Vikan


Vikan - 26.05.1983, Blaðsíða 45

Vikan - 26.05.1983, Blaðsíða 45
FRA MHA LDSSA GA Hún nötraði. Hún hallaði sér upp aö borðinu, veikburða, getulaus og sigruð. Og hvað með það þó hún „vissi allt”? Hún var í samsærinu með Tully, sem hann vissi vel. Jafná- gjörn, jafnsek og hann, ef einhver kæmist að því. Hún var viss um að Tully hafði bjargað sjálfum sér, hafði sloppið með gróðann fyrir löngu. Hún hafði verið skilin eftir til aö drukkna. Glötuð. Notuð. Svikin. Móðguð. Yfirgefin. Og blönk. Peningar. Peningar. Peningar. Og þá fékk hún hugmyndina. Chris. Peningar. Chris og pening- ar, tvíburar frá fæðingu. Allir- fyrir einn tilfelli. Pakkinn allur. Svo augljóst aö hún hafði ekki séð þaðfyrren núna. Og hvað gerði það til? Þetta var enginn tími til siðfræðivanga- velta. Þetta var spurning um líf og dauöa. Peningarnir! Hún hringdi. Hóra. Hver sagði þetta? Hver hafði rétttil þess? „Chris?” sagði hún þegar hann lyfti upp símtólinu. „Ég þarfnast þín.” „Sagði ég ekki að ég væri örlög þín?” Hann var enn sólbrúnn og það glampaöi á hvítar tennurnar þegar hann brosti. „Þú gerðir það. Og varðandi örlög mín almennt...” Hún lýsti klípunni sem hún var í með léttum strokum listamannsins, setti máliö þannig fram að hann skildi það og samþykkti. „Ég er búin að gera mörg mistök, skjátlast um svo margt. Sumt hefur kostaö mig fé, annað. . .” Hún lét hann um að botna. Hann kinkaði kolli og brosti ánægður. Hann var maðurinn sem hafði þekkt framtíðina, hafði haft rétt fyrir sér í spádómum og sjálfsmati, því hvað annað staðfesti kall hennar? Það kom enginn í staðinn fyrir Christopher Barnes. Vissi hann ekki hvert átti að fara, hvað átti að segja, hvað að gera og hvernig og hvenær gera það? Hafði hann ekki fullkomiö tímaskyn, færni sem átti skilið óskarsverðlaun? Voru sérstök áhrif ekki sérgrein hans? „Hvað peningana varðar,” sagði Chris, „geturðu komið við á skrifstofunni hvenær sem er. Ég skal hafa tilbúna ávísun.” Chris var í lagi. Hann myndi aldrei angra sál hennar eða teygja hana’ að ystu mörkum. Hún herpti varirnar og strikaði út fyrsta lið. Peningana. „Ekkert vandamál,” hafði Chris, örlög hennar, sagt. Vandamál tvö var eftir en núna, þegar hún hafði endurheimt löngunina, var hún því yfirsterkari og hún sá hver var rökrétt iausn. Elaine Weiner mátti höfða mál en hún átti að höföa mál gegn fyrir- tækinu, ekki Suzannah. Hvaö viðkom því að sannfæra Masterman hafði hún leikið góöu stúlkuna og hætt aö selja um leiö og hann nefndi þaö. Átti slík hlýöni ekki heimtingu á vissri tillits- semi? Hún ætlaði ekki aö bíða eftir aö hann kallaði á hana. Hún ætlaði sjálf að fara á hans fund, strax í dag. Rökkvaður himinninn varð til þess að hún hrökk upp úr hugleiö- ingumsínum. Hálf-fimm. Það var tími til kominn aö hafa sig af stað. Gatan var rök og ógnandi, gangstéttirnar óskyggt stál. Það myndi snjóa bráöum aftur, auka á hættuna, slysagildrurnar sem eftir voru, hálkuna og ísinguna, frosna skaflana og hörð göngin. Það leyndi sér ekki að aðvaranir um óveður höfðu borist á skrifstofuna. Starfsliðið forðaði sér hið snarasta, reyndi aö foröa sér áður en vegirnir tepptust og regnhlífarnar færu að stinga fólk á hol í þvögunni í neðanjarðar- brautinni. Dyr Mastermans voru lokaðar og Didi ekki viö skrifboröiö. Suzannah beið þangaö til enginn var eftir aðrir en þeir sem unnu á föstum tíma og höfðu tillitslausa yfirboðara. Og þá gat hún ekki beðið lengur. Didi, hliðvörðurinn, var Zl.tbl. ViKan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.