Vikan - 26.05.1983, Síða 44
FRA MHALDSSA GA
grímu, lokaðar dyr aö heiminum.
Ösjálfrátt ruggaði hún sér í skrif-
borösstólnum, blind fyrir herberg-
inu, heyrnarlaus á hljóð þess.
Svikin!
Þetta var ekki sanngjarnt!
Fyrir heiðarleg mistök, fyrir aö
leggja of hart aö sér! Tekiö burt.
Alltaf tekið burt.
Maöurinn, ánægjan.
Peningarnir.
Vinnan.
VINNAN!
„Nick, ég verð að fara.” Hún
greip skjalatöskuna sína án þess
að útskýra nokkuð. Hún leit yfir að
lokuðum dyrum Mastermans, á
Didi sem var að sverfa neglurnar
fyrirframan.
Bak viö þessa hurð sat Master-
man kannski og hlustaöi á lög-
fræðing Weiners. Bak viö þessa
hurö var Masterman kannski að
leggja á ráöin með að uppræta
þessa erfiðu Suzannah, aö hreinsa
til með því aö reka hana.
„Nei! ” hvíslaði hún og flýtti sér
út, barðist gegn vetrarvindinum.
Auðveld
svör
„Nei!” sagði hún til að sanna
tilvist sína meöhljóði. „Nei.” Hún
léti ekki gera úr sér skugga og
minningu.
Þegar hún var komin inn í
íbúðina sína barðist hún við löng-
unina til aö gefast upp, komast
framhjá raunveruleikanum með
lyfjum eða áfengi.
Hún skyldi reikna þetta út. Hún
teygði sig eftir gulri minnisblokk
og pennanum sínum. Hún ætlaði
aöskipuleggja. Skrifa lista. Tölur.
1) Hlutabréfin seld fyrir
$28.000. Sherwood tók það. Skulda
Sherwood $10.000 í viöbót.
2) Skulda bankanum $30.000.
Fjörutíu þúsund. En ekki nema
10.000 strax. Hún gat herjað þaö út
úr bankanum.
En æ, vinnan. Vinnan. Vinnan!
Hugsa um peninga. Greiöa fyrst
úr fjármálunum. Svo voru það
þessi þrjátíu með djöfuls
verðbólguvöxtunum mánuð eftir
mánuð. Óhugsandi. Ef hún var at-
vinnulaus, hvar fengi hún þá lán?
Hún var ekki góður pappír.
Pen. Ing. Arnir. Peningarnir.
Peningarnir-peningarnir-pen-
ingarnir.
Fjandinn hirði Tully. Fjandinn
hirði hann fyrir þaö sem hann
reyndi að gera henni. Hver var
ástæðan?
Svo fór um hana hrollur. Hún
mundi eftir snjónum og döguninni
þennan þriöjudag og velti fyrir sér
hvort skyndilegur brottreksturinn
heföi komiö þessu af staö. Vissi
svo að þaö var ástæðan. Að hann
lagði á ráðin í sturtunni, kom fram
og lagöi fyrir hana gildru. Og hún
gleypti agnið hrátt. Hún velti fyrir
sér hvað margir aörir hefðu veriö
ámóta fórnarlömb og hún sjálf.
„Ég á þetta ekki skilið!”
hrópaöi hún og baröi í borðið. Hún
hringdi aftur í númeriö hans,
heyröi aftur rödd einkaritarans
sem virtist gröm og sagði að Tully
væri ekki viðlátinn. „Segðu
helvítinu aö ég viti allt!” hrópaði
Suzannah áður en hún skellti á.
Laugawegi 58 Simi 13311
Sumarvörurnar verið
komnar veikomin
Seðlaveski
Ótrúlegt úrval
Ókeypis
nafngylling
Kínakoffortin vinsælu
komin aftur.
3 stærðir — Htir.
Póstsendum
um land allt
Ferðatöskur
Ný sending
ain
kn
Nýju
sumartöskurnar komnar
Töskur hinna vandlátu
Þýskar tískutöskur frá
rm
Laugavegi 58 Simi 13311
fyrir ungu stúlkurnar.
Leðurlíkitöskur
Tískupokar
Ferðapokar
Geysilegt úrval
Verð frá kr. 79,-
Glæsilegt úrval af
kjarnaleðurtöskum
Ný sending af tölvuveskjum
Ókeypis nafngylling fylgir
hverju veski
ESU
Italskar kventöskur fra WdtM
Ný sending var aö koma.
Glæsilegasta úrval landsins.
44 Vikan ZI. tbl.