Vikan - 15.11.1984, Síða 61
Góði eða vondi prinsinn - altt eftir því við hvaða tækifæri - fitlar
við hann. Svipur hans lýsir trega um leið og hann endurspeglar losta-
fullar langanir hans.
sér mig. Þó ég hafi kannski ekki
samið lögin stóð allt og féll með
mér.”
Þaö má nefnilega vel vera. Day
er nokkuð góður gæi og hefur lagt
mikið til myndarinnar og þess
húmors sem einkennt hefur The
Time. Og þegar talað er um sam-
keppni kemur það upp að fyrstu
plötur The Time, fyrst The Time
og síðan What Time Is It, hafa báð-
ar náð gullinni sölu (fengið gull-
Plötur), svo ekki sé minnst á þá
síðustu, Ice Cream Castle, sem nú
klífur listana. Einnig hefur
hljómsveitin fengið mjög góöa
dóma fyrir framkomu sína sem
upphitunarhljómsveit fyrir hljóm-
sveit Prince, The Revolution.
„Enginn trúði því að ég færi svo
langt með þetta,” sagði Day. „Ég
held að þetta allt saman hafi bara
átt að vera upphitunaratriði.
Þetta skapaði spennu á milli okk-
ar og oft var rifrildi áður en við
fórum á sviðið. Mér var sagt að
sleppa ákveðnum hlutum,
ákveðnum dönsum. ”
Snemma á þessu ári flutti Day
til Los Angeles frá Minneapolis,
þaðan sem höfuðstöðvar Prince-
veldisins eru. „Sú staðreynd að
ég, sem fullorðinn maður, valdi
mér dvalarstað virtist fara ógur-
lega í taugamar á vissu fólki. Það
var byrjunin á endinum. Þegar
svona smáatriði valda vand-
ræðum veit ég að eitthvað er að og
þess vegna hætti ég.”
Nú líta hlutimir ágætlega út
fyrir honum. Hann fékk samning
við Wamer bræðuma og mun þar
vinna í sínu eigin nafni og hefur
áhuga á meiri kvikmyndaleik
(sem hann mun vera nokkuð lið-
tækur við). Hann mun láta reyna á
það hvort hann geti staðið sig án
aðstoðar Prince.
Van'ity 6 = Apollonia 6
Ef við kúvendum nú lítillega og
athugum kvenlegu hliðina á
málunum kemur fljótlega í ljós að
hljómsveitin Vanity 6 er ekki
lengur til sem slík. Þá er verið að
tala um að Vanity 6 sé ekki
lengur undir vemdarvæng Prince
heldur annaö kvennanúmer,
Apollonia 6. tJr fjarlægð skoðað
virðist það hafa gerst að söngkon-
an úr Vanity 6 hafi verið með ein-
hvem kjaft og því þurft að hverfa
úr sviðsljósinu. I stað hennar er
komin hin undurfagra Patty
Apollonia Kotero og um leið skýr-
ingin á nafnaskiptunum. Það er
fátt eitt að segja um Patty þessa
annað en að hún leikur Apolloniu
þá sem Prince og Day bítast um í
myndinni. Fáar sögur fara af leik-
sigri hjá henni, helst er talið að
hún hafi verið valin vegna ágæts
sköpulags síns frekar en leik-
rænna hæfileika og notið þar hins
ágæta lögmáls sem virðist gilda
hjá Prince, Day og öðrum
kunningjum hans: Brjóst skipta
meira máli en orð.
Sheila E
Fyrir fáeinum árum var Sheila
Escovedo lítt þekktur bongó-
trommuleikari sem eyddi tíma
sínum í smáklúbbum í kringum
San Franciscoflóann eða sem
undirleikari hjá nöfnum eins og
George Duke, Marvin Gaye og
Lionel Ritchie. Hún var þá ósköp
venjuleg stúlka — algerlega and-
stæðan við það sem hún er í dag.
Hún hitti nefnilega Prince. Það
má segja sem svo að hann hafi
gert hana að því sem hún er í dag.
Nú fyrir skemmstu var lag Sheilu,
The Glamourous Life, á topp tíu á
þremur listum í USA. Geri önnur
lög betur. Það er svolítil saga að
segja frá því hvemig þetta lag og
öll hin lögin á samnefndri plötu
urðu til.
I stuttu máli: Pete Escovedo,
pabbi Sheilu, spilaði á slagverk
með stórsveitinni Santana á seinni
hluta áttunda áratugarins. Prince
var mikill aðdáandi Santana og
kynntist Pete ásamt fleirum úr
sveitinni um það leyti sem plata
Santana, Moonflower, varð til. I
gegnum Pete kynntist Prince
Sheilu. Það leiddi til þess að hann
varð tíður gestur á heimili Sheilu
þar sem þau dvöldust við píanóið
og börðu saman lög. Þegar svo
haföi haldið áfram í nokkur ár,
með hléi vegna Vanity 6, slógu þau
til og gerðu plötu. Prince lætur sín
þó hvergi getið við gerð hennar
því að ætlunin var að láta plötuna
ganga vegna eigin verðleika, ekki
frægðar hans. Auðvitað komst það
upp og platan var/er rifin út.
Spumingin er bara þessi: Ætli það
sé út af honum eða henni? Hvert
sem svarið verður er ljóst að
þáttur Prince er stór í þeim
hlutum sem hann hefur gert með
öllu þessu fólki sem hér hefur
verið nefnt. Hæfileikar hans eru
það miklir aö hann getur vel deilt
þeim með nokkrum öðrum.
Vandinn virðist bara vera sá að
hann á eitthvað erfitt með að hafa
hlutina á hreinu; hver gerði þetta
og hver gerði hitt? Þess vegna
verða vandræði.
40. tbl. Vikan 61