Vikan - 06.09.1984, Síða 25
~xs Eldhús Vikunnar
Umsjón: Guðrún Birgisdóttir
Börn sem eiga að sitja á skóla-
bekk þurfa á góðum morgunverði
að halda. Nemendur sem ekki
borða neitt áður en þeir halda af
staö í skóla eiga þaö á hættu að
verða sljóir og þreyttir þegar líða
tekur á daginn. Að dómi næringar-
fræðinga er morgunveröurinn
undirstöðumáltíðin, hann á að
gefa okkur kraft þannig að við
veröum fær um að takast á við
verkefni dagsins. Sum börn eru
frekar lystarlaus á morgnana en
önnur borða vel og gefa sér góðan
tíma við morgunverðarborðið.
Tíminn skiptir þarna miklu máli.
Barn sem er vakiö of seint á
morgnana hefur venjulega ekki
mikla lyst. í matreiðslubók
Jóhönnu Sveinsdóttur, „Matur er
mannsins megin”, segir að for-
eldrar skuli hafa það hugfast að
börn hafa ólíkt betri matarlyst á
morgnana ef maður gefur sér
tíma til að borða með þeim í ró og
næði í staö þess aö þeytast argur
Morgunmagi skólabarna
og úfinn á milli ísskáps, brauðrist-
ar og kaffivélar meðan á morgun-
verðinum stendur.
í kafla Jóhönnu um morgunverð
segir að æskilegast sé að morgun-
verðurinn innihaldi eftirfarandi:
— kornmat, til dæmis gróft brauð
eða musl,
— dýraeggjahvítu, það er mjólk,
ost, súrmjólk, jógúrt eða egg (í
hófiþó),
— ávexti og/eða ávaxtasafa,
— örlitla fitu og sykur.
Í morgunheilræði Jóhönnu
stendur: Reynið að sjá til þess að
forðabúr heimilisins sé vel birgt af
musli, hafragrjónum, heilhveiti,
að minnsta kosti tveimur brauð-
tegundum, hrökkbrauði, eggjum,
smjöri, osti, súrmjólk og jógúrt og
gjarnan nýjum ávöxtum og kota-
sælu. Með því móti má breyta til á
hverjum morgni eftir því sem
hugur og magi standa til.
Morgunmataruppskriftir Jó-
hönnu eru fjölbreyttar, allt frá
heitri súrmjólkursúpu, dúndur-
musli og heilsupönnukökum. Við
látum aftur á móti uppskriftina að
köldu súrmjólkursúpunni flakka
hér með og gleymum aö sjálf-
sögðu ekki gamla góða hafra-
grautnum sem morgunmagi
skólabarna hefur verið fylltur
með svo árum skiptir, nema hvaö
þessi uppskrift hefur að geyma
nokkur tilbrigði.
Ein albesta matreiðslubók
siðari tíma heitir MA TUR ER
MAIMNSIIMS MEGIN og er
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur.
Leikir og lærðir eldamenn
geta haft mikið gagn af
þeirri bók — og ekki síður
gaman. Vikan þakkar bóka-
útgáfunni Svart á hvítu góð-
fúslegt leyfi tH að vitna i
þessa ágætu bók.
Köld
súrmjólkursúpa
Undirbúningstími 3 mín.
1 l súrmjólk / 1 egg / 1—2
msk. púðursgkur / nokkrir
vanilludropar eda 1 tsk.
vanillusgkur (mú sleppa).
Þeytið saman egg og syk-
ur með gaffli og hrœrið síð-
an út í súrmjólkina. Einföld
og svalandi súpa handa fjór-
um.
Hafragrautur
med tilbrigdum
Undirbúningstími 2 mín. —
Suðutími nokkrar mínútur.
4 dl hafragrjón /11 vatn U
tsk. salt eða sesamsalt.
Skutlið ípott vatni, hafra-
grjónum og salti, hrœrið í
pottinum ú meðan suðan er
að koma upp, en síðan er
grauturinn lútinn sjóða við
vœgan hita í nokkrar mín-
útur.
Hafragrautur er óhemju
hollur, því við suðu minnkar
ekkert nœringargildi korns-
ins (sum B-vítamín í korn-
mat rýrna hins vegar um
15—30%, til dœmis við
ristun). Nýlagaður hafra-
grautur er sannkallað lost-
œti sé bœtt út í hann
bananasneiðum, rúsínum
eða döðlubitum, þurrkuðum
apríkósum eða hnetum, að
ekki sé nú talað um blessaða
kotasœluna. Hver fúlsar til
dœmis við bananastyrktum
og kotasœluprýddum hafra-
graut?
36. tbl. Vikan 25