Vikan - 26.05.1983, Síða 32
Ui
Fyrstu verðlaun
Það var ekki tekið út með
sældinni að velja milli
þeirra mynda sem hlutu 1.
og 2. verðlaun í sam-
keppninni Hraði—hreyfing.
Ritstjórn Vikunnar, ásamt
sendli, tók þátt í úrskurö-
inum og eftir mörg spakleg
ummæli og jafnvel grófar
ásakanir um heimsku,
skilningsleysi og snobb
varö ofan á að velja mynd
eftir Bjarna Þór
Bjarnason, Merkurteigi 4
Akranesi, í fyrsta sæti.
Myndin er tekin á Ítalíu sl.
sumar á Canon AE 1 á 1/30
úr sekúndu. Bjarni beitir
þeirri tækni að fylgja par-
inu eftir með myndavél-
inni, smella af og hreyfa
myndavélina áfram í sömu
átt og hjólið fer. Þá verða
þau skörp en bakgrunnur ó-
skarpur og hreyfður.
Myndin sem hlaut 2.
verðlaun er tekin af
Ragnari Sigurjónssyni í
Vestmannaeyjum og er
falleg í litum en hreyfingin
er það mikil að smátíma
tekur að átta sig á
mótífinu.
Þriðju verðlaun hlaut
Ingþór Sveinsson, Mið-
stræti 20 Neskaupstaö. í
myndinni er mikill hraði og
hreyfing en hún er sam-
klippt úr fjórum stellingum
skfðamannsins. Sam-
klippingin er prýðilega
gerð en myndin er nokkuð
grá í eftirtökunni. Ingþór
er skíðakennari á Húsavík
og tekur markvisst myndir
til að útskýra fyrir nem-
endum sínum hvernig best
er að hreyfa líkamann og
sveigja f svigbrautum.
Verðlaunin, sem verða
send að 2—3 vikum liðnum,
eru: 1. verðlaun kr. 1500, 2.
verölaun kr. 1000 og 3. verð-
laun kr. 500. Að auki birtum
viö tvær myndir, önnur er
skemmtilega gerð en upp-
fyllir eiginlega helming
verkefnisins, þ.e. hreyf-
inguna en ekki hraðann.
Höfundur er Kristján
Logason, Þiljuvöllum 4
Neskaupstað. Hann tók
myndina við útibú Útvegs-
bankans í Kópavogi að
kvöldi til; lýsti filmuna í 2
sek. en hreyfði síðan vélina
upp og niður hluta af
lýsingartímanum. Aö
lokum birtum við mynd
eftir Jón Eldon, Bogahlíð
26, af þremur Valsmönnum
á hlaupum. Beriö hana
saman viö mynd Bjarna —
hér er hreyfing bæði í for-
grunni og bakgrunni
þannig að allt verður
heldur loöiö. Mennirnir
skera sig þó frá bakgrunni
vegna þess að snjór liggur
á jörðu. Myndavélin er
Pentax ME Super, 135 mm
linsa, hraöi 1/30 og filman
er Fujicolor 100 ASA.
32 Vikan 21. tbl.