Vikan - 22.11.1984, Side 35
15 Draumar
Ástir á
diskóteki
Kæri draumráðandil
Mig langar að þú ráðir fynr
mig stuttan draum sem mig
dreymdi. Hann var svona: Mig
dreymdi að ég væri á diskóteki
og strákur sem ég er mjög hrifin
afvar þar líka. Hann gláþir alltaf
svo á mig þegar hann sér mig úti
á götu eða í bíóum og svoleiðis.
En hann virtist ekkert■ taka eftir
mér. Þá varð ég voðalega von-
svikin en svo kom hann og bað
mig að dansa írestina á diskótek-
inu. Svo þegar hann var að fara
út af diskótekinu fóru tvær
stelpur með honum í bílnum. Þá
varð ég voðalega vonsvikin.
Með fyrirfram og yndislegri
þökk.
Ein ástfangin.
Þú ert nú sjálfsagt löngu hætt
að vera ástfangin af þessum, nú
þegar þú færð ráðninguna eftir
verkföll og verkbönn, auk þess
sem mig grunar að bréfið þitt sé
búið að liggja hér óvenju lengi,
það er ódagsett og ekki hægt að
vita það með vissu. Ástæðan fyrir
því að draumar eins og þínir bíða
oft lengur en aðrir er ekki
skepnuskapur draumráðanda
heldur fyrst og fremst að svona
draumar hafa lítið táknrænt
gildi. En nú í póstverkfalli, þegar
fáir draumar berast, er hægt að
lauma þeim með öðrum og
vonandi til einhvers gagns og
ánægju fyrir þig. Draumurinn
ber með sér að þú hugsir mikið
um strákinn og tilfmningar þínar
séu sterkar (eða hafi verið þá) en
þú hafir áhyggjur af að hann líti
á aðrar stelpur, rétt eins og í
draumnum. Táknrænt segir
draumurinn ekkert, en hann
bendir á að þú sért ástfangin upp
fyrir haus og svona draumar gera
bara gott.
Ungbarn
með stórt nef
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi draum sem mig
langar að biðja þig að ráða fyrir
mig. Svona er hann: Eg er að
labba niður tröppurnar heima
þegar mamma kemur til mín og
segir að ég sé búin að eignast
strák. Eg varð hissa því ég hafði
ekki verið ólétt eða þurft að fara
á fœðingardeildina. Eg varð glöð
og spurði mömmu hvernig hann
væri. Hún segir að hann sé sœtur
en hann sé með svolítið stórt nef
og sé alveg eins og pabbi hans og
mér finnst að hann sé líka dökk-
hœrður með krullur, en ég sá
aldrei bamið. Allt í einu er ég að
bugsa um hvort fólkifinnist ekki
skrýtið að kúlan sé farin. Eg er
allt í einu komin inn í herbergi
og sit þar á gólfinu og fullt af
fólki er þar. Þá labbar pabbinn
inn í herbergið og heilsar öllum,
mérlíka. Rétt á eftir honum kom
stelpa, mér fannst þau vera
saman enda löbbuðu þau út
aftur og héldu hvort utan um
annað. Eg varð ekki neitt reið
eða afbrýðisöm en mér fannst að
ég yrðisár. Þá vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
007.
Þessi draumur er jákvæður.
Eins og þú hefur sjálfsagt heyrt
er fyrir góðu að dreyma ungbarn
ef það er sveinbarn og maður
á það sjálfur. Stóra nefið á
barninu er sömuleiðis heillatákn
og nafnið á barnsföður þínum er
fyrir gæfu í ástum og öðrum
mannlegum samskiptum. Hvort
það á við um hann sjálfan er ekki
öruggt. Stelpan á eftir honum
breytir merkingunni ekki.
Víkingaöld
Hæ hæ!
Mig langar að fá einn draum
ráðinn sem stelpu í mínum bekk
dreymdi. En hann ersvona:
Hana dreymdi að við værum
staddar á Skagaströnd, nálægl
Hólabraut (ég þekki ekki til
staðanns), og það væri nokkurs
konar víkingaöld nr. 2. Eg hafði
verið að skjóta í hana pílum sem
ekki náðust úr heldur varð að
brjóta og skilja oddana eftir.
(Bakið á henni var alsett, hvergi
annars staðar voru pílur.) Þá
þreif hún spjót, einhenti milli
herðablaðanna á mér og drap
mig (spjótið gekk mjög djúpt).
Þá er allt í einu besta vinkona
hennar stödd hjá og segir hún
við V (en það hét sú sem átti að
hafa drepið mig en vinkona V
hét A): Þú verður að klæða hana
úr fötunum og fara ísjálf. Klæðir
hún mig svo úr, en ég var í grá-
um R.A.F. samfestingi með
rauðum einkennisröndum og
hvítum snúrum (sem ég hafði í
raunveruleikanum verið að dást
að en það veit V ekki), og klæðir
sig í. Allt í einu ákveður hún að
losa sig við líkið og sér ýtu fyrir
utan hús eitt og ákveður að
henda líkinu fyrir ýtuna og láta
kremja það. Þegar því er lokið
fer hún til pabba síns og segir
honum frá því að hún hafi drep-
ið mig. Þá verður hann reiður.
Segir hún honum þá að hún hafi
hent líkinu fyrir ýtu og látið
kremja það. Þá verður pabbi
hennar alveg kolbrjálaður og
endar draumurinn. (Það skal
tekið fram að við erum ekki vin-
konur en umberum þó hvor
aðra.)
Með fyrirfram þökk.
Króksari.
Þessi draumur bendir til þess
að þið stelpan munið lenda í
heldur harðvítugum illdeilum,
annaðhvort innbyrðis eða við
fleiri, þar sem mörg óvarleg orð
verða látin fjúka, margir verða
sárir og einhver vinslit verða. Það
vill þér til happs að þú skulir vera
drepin í draumnum (þó undar-
legt megi virðast) því það bendir
til þess að þú munir standa
jafnrétt eftir sem áður þrátt fyrir
harða orrahríð. Auk þess táknar
dáinn maður, hvort sem ert þú
eða annar, alltaf langlífi fyrir
þann sem er dáinn í draumnum,
en hérna er, auk þeirrar
merkingar, verið að benda á að
þú munir komast heil á húfi úr
slagnum.
Leiðindi,
illindi
Kæri draumráðandi.
Vilt þú ráða þennan draum
fyrir mig ? Hann byrjar svona: Eg
var úti með frænda mínum og
svo ætluðum við að fara inn til
hans. Þá sá ég mömmu vinkonu
minnar, sem ég áttifyrir 3 árum.
Við vorum góðar vinkonur í 5 ár
en þegar við vorum 12 ára fékk
hún allt önnur áhugamál en ég
og við hættum að vera saman, en
ég sé mikið eftir henni. Við
heilsumst oftast núna og erum
aldrei illar hvor út í aðra.
Draumurinn var þannig að
frændi minn var orðinn bróðir
hennar. Við fórum inn í
herbergið hans. Þá kallaði
mamma hennar í frænda minn
og sagði honum að koma að
borða en hann fór ekki. Þá kom
vinkona mín ofsalega æst og
sagði honum að koma. Eg sagði
hæ við hana og brosti en hún
ansaði ekki og leit mig illu auga.
Svo fóru þau út úr herberginu og
ég ætlaði bara að fara. Þá sagði
mamma hennar við hana að hún
ætti að gefa mér nammi. Hún
vildi það alls ekki og sagðist ekki
gera það. Samt kom hún og þá
rak hún dolluna beint framan t
mig. Eg sagði að ég vildi það
ekki fyrst hún þyrfti að reka það
framan í mig og ég fór út en mér
fannst að hún sæi eftir þessu.
Mér fannst það vera öruggt og þá
var það ekki meira. Eg vona að
þú ráðir þennan draum fyrir mig
því ég er leiðyfir honum.
Bless. Ein 14 ára.
Þessi draumur bendir til þess
að þið vinkonurnar takið upp
samband að nýju og það verði
allt afskaplega jákvætt en ekki
endilega mjög langan tíma. I
honum er í sjálfu sér ekkert
nema gott og líklegt er að þið
hafið samband á nýjan leik og
bindist varanlegum vináttu-
böndum án þess að vera eins
mikið saman og áður, vináttan
gæti enst lengi en mikill sam-
gangur verður tæplega nema
skamma hríð.
41. tbl. Vikan 35