöalfram-
kvæmdastjóri Helena Rubinstein í
Evrópu, og greifynjan Erika Viginal,
sem er almannatengslafulltrúi fyrir-
tækisins í Evrópu.
Sýnishorn af Armanivatninu voru
afhent fyrr um kvöldiö og ilmurinn af
því barðist hetjulegri baráttu viö
reykjarmökk og aðrar lyktir og á
stundum virtist hann ná nefi gestanna.
Flestir biðu eftir sjálfri tískusýning-
unni, vissu aö þarna voru Armaniföt á
feröinni og því var áðurnefndur ilmur
kannski ekki jafnnauösynlegt hjálpar-
tæki og annars. Fötin komu líka aö
vissu leyti á óvart því þarna var ekki
mikið um þennan sérstaka bleika og
rauða lit, sem Armani er svo þekktur
fyrir, og einnig sáust varla lita-
samsetningar eins og bleikt og grænt,
sem áöur var svo einkennandi í fram-
leiðslunni. Þó vantaði ekki alveg þessi
áhrif og einkum var einn stuttur kjóll
áberandi í þeim anda, virtist eins og
sendur á sýninguna til aö minna a aö
þarna væri raunverulegur Armani á
feröinni.
21. tbl. Vikan 5