Vikan - 15.11.1984, Blaðsíða 24
Heimilið
Eyra fyrir eyra
„En hvaö þaö eru stór á þér
eyrun, amma mín,” sagöi Rauð-
hetta og hafði ekki hugmynd um
aö eyrnastærð, -gerö og -þykkt
hefur verið blessunarlega stunduð
um árabil, jafnvel af siöprúðu
fólki eins og Viktoríu Englands-
drottningu. Sagt er að hún hafi
látið andlitssérfræðinga yfirfara
bömin sín til aö komast að því
hvem mann þau heföu að
geyma. Hvemig átti hún annars
að komast að því, konan sem sagði
þessa gullvægu setningu:
„Children should be seen, not
heard!” (Böm eru til aö horfa á,
ekki hlusta á.)
En án alls hálfkærings er rétt aö
geta þess að þessi iðja er stunduð í
römmustu alvöru, menn lesa per-
sónueinkenni úr andliti fólks og
ekki síst úr eyrunum. Hér er yfir-
lit yfir nokkrar eymagerðir eftir
fagmanneskju á sviðinu, Gemmu
Franklin:
Það er þrennt sem þarf að athuga:
STÆRÐ EYRNANNA (Rauðhetta
var ekkert svo vitlaus), LÖGUN
og GERÐ EYRNASNEPLA.
Stór eyru: Þau benda til mikils
þreks, áhuga á mörgu og kraft-
mikillar skapgerðar. Einnig til
frekar lítillar tilfinningasemi,
þrjósku og þrasgimi. Ef smá-
gerðu andliti fylgja stór eyru er
það vísbending um ósveigjanleik.
Lítil eyru: Þau benda til góðrar
dómgreindar og blíðlyndis. Hins
vegar gæti veriö nokkur yfirborðs-
mennska þessu samfara.
Þykk (holdmikil) eym: Tilfinn-
inganæmi — lífsnautn í ástum,
mat og drykk. En einnig getur
fylgt þeim kreddukennd og yfir-
gangssemi.
Þunn eym: Viðkvæmni og næm-
leiki. Fólk með þunn eyru er oft
auðsært og skapstyggt.
Kringlótt eym: Því hringlagaðri
sem eyrun em þeim mun meir
ertu fyrir lífsnautnir og blíðu. Ef
þau eru meðalstór líka þá bendir
það til að þú sért heppinn í fjár-
málum og starfi.
Oddhvöss eyru: Þau benda til út-
halds, krafts, þols og drífandi
skapgerðar.
Stór (löng) eym: Eftirtekt, næmi
og innsæi.
Eym án sérstakrar lögunar: Eyru
sem eru með óskýrgreinanlega
lögun benda til að eigandinn sé
álíka óútreiknanlegur, skapið
styggt og þolinmæði lítil.
Hárvöxtur á eyrum: Bendir til
óþolinmæði — einkum í ástum.
Eyraasneplarnir
Af eymasneplunum má ráða
ýmislegt um ástarlíf eigendanna.
Stórir eymasneplar: Þérmistekst
sjaldan í kynlífi og ástum.
Litlir eyraasneplar: Benda til
sektarkenndar og vandamála í
ástarlífi sem eiga rætur sínar að
rekja til bemsku eða æsku.
Oddhvassir eymasneplar: Benda
til að sá sem þá hefur veki athygli
— jákvæða eða neikvæða eftir
atvikum — fyrir ástarlífið.
Lega eyraanna
Ef eyrun liggja þétt að höfðinu
ertu blíðlyndur og ástrík mann-
gerð og vilt bæði gefa og þiggja af
örlæti í ástum. Heimilið, fjölskyld-
an og vinimir skipta þig miklu
máli.
Otstæð eyra: Einhver töf kynni að
verða á því að þú komist á rétta
hillu í lífinu. Þetta á viö hvort sem
þú lætur laga eyrun með aðgerð
eður ei. Hins vegar hefur aðgerð
á útstæðum eyrum jákvæð áhrif
og þá oftast líðan þess sem drífur í
aöfáhana gerða.
Eyra sem liggja framarlega á
höfðinu: Þú spilar meir eftir
tilfinningunni en rödd skynsem-
innar. Þú ert hrifinn af íþróttum
og útilífi og sækist meira eftir
þessum lífsins gæðum en flóknari
verkefnum.
Eyra sem liggja aftarlega á
höfðinu: Þú lætur skynsemina
ráða yfir tilfinningunum. Þú
skoðar allt út frá skynseminni,
jafnvel tilfinningamálefni. Þú
hefur líka góða hæfileika í
viðskiptum.
Fæðingarblettur á eyranu:
Þetta er heillatákn, vertu
ánægður ef þú hefur hlotið það í
vöggugjöf.
Lítum síðan á nokkur dæmi til
skýringar — eyru frægs fólks
undirsmásjánni!
Díana prinsessa í Englandi: Hún
er með eyru sem liggja þétt að
höfðinu, heillamerki, einkum í
fjölskyldumálum.
Andrew Bretaprins: Mjög hring-
laga ysti hringur í eyranu. Það
bendir til daðurgimi, léttrar
lundar en öfgakenndar og
nokkuð óþroskaðrar kímnigáfu.
Margrét Bretaprinsessa: Litlir
eymasneplar benda til óöryggis
í tilfinningamálum, deilna við
yfirvöld og klikkaðrar kímni-
gáfu sem getur snúist upp í leik-
ræn tilþrif.
Boy George: Innri hringurinn í
eyrunum er lítill og kemur upp
um mjög einþykkt lundemi.
Hann hefur mikið þol, sterkan
vilja og nákvæmni tÚ aö bera.
Karl Bretaprins: Hann er meö
útstæð eyru — og hárrétt
ágiskað hjá ykkur, hann verður
víst að bíða eftir því að komast á
rétta hillu í lífinu og uppfylla
æðstu óskimar.
Shakin’ Stevens: Holdmikil eyru
og þykkust í sneplinurn benda til
lífsþróttar og ástríðu. Hann er
skjótur til afhafna og vill sjálfur
ráða ferðinni.
Sting úr Police-tríóinu: Eyra
upp í odd að ofan benda til að
hann sé þrjóskur og viljasterk-
ur. Hann vill hafa starfsamt fólk
í kringum sig og vill ekki sjá
kjána.
Richard Chamberlain (Thora-
birds): Holdmikil eyru, tákn um
lífskraft og sjálfstæði. Hann
lætur ekki allt uppi sem hann
býryfir.
24 Vikan 40. tbl.