Vikan - 06.03.1986, Qupperneq 39
spennur
tölur og hnappar
tappar
krókar
klemmur
og fleira og fleira.
Stundum, þegar mann langar til að
vera einn og út af fyrir sig, er pínulitla
leikhúsið fyrirtaks félagsskapur. Þú
getur tekið hlutina upp úr öskjunni og
búið til leikrit.
Sviðið getur þú teiknað á pappa og lagt
alla smáhlutina, sem notaðir eru í leik-
húsinu, þar á. Leiktjöld og sviðsmynd
getur þú teiknað á pappann og leikend-
urna hreyfir þú bara með fingrunum.
Á öryggisnælu getur þú fest litla
brodda, tannbrodda, og látið hana vera
öryggisfisk. Þú getur látið fiskinn tala
með því að opna og loka öryggisnælunni.
Á sama hátt getur klemman talað og þú
getur málað augu á klemmuna.
Ef þú ert með tölu í leikhúsinu, sem
er með fjögur göt, getur þú dregið tvinna
í gegnum tvö göt (eins og á myndinni)
og þá færðu bæði munn og fætur.
áreiðanlega fundið gamlar skeiðar og
sleifar sem hætt er að nota. Safnaðu þeim
saman í kassa og einhvern daginn, þegar
þú hefur ekkert við að vera, getur þú
tekið þær fram og gætt þær lífi.
Þú getur málað hálfbrosandi munn
öðrum megin á sleif og lokaðan, hring-
laga munn hinum megin. Ef þú hreyfir
sleifma hratt fram og aftur er eins og
sleifin segi Hal-ló.
Önnur sleif getur verið tvær ólíkar
persónur. Til dæmis getur útstæða hliðin
verið matargatssleif og hin hliðin getur
verið horfallin sleif.
Það eru til margar tegundir, stærðir
og gerðir af sleifum og ef þú gefur hug-
myndafluginu lausan tauminn er fljót-
legt að koma sér upp stórri sleifafjöl-
skyldu.
Það er líka hægt að leika leikrit með
sleifum, til dæmis á bak við borð eða í
stórum kassa, og þá geta áhorfendur
setið allt í kringum þig.
Þú getur líka búið til föt á sleifarnar
úr efni, pappa eða plasti og hár úr garni
eða snæri.